Fréttablaðið - 25.09.2013, Síða 16
25. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa okkar,
KRISTINS ERLENDSSONAR
Úlfsey, Austur-Landeyjum.
Sérstakar þakkir handa starfsfólki
HSU Selfossi.
Ásta Guðmundsdóttir
Haraldur Kristinsson
Brynja Kristinsdóttir
Garðar Kristinsson
tengdabörn og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÉTUR ÞORBJÖRN KRISTJÁNSSON
Borgarholtsbraut 66, Kópavogi,
lést á Landspítalanum 17. september
sl. Jarðarför fer fram frá Kópavogskirkju
þriðjudaginn 1. október kl. 13.00.
Laila Helga Schjetne
Guðrún Pétursdóttir Lárus Hjörtur Helgason
Þorbjörn Pétursson Kristín Helgadóttir
Harpa Pétursdóttir Þórarinn Helgi Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar ástkærs eiginmanns míns,
ÓSKARS VIGFÚSSONAR
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á vistinni og
hjúkrunardeild 2B Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir
alúð og umhyggju.
Elín Kristjánsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
EINAR VILHJÁLMSSON
rafeindavirki,
Marbakkabraut 18, Kópavogi,
sem lést 13. september síðastliðinn, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 26. september kl. 15.00. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins.
Ester Jónsdóttir
Jón Þór Einarsson Þóra Elísabet Kjeld
Eyjólfur Einarsson Jóna Einarsdóttir
Vilhjálmur Einarsson Ester Sif Harðardóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
PÉTUR SIGURBJÖRNSSON
Garðaflöt 1, Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn
14. september sl. verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
föstudaginn 27. september kl. 13.00. Innilegu þakklæti viljum
við skila til Karitas heimahjúkrunar fyrir ómælda aðstoð og hlýja
umönnun í gegnum árin.
Elín Halldóra Hafdal
Kristján Grétar Pétursson Steinunn Erna Otterstedt
Pétur Sigurbjörn Pétursson Berglind Ósk Kjartansdóttir
Rakel Björk Pétursdóttir Marinó Jónsson
Heimir Þór Pétursson Vilborg Drífa Gísladóttir
Brynhildur Pétursdóttir Jóhann Pálsson
og afabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og stjúpmóðir,
GUÐRÚN ÞORGEIRSDÓTTIR
Asparfelli 4, Reykjavík,
sem lést á heimili sínu, þann 12. september
sl. verður jarðsungin frá Langholtskirkju,
fimmtudaginn 26. september kl. 13.00. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar láti
Ljósið á Langholtsvegi njóta þess.
Þorgeir Ingvason
Þorgeir Pétursson Stella Skúladóttir
Sturla Pétursson Anna K. Björnsdóttir
Áki Pétursson Kristín Bjarney Sigurðardóttir
Sigrún Linda Þorgeirsdóttir
Þórir Viðar Þorgeirsson
og barnabörn.
Okkar ástkæri
JÓHANN BENEDIKT PÉTURSSON
klæðskeri og fv. póstmeistari,
Nesvöllum, Keflavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 19. september sl. Útför hans
fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn
3. október kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vilja heiðra minningu hans er bent á Velferðarsjóð
Suðurnesja í umsjá Keflavíkurkirkju.
Pétur Jóhannsson Sigrún Jónatansdóttir
Guðrún Rósalind Jóhannsdóttir
Helgi Jóhannsson Hjördís M. Bjarnason
Sóley Jóhannsdóttir Ólafur J. Briem
Jóhann Jóhannsson Hildigunnur Árnadóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURLAUG GÍSLADÓTTIR
(LULLA)
frá Hellissandi, Ársölum 1, Kópavogi,
lést miðvikudaginn 18. september. Hún verður jarðsungin
frá Digraneskirkju í dag, miðvikudaginn 25. september, kl. 13.00.
Sigrún Ingadóttir Jón A. K. Lyngmo
Gísli Ingason Hrafnhildur Hauksdóttir
Einar Ingason Agnes Lilý Guðbergsdóttir
Guðbjörn Sölvi Ingason Unnur Baldursdóttir
Ragnar Kristinn Ingason Gróa Hlín Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
sambýlismaður, afi og langafi,
ÓSKAR GUÐMUNDSSON
Einarshöfn, Eyrarbakka,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
föstudaginn 27. september kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast
hins látna er bent á Vinafélag Ljósheima og Fossheima.
Esther Óskarsdóttir Sigurður Jónsson
Guðmundur Kr. Óskarsson Inga Dóra Sverrisdóttir
Díana Óskarsdóttir Hannibal Guðmundsson
María Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Leit Hugvísindasviðs Háskóla Íslands
eftir hugmyndum um fegurstu orð
íslenskrar tungu er hafin. Ástráður
Eysteinsson, forseti Hugvísindasviðs,
kynnti leitina á blaðamannafundi í gær.
Allir geta sent inn tillögu um feg-
ursta orð tungumálsins á vefsíðunni
fegurstaordid.hi.is. Lokadagur til að
skila tillögum er 22. október næst-
komandi. Orðanefnd velur nokkur orð
og ástæður úr innsendum tillögum í
öllum aldursflokkum og gefst almenn-
ingi síðan kostur á að greiða atkvæði
um þær tillögur. Stefnt er að því að gefa
úrval orðanna út á bók, ásamt umsögn-
unum sem fylgja þeim.
Veittar verða viðurkenningar fyrir
þær tillögur sem dómnefnd þykir skara
fram úr. Þá er horft í senn til orðanna
sjálfra og þeirra ástæðna sem gefnar
eru fyrir vali þeirra. Öll orð koma til
greina: nafnorð, sagnorð, lýsingarorð,
smáorð, upphrópanir, nýyrði, slang-
urorð, tökuorð, töluorð, töfraorð o.s.frv.
Tilgangur leitarinnar er í fyrsta
lagi að safna tillögum almennings
um fegurstu orð tungumálsins, ásamt
ástæðum fyrir vali hvers og eins. Í
öðru lagi að skapa víðtæka umhugs-
un og umræðu, í gamni og alvöru, um
íslenska tungu og eiginleika hennar. Í
þriðja lagi að efla vitund um eðli, notk-
un, virkni og veruleika tungumáls-
ins sem við hrærumst í og um fegurð
þess og mikilvægi í ýmsum skilningi og
ýmsu samhengi.
Í fjórða lagi er tilgangurinn sá að
minna á stöðu íslenskunnar sem er mál
meðal annarra mála, bæði í alþjóða-
samhengi en einnig á Íslandi, þar sem
fjöldi fólks á sér annað móðurmál, m.a.
íslenskt táknmál. freyr@frettabladid.is
Leitað að fegurstu
orðum íslenskunnar
Hugvísindasvið Háskóla Íslands leitar að fegurstu orðum íslenskrar tungu.
Þátttakendum í keppninni verður skipt í þrjá aldurshópa: Þá sem eru fæddir eftir
ársbyrjun 1998, þá sem eru fæddir á árabilinu 1988 til 1997 og þá sem verða 26 ára
eða eldri á árinu 2013. Hver þátttakandi getur einungis lagt fram eina tillögu. Einn
þátttakandi í hverjum flokki hlýtur ferð fyrir tvo innanlands í verðlaun en einnig
verða veitt þrenn vegleg bókaverðlaun.
Ferð innanlands og vegleg bókaverðlaun
ÁSTRÁÐUR
EYSTEINSSON
Forseti Hugvísin-
dasviðs Háskóla
Íslands kynnti
leitina á blaða-
mannafundi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM