Fréttablaðið - 25.09.2013, Page 21

Fréttablaðið - 25.09.2013, Page 21
RANNSÓKNIR Í FERÐAÞJÓNUSTU Ferðamálastofa boðar til morgun verðarfundar á Grand Hóteli Reykjavík 1. október kl. 8.30. Þar verða kynntar niðurstöður greiningar á þörfinni fyrir rannsóknir í íslenskri ferðaþjónustu. Það eru vafalaust ekki margir í heiminum sem smíða eigin rafstöð og nýta meðal annars til að knýja heimilisbílinn. Einn þeirra er bóndinn og bifvélavirkinn Tryggvi Valdemars- son sem býr á Engi í Bárðardal. Hann virkjaði litla á við bæinn fyrir tuttugu árum og byggði rafstöð sem sér þremur bæjum í sveitinni fyrir rafmagni. Nýlega lét hann gamlan draum rætast og fjár- festi í rafbíl af gerðinni Nissan LEAF sem hann er hæstánægður með. „Þetta var nú bara smá ævintýraþrá í mér, svona bílar eru kannski ekki mjög heppilegir langt úti á landi. Ég kemst þó 150 kílómetra á honum og get þannig keyrt til Akureyrar og Húsavíkur svo dæmi séu tekin. En ég þarf að hlaða hann þar til að komast heim aftur. Það eru reyndar ekki margar hleðslustöðvar á þessum slóðum en eftir því sem fleiri kaupa rafbíla bætast þær vonandi við.“ Rafbílinn hefur reynst Tryggva mjög vel að eigin sögn. „Hann er lipur og kraft- mikill og hentar vel hér á landi. Næsta skref ætti að vera að komast yfir bíl sem kemst lengra á hleðslunni en slíkir bílar eru hins vegar mjög dýrir í innkaupum. Slíkir bílar komast um 400 kílómetra á einni hleðslu sem er auðvitað mikið framfaraskref.“ Ein hleðsla á bílinn hans Tryggva kostar um 300 krónur sem gera um þrjár krónur á kílómetrann. „Svo framleiði ég auðvitað rafmagnið sjálfur og fæ það þannig séð ókeypis.“ Aðspurður hversu lengi hann ætli að keyra á rafbíl segir hann rafhlöðurnar vera með fimm ára ábyrgð þannig að hann muni að minnsta kosti keyra hann næstu árin. „Ég er hins vegar kominn á áttræðisaldurinn og keyri ekki endalaust bíla. Ætli ég reyni ekki að minnsta kosti að klára þetta fimm ára tímabil rafhlöð- unnar.“ ■ starri@365.is FERÐAST UM SVEITINA Á RAFBÍL RAFMAGNSBÓNDINN Ábúandinn á Engi í Bárðardal byggði sér rafstöð fyrir tuttugu árum. Nú er hún meðal annars nýtt til að knýja rafbíl heimilisins. SÁTTUR BÍLEIGANDI „Svo framleiði ég auð- vitað rafmagnið sjálfur og fæ það þannig séð ókeypis,“ segir rafbíl- eigandinn og bóndinn Tryggvi Valdemarsson. MYND/RAT Höfum opnað aðra verslun í húsi Máls og menningar, Laugavegi 18 Laugavegur 18, 101 Reykjavik Opið mán – fös 11-20 lau 11-17 -sun 12-17 sími 511 3399 Ármúla 18, 108 Reykjavik Opið mán – fös 9-18 og lau 11-15 sími 511 3388

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.