Fréttablaðið - 25.09.2013, Page 27

Fréttablaðið - 25.09.2013, Page 27
365 MIÐLAR | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Jónas Unnarsson MISS WORLD 2013 Kl. 11.30 laugardag Lokaþáttur breska sjónvarpsþáttarins Broadchurch verður á sunnudaginn á Stöð 2. Þættirnir voru frumsýndir á bresku sjón- varpsstöðinni ITV í vor og hafa svo sannarlega slegið í gegn um allan heim. Undanfarnar vikur hafa margir íbúa bæjarins legið undir grun og fyrir lokaþáttinn á sunnudaginn er ómögulegt að segja til um hver málalok verða. Rannsókn málsins er í höndum aðkomu- mannsins Alec Hardy en honum til aðstoðar er lögreglukonan Ellie Miller sem býr í bænum. Óhætt er að segja að samvinna þeirra sé ansi brösótt enda er Hardy langt frá því að vera auðveldur í samskiptum. Mikil leynd hvíldi á tökustað yfi r því hver sá seki var og vissu leikararnir sjálfi r ekki einu sinni hver morðinginn var fyrr en lokaþátturinn var tekinn upp. Á sunnudaginn mun hins vegar sannleikurinn koma í ljós og morðinginn verður opinberaður. Lokaþáttur Broadchurch er sýndur á Stöð 2, sunnudaginn 29. september og hefst kl. 20.45. HVER ER MORÐINGINN? Fyrsti þáttur í þriðju seríu Hung verður sýndur í kvöld á Stöð 2. Hung er gamansamur þáttur með dramatísku ívafi frá HBO og fjallar um Ray Drecker sem er óhamingjusamur körfubolta- og hafnaboltaþjálfari í menntaskóla. Hann er fráskilinn faðir ung- lingstvíbura og í bullandi fjárhagsvandræðum. Þegar heimili hans verður eldi að bráð tekur hann til sinna ráða. Með aðstoð vinkonu sinnar Tanyu ákveður hann að gerast karlhóra en Ray er sérlega vel vaxinn niður. Þátturinn fjallar um hvernig Ray reynir með mis- jöfnum árangri að samtvinna nýjan starfsvettvang og sitt gamla líf án þess að upp um hann komist. Stöð 2 sýnir nú þriðju og síðustu þáttaröðina af Hung. Þar er lögð áhersla á baráttu Ray og Tanyu við Lenore, sem um tíma var einnig hórmangari Rays. Sú er nú komin með nýjan skjólstæðing inn í fagið. Thomas Jane er þekktastur fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum Boogie Nights (1997), 61* (2001), The Punisher (2004) og The Mist (2007). RAUNIR KARLHÓRU HUNG Kl. 22.20 miðvikudaga BROADCHURCH Kl. 20.45 sunnudag M Y N D /B O N N I.IS Upphaflega átti keppnin að fara fram í Djakarta, höfuðborg landsins, en ákveðið var að færa hana eftir öflug mótmæli múslíma í landinu. Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir, 22 ára laganemi, er fulltrúi Íslands í keppninni en hún var kosin Ung- frú Reykjavík 2011. Sigríður ertu spennt fyrir úrslitakvöldinu? „Já, ég er virkilega spennt, þetta hefur verið mikil vinna síðastliðinn mánuð. Ég hlakka mikið til að njóta dagsins með stelpunum,“ svarar hún og bætir við að það hafi komið sér á óvart hversu mikil dagskrá hafi verið alla daga. „Við vöknum snemma á morgnana og erum með dagskrá fram á kvöld. Ég mun líklegast sofa í viku þegar ég kem heim.“ Frábærar stelpur Megum við búast við að sjá þig í sigursæti? „Ég get ekkert sagt til um það, það eru svo margar frábærar stelpur hérna sem geta vel sinnt því starfi sem Miss World tekur sér fyrir hendur. Í raun er ekkert hægt að spá fyrir um úrslit og oft hefur það gerst að aðili sem ekki hefur verið tal- inn sigurstranglegur ber sigur úr býtum,“ segir Sigríður og viðurkennir að hún hafi verið mjög stressuð áður en hún hélt af stað í þetta langa ferðalag yfir að vera þetta lengi í burtu frá fjöl- skyldu og vinum. Mikil lífsreynsla „Annars var ég mjög spennt fyrir þessu öllu saman og get sagt í dag að þetta er þvílík lífs- reynsla sem ég er að öðlast hér. Það var margt sem ég þurfti að gera áður en haldið var af stað. Farangurinn þurfti til dæmis að endast mér í mánuð. Ég náði þó að koma öllu fyrir í tveimur ferðatöskum sem er heldur lítið miðað við að margar stelpur hérna eru með 7-8 töskur. Ég þurfti meðal annars að hafa með mér íslenska þjóðbúninginn, bók um Ísland, gjöf fyrir góð- gerðar uppboð og margt annað.“ Sigríður segist hafa fengið ítarlegar leiðbein- ingar frá Miss World Organisation en einnig fékk hún upplýsingar frá Sigrúnu Evu Ármanns dóttur sem fór í Miss World árið 2011. „Ég á frábæra fjölskyldu sem er búin að aðstoða mig og styðja í þessu öllu saman og fyrir það er ég henni ævin- lega þakklát.“ Heljarinnar veisla Mega áhorfendur Stöðvar 3 búast við glæsilegri útsendingu? „Já, ég get sko lofað heljarinnar „show-i“. Má nefna rosalega flott dansatriði þar sem við dönsum þjóðdansa frá tíu löndum í okkar eigin þjóðbúningum. Við munum einnig koma fram í indónesískum þjóðbúningum og síðkjólum og sýnt verður myndefni sem búið er að taka upp síðastliðinn mánuð af því sem við höfum verið að að hafast hér á Balí.“ 15 mínútna frægð Sigríður segir öryggisgæslu mikla. „Við þekkjum orðið hótelið okkar hér á Balí jafnvel og heim- ili okkar. Alltaf er þó eitthvað skemmtilegt að gera, nú síðast var mini-hæfileikakeppni þar sem hver stúlkan á fætur annarri stóð á fætur og sýndi listir, dans, söng og þess háttar fyrir hópinn. Við látum okkur sjaldan leiðast, enda höfum við um margt að tala, komum frá ólíkum menningar heimum og getum endalaust talað um löndin okkar. Keppnin hefur vakið mikla athygli og okkur hefur verið tekið opnum örmum. Hvert sem við förum mætir fólk okkur með brosi á vör, komið er fram við okkur eins og Hollywood- stjörnur svo þetta eru nokkurn veginn mínar fimmtán mínútur af frægð.“ GLÆSILEIKI OG FEGURÐ FRÁ BALÍ Miss World 2013 fer fram á Balí í Indónesíu á laugardag. Stöð 3 mun sýna beint frá keppninni kl. 11.30. Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir er fulltrúi Íslands.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.