Fréttablaðið - 25.09.2013, Síða 47
MIÐVIKUDAGUR 25. september 2013 | MENNING | 23
Assisi, elsta barnabarn söngvar-
ans Micks Jagger, á von á barni
með kærasta sínum. Þetta þýðir
að Jagger er að verða langafi ef
marka má bresku slúðurblöðin.
Samkvæmt frétt The Daily
Mirror sögðu Assisi og kærasti
hennar nánustu fjölskyldumeð-
limum fréttirnar í síðustu viku.
Samkvæmt blaðinu er Jagger
hæstánægður með fréttirnar og
sáttur við að verða langafi. Jagger
á sjö börn á aldrinum 14 til 43 ára
og fjögur barnabörn.
Mick Jagger
langafi
VERÐUR LANGAFI Elsta barnabarn
Micks Jagger á von á sínu fyrsta barni.
NORDICPHOTOS/GETTY
TÓNLIST ★★★
Ný dönsk
Eldborg
HARPA
Eldborgarsalurinn í Hörpu var þétt setinn
á tónleikum Ný danskra og Johns Grant
á laugardaginn var. Um seinni tónleika
kvöldsins var að ræða og því heldur glatt
á hjalla eins og gengur og gerist. Fremsta
röðin lét fara vel um sig, hallaði sér aftur
í sætunum og hvíldi lúin bein á sviðsbrún-
inni á milli þess sem hún hellti ótæpilega
í sig bjór.
Ný danskir létu einnig fara vel um sig til
að byrja með – sátu í leðursófum vopnaðir
kassagíturum og sungu marga af helstu
smellum sveitarinnar órafmagnaðir. Lög
á borð við Fram á nótt fengu að hljóma við
góðar undirtektir úr sal. Fremsta röðin
var sérstaklega vel með á nótunum. Þegar
líða fór á stóðu hljómsveitarmeðlimir upp,
plögguðu sig við rafmagn og keyrðu upp
hraðann. Þá færðist sko fjör í leikinn.
Fremsta röðin réð heldur ekki við sig,
trylltist eiginlega af gleði, þegar Iður –
Þjóðhátíðarlagið 2013 – fékk að hljóma,
stóð upp og söng hástöfum með. Gat verið
– Eyjamenn!
Eftir stutt hlé tók enn annar kafli við.
Íslandsvinurinn John Grant var kynntur
til leiks eftir að Ný danskir höfðu sungið
eitt af lögum hans. John tók sjálfur nokkur
af sínum eigin lögum áður en hann skellti
sér í ensku útgáfuna af Flugvélum, einum
helsta smelli Ný danskra. Frábærlega vel
gert. Enn og aftur keyrðu Ný danskir upp
hraðann og salurinn tók vel á móti. Tveir
miðaldra karlmenn buðu upp á einhvers
konar vangadans á næstefstu svölunum
í rólegustu lögunum. Undir það síðasta, í
Nostradamus, voru Eyjamennirnir löngu
staðnir upp og allur salurinn fylgdi á eftir;
dansaði og söng hástöfum með.
Kristján Hjálmarsson
NIÐURSTAÐA Frábærlega afslappaðir og vel
heppnaðir tónleikar Ný danskra og Johns Grant
í Eldborgarsalnum. Prógrammið úthugsað svo
áhorfendur hrifust með. Vel gert.
Ný dönsk á flugi
NÝ DÖNSK Tónleikar Ný danskra í Eldborgarsalnum voru
hrífandi og vel úthugsaðir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Orðrómur er á kreiki þess efnis að
ofurfyrirsætan Naomi Campbell
komi til með að stýra eigin sjón-
varpsþætti í Bandaríkjunum á
næstu misserum. Umboðsmaður
fyrirsætunnar kom með yfirlýs-
ingu þess efnis að Campbell sæti
við samningaborð með stjórn-
endum á ónefndri sjónvarpstöð en
ekki væri hægt að staðfesta neitt
að svo stöddu. Þátturinn yrði lík-
lega spjallþáttur í anda The Tyra
Banks Show, sem fyrirsætan Tyra
Banks stjórnaði.
Campbell er einn stjórnenda
raunveruleikaþáttarins The Face,
sem sýndur eru á sjónvarpstöðinni
Oxygen í Bandaríkjunum.
Campbell með
eigin spjallþátt
HÆFILEIKARÍK Það gæti farið svo
að Naomi Campbell fái sinn eigin
spjallþátt ef marka má slúðurblöðin
vestanhafs. NORDICPHOTOS/GETTY