Fréttablaðið - 25.09.2013, Qupperneq 48
25. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 24
BAKÞANKAR
Söru
McMahon
Tískuvikunni í London lauk á miðvikudag en þar höfðu hönnuðir sýnt
sumar- og vorlínur sínar fyrir næsta ár. Fjöldi þekktra einstaklinga
sótti tískuviðburðina og má þar nefna söngvarann Harry Styles úr
hljómsveitinni One Direction og Alison Mosshart úr hljómsveitinni
The Kills. Ef marka má myndir frá viðburðum tískuvikunnar eru
leðurflíkur, hvíti liturinn og hlébarðamunstur í miklu uppáhaldi hjá
stjörnunum um þessar mundir.
Stjörnum prýdd
tískuvika
Tískuvikan í London var vel sótt af fræga fólkinu.
Á FREMSTA BEKK Þekkt andlit á sýningu tískuhússins Burberry Prorsum sem fram
fór í Kensington-görðunum. NORDICPHOTOS/GETTY
HLÉBARÐABUXUR Fyrirsætan Kate
Moss klæddist hlébarðamunstruðum
buxum.
FALLEG KÁPA Leikkonan Sienna Miller
sótti kvöldverð í boði breska Vogue.
BLÚNDUR Leikkonan og fyrirsætan
Daisy Lowe á sýningu tískuhússins
Erdem.
LEÐURPILS Alexa Chung og Georgia
May Jagger klæddust flottum leður-
pilsum.
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SAN FRANCISCO CHRONICLE
T.V. - BÍÓVEFURINN/S&H
T.V. - BÍÓVEFURINN/S&H
JOBLO.COM
A.O.S NEW YORK TIMES BOSTON GLOBE
DIANA 5.30, 8, 10.30
AULINN ÉG 2 - ÍSL 5.30 2D
DESPICABLE ME 2 - ENS 5.30, 8 2D
MALAVITA 8, 10.20
JOBS 10.20
ÍSL OG ENS TAL
T.V. - Bíóvefurinn
5%
SJÁ SÝNINGARTÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
DIANA KL. 8 - 10.10
BLUE JASMIN KL. 6 / MALAVITA KL. 8
ÉAULINN G 2 3D KL. 6 / JOBS KL. 10
RIDDICK KL. 5.25 - 8 - 10.35
RIDDICK LÚXUS KL. 8 - 10.35
ÉAULINN G 2 2D KL. 3.30 - 5.45
AULINN ÉG 2 3D KL. 3.30
MALAVITA KL. 8 - 10.30
BLUE JASMIN KL 5.45
THIS IS US 3D KL 5.45
ELYSIUM KL. 8 - 10.25
2 GUNS KL. 8 - 10.30
STRUMPARNIR 2D ÍSL TAL KL. 3.30
Miðasala á: og
T.V. - BÍÓVEF.
“EIN BESTA
MYND ÁRSINS!”
- RINN/S&HT.V., BÍÓVEFU
„STERK MYND SEM SPYR
ÁL SPURNINGA“EITINNA
-S.B.H., MBL
DIANA KL. 5.30 - 8 - 10.30
DJÚPIÐ KL. 10.10
EAT SLEEP DIE KL. 8
SOM DU SER MEG KL. 5.40
BLUE JASMIN KL. 8 - 10.15
AULINN ÉG 2 2D KL. 5.45
ÍHROSS OSS KL. 6 - 8
2 GUNS KL. 10
Hin danskættaða Nuki, sem Matvæla-stofnun lýsir á vef sínum sem svartri,
stutthærðri og með hvítan blett á bring-
unni, slapp úr einkaflugvél á Reykjavíkur-
flugvelli í gær. Nuki kom starfsmönnum
flugvallarins í mikið uppnám því hún átti
ekkert með það að stinga svona af, enda
hafði hún ekki farið í gegnum einangrunar-
stöð áður og því gæti mikil smithætta
stafað af Dananum. Meðal þeirra er
tóku þátt í leitinni að Nuki í gær voru
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu,
starfsfólk flugvallarins og björg-
unar sveitarfólk.
NUKI, sem millilenti á Reykja-
víkur flugvelli á leið sinni til Banda-
ríkjanna, er húðflúruð og stygg
við ókunnuga og Matvælastofnun
brýnir fyrir fólki að taka hana
ekki inn á heimili sín þar sem
dýr eru fyrir – íslenskum hús-
dýrum stendur nefnilega ógn af
dönsku læðunni.
REYKJAVÍKURFLUG-
VÖLLUR stendur aðeins stein-
snar frá Þingholtunum og Skerjafirði þar
sem allt iðar af kattalífi og því ljóst að far-
aldur gæti verið í uppsigi, það er að segja
ef Nuki finnst ekki áður en hún kemst í
kynni við lattelepjandi kött úr 101.
MÖRGUM spurningum er enn ósvarað
um strok Nuki – var þetta úthugsað eða
algjörlega spontant? Hvað hefur drifið á
daga hennar frá því hún yfirgaf lúxusinn
um borð í einkaflugvélinni? Hvaða erindi
átti hún til Bandaríkjanna? Vissi hún
hvílíkt uppþot strok hennar myndi valda
íbúum þessa afskekkta skers í Norður-
Atlantshafi? Þetta og fleira vil ég vita og
því vona ég að Nuki, eða danskur eigandi
hennar, veiti íslenskum fjölmiðlum við-
tal þegar hún loks finnst. Ég myndi glöð
munda míkrafóninn í þeim tilgangi.
EN þar til hin ævintýragjarna danska læða
kemst til síns heima mun Sigga, kötturinn
minn, þurfa að halda sig innandyra. Ég vil
ómögulega að hún rekist á fjórfætta heims-
borgarann á förnum vegi og fái þá flugu í
hausinn að strjúka til útlanda. Þá væri mér
allri lokið.
Fjórfætti heimsborgarinn