Fréttablaðið - 04.10.2013, Síða 49
FÖSTUDAGUR 4. október 2013 | FRÉTTIR | 33
Nýsjálenska söngkonan og laga-
höfundurinn Lorde er yngsti sóló-
tónlistarmaðurinn sem kemst á
topp bandaríska Billboard-vin-
sældalistans í 26 ár.
Hún situr nú í efsta sæti listans
með lagið Royals eftir að hafa
velt Miley Cyrus úr sessi. Lorde
er sextán ára en verður sautján
ára 7. nóvember. Árið 1987 komst
Tiffany á toppinn með lagið I
Think We´re Alone Now. Þá var
hún sextán ára og eins mánaðar
gömul.Yngsti sólótónlistarmað-
urinn sem komist hefur á toppinn
er Stevie Wonder sem var aðeins
þrettán ára þegar hann fór á topp-
inn með Fingertips Pt 2 árið 1963.
Lorde er sú
yngsta í 26 ár
LORDE Lagið Royals með Lorde nýtur
mikilla vinsælda. NORDICPHOTOS/GETTY
Hljómsveitirnar Stilluppsteypa
og Rafsteinn koma fram á Undir-
öldunni í Hörpu í dag. Undiraldan
er tónleikaröð Hörpu í samstarfi
við 12 Tóna.
Rafsteinn er skipuð myndlist-
armanninum Hafsteini Michael
Guðmundssyni og leikur hann
dimma raftónlist. Stilluppsteypa
er skipuð Sigtryggi Berg Sig-
marssyni og Helga Thorssyni.
Tvíeykið hefur verið þekkt í
neðanjarðartónlistarsenu Íslands
frá því um miðjan tíunda áratug
síðustu aldar. Sveitin leikur til-
raunakennda raftónlist.
Tónleikarnir hefjast klukkan
17.30 í Kaldalóni og er aðgangur
ókeypis.
Raft ónlist
í Hörpu
STILLUPPSTEYPA Sigtryggur Berg
Sigmarsson er annar hluti tvíeykisins
Stilluppsteypu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Við erum búin að vera að undirbúa þetta
lengi og erum spennt fyrir kvöldinu,“ segir
Guðmundur Óskar, bassaleikari hljóm-
sveitarinnar Hjaltalín sem flytur tónlist
sína á frumsýningu myndarinnar Days of
Gray í Gamla bíói í kvöld. Frumsýningin
er óvenjuleg að því leyti að kvikmyndin
sem um ræðir er þögul, og tónlist Hjaltalín
kemur í stað samtala.
Þetta er fyrsta kvikmynd bandaríska
leikstjórans Ani Simon-Kennedy í fullri
lengd en hvatinn að gerð hennar var ein-
mitt tónlist Hjaltalín, sem leikstjórinn sá á
tónleikum í Tékklandi.
„Þetta er dálítið sérstakt verkefni vegna
þess að þetta eru í rauninni bara áttatíu
mínútur af tónlist – það er líka svo gaman
hvernig samstarfið kom til. Þetta er ekki
hefðbundin gerð tónlistar við kvikmyndir
heldur semur leikstjórinn handritið eftir
að hafa séð okkur spila,“ útskýrir Guð-
mundur.
„Um leið og var búið að skjóta myndina, í
fyrra, tókum við tíu daga þar sem við gerð-
um þessa tónlist og kláruðum myndina.“
Hjaltalín setti upp forsýningu á verk-
inu á Iceland Airwaves í fyrra sem ein-
hverjir hafa eflaust séð. „Síðan þá er búið
að breyta myndinni aðeins og svo vantar
tvo meðlimi hljómsveitarinnar sem eru í
útlöndum, þau Rebekku og Viktor,“ bætir
hann við. „Þannig að við þurfum að sníða
okkur stakk eftir vexti, og fáum til að
mynda Bjarna Frímann inn sem staðgengil
Viktors á fiðlu.
Svo er að koma út plata með þessari
tónlist í haust. Við höfum valið lög úr
myndinni og sungið yfir önnur,“ segir
Guðmundur.
Days of Gray gerist í fjarlægri framtíð
og segir frá einstakri vináttu drengs og
stúlku. Myndin er laus við öll samtöl og
því leikur tónlist hljómsveitarinnar veiga-
mikið hlutverk í henni.
- ósk
Lifandi tónlist í bíósalnum á RIFF í kvöld
Tónlist Hjaltalín verður fl utt í stað samtala í hinni þöglu Days of Gray sem frumsýnd er á RIFF í kvöld.
SPILA UNDIR ÞÖGLA KVIKMYND Sigríður
Thorlacius og Guðmundur Óskar eru bæði í hljóm-
sveitinni Hjaltalín. MYND/ÁLFHEIÐUR ERLA GUÐMUNDSDÓTTIR