Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 1
HEILBRIGÐISMÁL „Biðin eftir gjafa-
eggi hefur verið í kringum ár en
hefur minnkað undanfarna mánuði.
Það gengur einfaldlega betur að fá
íslenskar konur til að gefa egg,“
segir Þórður Óskarsson, læknir og
annar eigenda Art Medica. „Þær
frétta að mörg pör bíði eftir eggi
og vilja einfaldlega hjálpa til.“
Í dag eru 20-25 pör á biðlista
eftir gjafaeggi og þurfa að bíða
í þrjá til fimm mánuði. Allir sem
fara í meðferð hjá Art Medica fá
gjafaegg frá konum sem fara í með-
ferð þar. Ekki er hægt að fá erlend
gjafaegg.
„Það eru ekki til erlendir eggja-
bankar eins og sæðisbankar. Það er
miklu meiri fyrirhöfn að ná í eggin
og flóknara að geyma þau,“ segir
Þórður.
Konur sem gefa egg hjá Art
Medica fá greitt svokallað óþæg-
indagjald, 75-100 þúsund krónur.
„Þetta er heilmikið fyrirtæki.
Konurnar þurfa að mæta í viðtal,
fara í blóðprufur, ræktanir, sprauta
sig og mæta í skoðanir. Þær eru að
minnsta kosti frá vinnu einn dag
þegar kemur að eggheimtu. Það
er sjálfsagt að borga fyrir þessa
fyrir höfn og auðvitað óviðunandi
að þær hafi beinan kostnað af þess-
ari gjöf,“ segir Þórður.
Það getur skipt sköpum fyrir pör
að fá gjafaegg og að þurfa ekki að
bíða of lengi eftir því. Pör geta dott-
ið út af biðlistanum vegna aldurs-
marka, heilsufars eða heilbrigði
konunnar.
„Flestir sem eru á þessum bið-
lista eru líka búnir að bíða lengi
eftir barni. Hver dagur skiptir
máli,“ segir Þórður. - ebg
FRÉTTIR
HELGI SYNGUR HAUKHelgi Björnsson verður með tvenna stórtónleika í Hörpu ann-
að kvöld sem nefnast Helgi syngur Hauk. Með honum leikur
þýska hljómsveitin Capital Dance Orchestra frá Berlín. Gesta-
söngvarar eru Sigríður Thorlacius, Bogomil Font og
Björgvin Halldórsson. Uppselt er á fyrri tónleikana.
J ónína Ben hefur starfað í heilsu- og líkamsræktargeiranum í 30 ár. Hún er mikill frumkvöðull á því sviði og hefur meðal annars kynnt eróbikk, spinning, spa og aðrar nýjungar fyrir landsmönnum ásamt því að stofna Heilsuhótel Íslands. Hinn 15. nóvember næstkomandi býður Jónína upp á tveggja vikna detox-námskeið á Hótel Örk. Full meðferð er tvær vikur en það er líka hægt að koma í skemmri tíma eða yfir helgi og er meðal annars boðið upp á þriggja sólarhringa safa-detox um helgi og tíu eða fjórtán daga safa-, ávaxta- og grænmetis detox. Annað tveggja vikna námskeið hefst svo á hótelinu 3. janúar. Frá miðjum janúar 2014 mun Jón-ína svo bjóða meðferð á heilsuhótel-inu Wichrowe Wzgórze í Póllandi. „Ég hef fundið perlu í þjóðgarðinum nærri Gdansk og verð þar í framtíðinni. Hótel-ið er stórglæsilegt og umhverfið eins og ævintýraland. Aðstaðan er eins og best verður á kosið. Spa-deildin er framúrskarandi og fagmennskan til fyrirmyndar,“ segir Jónína en læknirinn dr. Agnesku Lemansik, sem hún hefur unnið með í gegnum tíðina, mun starfa við hótelið.
Jónína segir herbergin margvísleg –
allt frá því að vera lúxussvítur til venju-
legra herbergja og er verðið eftir því. Jónína segir mikilvægt að það f ium fólk á
DETOX Í PÓLLANDINORDICHEALTH.IS KYNNIR Líkamsræktarfrömuðurinn Jónína Ben býður
detox-meðferð á Hótel Örk um miðjan nóvember og í byrjun næsta árs. Upp frá
því mun hún bjóða sams konar meðferð á glæsilegu heilsuhóteli í Póllandi.
JÓNÍNA BEN
Íþrótt
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝ SENDING Af HAUSTVÖRUM!
Stærðir 36-50. Gæða kvennfatnaður.
www.tk.is
Verð frá kr. 7500.-
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
BORÐLAMPAR
NÝTT
V A N D A Ð I R P O S T U L Í N S
Margar stærðir og gerðir
ÓVIÐJAFNANLEG NÁTTÚRUFEGURÐHótelið í Póllandi er að sögn Jónínu alger perla.
NÝ BUXNASENDING FRÁ Opið til kl 21 í kvöld
2003-2013 0
ára
1
Lífsstíll ● Heilsa ● Heilbrigði
Fimmtudagur 10. október 2013
GEÐHJÁLP
Rit Landssamtakan
na Geðhjálpar á Al
þjóða geðh ilbrigð
isdeginum
FIMMTUDAGUR 1
0. OKTÓBER 2013
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
28
3 SÉRBLÖÐ
Fólk | Geðhjálp | Gengur vel
Sími: 512 5000
10. október 2013
238. tölublað 13. árgangur
Það er
sjálfsagt að
borga fyrir
þessa fyrir-
höfn.
Þórður Óskarsson
Art Medica
MENNING Nemendur HR gerðu Euro-
vision keppnina að viðfangsefni Ham-
faraviku skólans. 70
SPORT Bjarni Guðjónsson er hættur
að spila fótbolta og var í gær ráðinn
þjálfari hjá Fram. 64
Nú er opio allan
sólarhringinn
í EngihjallaO pið m á n - fö s 1 1 - 1 8 l au 1 2 - 1 6S . 5 7 7 - 5 5 70 | E r u m á faceb o ok
NÝJAR VÖRUR
KLÚTAR - SKART - ÚR - TÖSKUR
DÓMSTÓLAR Rannsakandi hjá Fjár-
málaeftirlitinu fékk greiðslu frá
eignarhaldsfélaginu Aserta árið
2009, á sama tíma og forsvarsmenn
þess voru ákærðir fyrir að hafa
nýtt félagið í meiriháttar brot á
lögum um gjaldeyrisviðskipti.
Þá hefur forstöðumanni gjaldeyr-
iseftirlits Seðlabanka Íslands, Ingi-
björgu Guðbjartsdóttur, verið mein-
að að bera vitni í málinu í ljósi þess
að hún veitti hinum ákærðu ráðgjöf
um gjaldeyrisviðskipti áður en hún
hóf störf hjá Seðlabankanum. Það
eru þeir Gísli Reynisson, Karl Löve
Jóhannsson, Markús Máni Micha-
elsson og Ólafur Sigmundsson sem
eru ákærðir í málinu, en það var
þingfest í Héraðsdómi Reykjaness
síðasta vor. Þeim er gefið að sök
að hafa í gegnum félagið Aserta
stundað viðskipti með gjaldeyri,
sem nemi alls um 14,3 milljörðum
íslenskra króna.
- vg / sjá síðu 6
Starfsmaður Fjármálaeftirlitsins fékk greitt frá félagi sem hann rannsakaði:
Fékk borgun frá viðfangsefninu
SKOÐUN Svavar Gestsson segir að
gera þurfi bjartsýnisáætlun fyrir
Landspítalann. 32
Sífellt fleiri
gefa öðrum
konum egg
Biðlisti eftir gjafaeggjum hefur styst hjá Art Medica.
Á þriðja tug para eru á listanum og bíða í allt að hálft
ár eftir gjafaeggi. Gjafar fá greitt óþægindagjald.
„Það kom í ljós þegar systir mín var 16 ára að hún væri ekki með egg og
gæti aldrei eignast börn nema að fá gjafaegg. Ég sagði strax við hana þá að
ég myndi hjálpa henni. Eins og þegar einhver er veikur í fjölskyldunni, þá
vill maður auðvitað hjálpa ef maður getur það,“ segir kona á þrítugsaldri
sem gaf yngri systur sinni egg fyrir fáeinum árum.
„Við undirbjuggum okkur vel andlega en svo kom mér eiginlega á óvart
hvað þetta var eðlilegt. Önnur systkini mín eiga börn og manni þykir sér-
staklega vænt um frændsystkini sín. Litla dóttir systur minnar er bara litla
frænka mín sem mér þykir ofurvænt um.
Meðferðin tók ekki á mig. Ég var svolítið tilfinningasöm, ekki út af
hormónum heldur af því að ég var mögulega að gefa stærstu gjöf sem ég
gat gefið systur minni og manni hennar. Mér fannst þetta aldrei fórn og ég
hugsa að ég myndi gera þetta aftur.“
Stærsta gjöfin sem ég gat gefið henni
Bolungarvík 8° S 18
Akureyri 8° SSV 10
Egilsstaðir 8° SSV 4
Kirkjubæjarkl. 6° SV 4
Reykjavík 8° S 7
Hvassviðri eða jafnvel stormur
um tíma norðvestanlands og með
suðausturströndinni en hægari annars
staðar. Fer er rigna vestanlands. 4
Áttu ekki húsið sitt
Vegna þess að fasteignasali trassaði
að þinglýsa afsali á fasteign hjóna
árum saman þurftu þau að biðja fyrri
eiganda að skrifa upp á breytingu á
húsnæðisláni. 2
Uppgjöf á Hofsvallagötu Skipu-
lagsráð hefur ákveðið að taka niður
umdeild flögg og umferðaeyjur á Hofs-
vallagötu. 4
Eyjar í nýtt samband Talið er að
met hafi verið slegið í lagningu raf-
magnssæstrengs þegar á einu ári tókst
að leggja nýjan streng til Vestmanna-
eyja. 10
Þriggja tunnu val Reykvíkingar geta
nú valið um þrjár mismunandi gerðir af
tunnum fyrir pappír. 24
FRIÐUR Í VIÐEY Nýbakaður heiðursborgari Reykjavíkur, Yoko Ono, tendraði í
gærkvöld friðarsúlu sína í Viðey. Vel á annað þúsund manns þáðu boð listakonunnar
um bátsferð út í ey og voru viðstödd athöfnina sem fór fram í blíðskaparveðri.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þess er gætt að aðilar
sem rannsaka mál tengist
þeim ekki og eru þeir
spurðir út í slíkar tenging-
ar þegar þeir hefja störf.
Fjármálaeftirlitið.