Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 32
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 32 Landspítalinn á yfirleitt fáa vini á stjórnmála- sviðinu. Það þekki ég frá þeim tíma þegar ég fyrir margt löngu var heil- brigðisráðherra. Reyndi aftur og aftur að gera til- lögur um fjárveitingar til spítalans til Alþingis. Það voru stundum myndar- legar tölur í fjárlaga- frumvarpinu en voru ævinlega skornar niður. Peningarnir voru þó ekki teknir af heilbrigðiskerf- inu heldur voru þeir fluttir til annarra sjúkrahúsa sem áttu vini. Sjúkrahúsa úti á landi og Borgarspítal- ans og Landakotsspítal- ans sem áttu vini þó þeir væru í Reykjavík. Samt tókst að halda Landspít- alanum við og vel það. Landspítali – háskóla- sjúkrahús varð seinna til úr þremur spítölum í Reykjavík. Þá var ljós fram undan Þegar afleiðingar hinnar villtu frjálshyggju lögðust yfir land og þjóð í hruninu þá hlaut heilbrigðiskerfið og Landspít- alinn líka að finna fyrir því. Starfsfólkið lagði líf sitt í verk- efnin og sjúklingarnir treystu spítalanum fyrir lífi sínu. Það sem bjargaði málum var dug- legt starfsfólk, fórnfús for- ysta og skilningur þjóðarinnar, sjúklinganna og aðstandenda þeirra. En það var líka ljós fram undan: Það átti að byggja nýjan Landspítala. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Álfheiður Ingadóttir heil- brigðisráðherra höfðu kjark til að taka utan um verkið og sjá: Fyrir liggja tillögur um endurreisn sjúkrahússins, til- lögur sem kosta um 45 miljarða króna. Og það sem meira var: Það lá einnig fyrir að unnt var að fjármagna verkið með fjár- magni úr lífeyrissjóðunum. Það fjármagn átti að taka að láni en sparnaðurinn í rekstri hefði borgað lántökukostnaðinn eins og Björn Zoëga, fráfarandi for- stjóri spítalans, benti á í viðtöl- um fyrir helgina. Þannig hefði mátt dreifa þessum fjárfesting- arkostnaði á tíu til tuttugu ár! Skuggi leggst yfir Landspítalann En þá steig úrtölukórinn fram á sviðið: Greinar um hvað þetta væri dýrt birtust í þeim fáu blöð- um sem eftir eru, heilu kastljós- in og silfrin voru undirlögð af úrtölumönnum og við sem erum stuðningsmenn Landspítalans vorum ekki nógu dugleg að verj- ast. Þegar kom að kosningum lá tvennt fyrir: Talsmenn stjórnar- andstöðuflokkanna töluðu flestir illa um Landspítalann og margt var reynt til að gera verkefnið tortryggilegt. Sumir stjórnar- þingmenn fyrrverandi stjórnar voru heldur lufsulegir í þessu máli eins og öðrum. Ekki bætti það svo úr skák eftir kosning- arnar að talsmenn Landspítal- ans voru uppteknir af öðru, því að læknarnir væru að fara og að það yrði að loka deildum spítal- ans af því að enginn vildi vinna þar lengur. Skuggi dáðleysis og kjarkleysis lagðist yfir Land- spítalann. Ný ríkisstjórn tók við. Hún sá enga lausn aðra en að létta sköttum af auðmönnum, að skera meira niður til Landspít- alans, að hætta við byggingar- áformin og að einkavæða heil- brigðiskerfið. Bjartsýnisáætlun Þegar ég gegndi starfi heilbrigð- isráðherra áttaði ég mig á því sem áður segir að spítalinn átti ekki vini á Alþingi. Það áttu allir aðrir spítalar. Líka spítalinn sem var byggður upp með hraði og vantaði svo „bara“ sjúklinga að lokum. Af þessu tilefni gerði ég tillögu til Alþingis um að breyta lögum um heilbrigðis- þjónustu þannig að Alþingi kysi þrjá menn inn í stjórn Ríkis- spítalanna eins og stofnunin hét þá. Það hafði áhrif. Allt í einu átti Landspítalinn talsmenn á Alþingi bæði í stjórnarliði og í stjórnarandstöðu. En þetta fyrirkomulag var afnumið og það varð Landspítalanum dýrt. Nú þarf að hefja nýja baráttu fyrir Landspítalann. Bjartsýnis- áætlun Landspítalans þarf að verða til. Sú áætlun þarf að ná til sjúklinganna og aðstand- endanna, til starfsmannanna, kjara þeira og starfsaðstæðna, og til framtíðar. Það á að hefj- ast handa við að byggja nýjan Landspítala – ekki seinna en nú þegar. Ég var svo heppinn á síðasta ári að fá að kynnast Landspít- alanum. Það er ekki endilega heppni að þurfa að fara þangað inn en það er heppni að fá að skilja aðstæður þessarar stofn- unar. Það gerir mig og aðra betur færa um að hafa skoðun á þessari stofnun og þörfum hennar. Þegar ég sat í stjórnar- nefnd Ríkisspítalanna og var heilbrigðisráðherra samtals í nærri áratug kynntist ég spítal- anum vel og vandamálum hans. Í fyrra kynntist ég honum aðeins innan frá. Það var mikilvæg lífs- reynsla. Nú þurfa allir þeir sem eiga Landspítalanum líf að launa að taka sig saman og standa með spítalanum. Landspítalinn er reyndar ekki bara heilbrigðis- mál. Þjóð sem ekki á gott stofn- sjúkrahús stendur ekki undir því að geta heitið fullvalda þjóð. Gerum bjartsýnisáætlun fyrir Landspítalann HEILBRIGÐIS- MÁL Svavar Gestsson fv. heilbrigðis- ráðherra ➜ Nú þarf að hefja nýja baráttu fyrir Landspítalann. Bjartsýnisáætlun Land- spítalans þarf að verða til. Sú áætlun þarf að ná til sjúklinganna og aðstand- endanna, til starfsmann- anna, kjara þeira og starfs- aðstæðna, og til framtíðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.