Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 44
10. OKTÓBER 2013 FIMMTUDAGUR4 ● Geðhjálp Jón Gnarr borgarstjóri starfaði um árabil á geðheilbrigðissviði Reykjavíkurborgar áður en hann gekk yfir í grínheima og varð síðar borgarstjóri. Reglulega spretta upp þær sögusagnir að sjálfur sé hann ekki heill á geðsmunum en Jón kippir sér lítið upp við þær. Hann segir húmor gott tæki í baráttunni við fordóma og þakka megi starfi samtaka eins og Geðhjálpar að fordómar gagnvart geðfötluðum séu á undanhaldi. Ég frétti reglulega að búið sé að leggja mig inn á geð-deild. Ég hef verið sagður geðveikur allt mitt líf. Ég er hins vegar mjög „sane“ maður. Senni- lega einna mest „sane“ maður sem ég þekki,“ segir Jón. Hann er hins vegar hvorki ókunnugur geðsjúkdómum né því sem fram fer inni á geðdeild- um. Hann hefur starfað á öllum deildum geðheilbrigðissviðsins í Reykjavík og hóf störf einungis átján ára. Hann varð fljótt eftir- sóttur starfskraftur. „Ég vann við garðyrkju og hellulögn hjá borginni og meðal annars við geðdeild Borgarspítal- ans á Arnarholti á Kjalarnesi. Þar hjálpuðu vistmenn oft til við garðverkin og mér fannst strax heillandi að geta hengslast um með áhugaverðu fólki, sótti um og fékk vinnu á Arnarholti. Við tók ótrúlega áhugaverður og spenn- andi tími. Það vantaði tilfinnan- lega karla á vaktir við aðstæður þar sem fólk var talið ofbeldisfullt eða hættulegt sjálfu sér og næstu ár vann ég á Kleppi og á öllum geð- deildum Landspítalans. Sú deild sem togaði mest í mig var 33C, en þangað kom fólk með bæði fíkni- vanda og geðsjúkdóma.“ Útsendarar frá Rússlandi Jón var samviskusamur í vinnunni. Hann þótti hafa lag á fólki og náði oft að leysa úr erfið- um málum þar sem aðrir starfs- menn voru jafnvel komnir í þrot. En aðferðir Jóns voru ekki alltaf hefðbundnar. „Ég man eftir manni sem hélt að að útsendarar frá Rússlandi væru á leið til landsins til að dreifa al- næmi. Hann var mjög æstur og vansvefta og búið að loka hann inni í herbergi. Ég hlustaði á hann og tók undir það með honum að við yrðum að gera eitthvað í svo alvarlegu máli. Fór með hann fram og hringdi í félaga minn sem var á vakt á annarri deild og spurði hvort þetta væri hjá lögreglunni í Reykjavík, hvort þeir vissu af þessum Rússum á leið til lands- ins? „Já, ókei þið vitið af þeim. Og þeir verða handteknir? Allt í lagi,“ sagði ég í símann og lagði á. Maðurinn róaðist um leið og hann heyrði þetta.“ Voru þessar óhefðbundnu að- ferðir teknar góðar og gildar? „Ekki endilega, en þó af starfs- fólkinu á deildinni og sjúkling- unum, því þetta virkaði. Ég fékk einu sinni alvarlega áminningu frá stjórn spítalans. Ég var einn á vakt á gamlárskvöld og á mið- nætti fór ég með fólkið út á svalir til að horfa á flugeldana. Þá mundi ég eftir vindlum sem dagað höfðu uppi í lyfjaskáp, sótti þá og sló í gegn hjá hópnum, sem stóð undir flugeldasýningunni með tárin í augunum, drakk kaffi og reykti vindla. Með þessu braut ég reyk- ingabann spítalans, þetta var nán- ast brottrekstrarsök.“ Til skoðunar hjá sérfræðingum Jón segist alltaf hafa átt auðvelt með að sýna upplifun annarra á raunveruleikanum virðingu. Því hafi honum gengið vel í starfi sínu á geðdeild. Hann hafi einnig upp- lifað það sjálfur að „vera til skoð- unar hjá sérfræðingum“, eins og hann orðar það en hann var ekki talinn ganga heill til skógar sem barn. Jón var greindur með ADHD eftir að hann komst á fullorðinsár en fimm ára var hann lagður inn á barna- og unglingageðdeild Land- spítalans. „Ég var inni á BUGL í nokkurn tíma til skoðunar og meðferðar því það var talið að eitthvað væri að mér. Í raun var verið að meta hvort ég væri hæfur til að hefja skólagöngu. Niðurstaðan var sú að ég væri ekki geðveikur en hugsanlega heilaskaðaður. Það er þunn lína milli skapandi hugsun- ar og geðveiki og ekki að ástæðu- lausu að margir þekktustu ein- staklingar listasögunnar áttu við geðræn vandamál að stríða. Það má líka alltaf spyrja sig hvar þessi lína liggur. Hver ákvarðar hvað er normal? Fólk leitar gjarn- an yfirnáttúrulegra skýringa á hegðun einhvers í ójafnvægi en mín skoðun er sú að manneskjur eru líffræðilegar vélar. Allt sem við gerum og hugsum er afleið- ing rafboða og boðefna í heilan- um á okkur. En auðvitað er þetta ekki alveg klippt og skorið. Steinn Steinarr orðaði þetta vel þegar hann orti: „Það að sigra heiminn er eins og að spila á spil, með spekingslegum svip og taka í nefið. Og þótt þú tapir, það gerir ekk- ert til, því það er nefnilega vitlaust gefið.“ Og það er alltaf vitlaust gefið. Um það snýst þetta!“ Að halda sönsum sem borgarstjóri „Mín geðrækt er hálftíma göngu- túr kvölds og morgna og á meðan hlusta ég á hljóðbók. Þannig held ég sönsum í öllu havaríinu sem stundum gengur hér á í Ráðhús- inu. Stundum er ég frústreraður, boðefnin í heilanum þeytast fram og til baka og þá núllstilli ég mig með því að smella heyrnartólunum á mig. Ég er með ofvirkan heila og leik á hann með þessu. Heilinn í mér er fínn en hann er kraftmikill. Hann er eins og alþjóðaflugvöllur, stanslaus sirkus og flugeldasýning í gangi. Auðvitað er hann bara að reyna að standa sig svo ég nái ár- angri.“ Frábært starf Geðhjálpar Fordómar gagnvart geðsjúkdóm- um eru á undanhaldi í samfé- laginu, sem betur fer. Þar skiptir starf sjálfstætt starfandi samtaka eins Geðhjálpar miklu máli segir Jón og átakið Geðveik jól hafi til að mynda lyft grettistaki. Húmor sé gott tæki í baráttunni við fordóma. „Fagstéttum hættir nefnilega til að tala mjög alvarlega um alla sjúkdóma og af passasemi. Þar með verður allt svo klínískt og leiðinlegt. Mér finnst starf Geð- hjálpar algerlega frábært og ef ég væri alvaldur á geðheil brigðissviði myndi ég auka samvinnu ólíkra aðila, grasrótarsamtaka, aðstand- endasamtaka, spítalans og háskól- ans til dæmis. Það er þverpóli- tískur vilji fyrir því að mæta ólík- um þörfum ólíkra einstaklinga en það er miklu dýrara. Það er ein- faldara og ódýrara að setja bara alla í gegnum sama prógramm, eins og við gerum í skólakerfinu til dæmis. Við í meirihlutanum í Reykja- vík höfum lagt áherslu á að bæta þjónustu við konur með geðsjúk- dóma. Þá verður stærra húsnæði í staðinn fyrir Gistiskýlið tekið í notkun á næsta ári en fólk sem á við geðræn vandamál að stríða auk fíknivanda endar á götunni í vaxandi mæli. Fjárframlög til vel- ferðarmála hafa um það bil fjór- faldast hjá Reykjavíkurborg frá hruni eftir að úrræðum ríkisins í heilbrigðismálum fækkaði. Þetta er samfélagslegur vandi. Það er engin töfralausn til og alltaf hægt að gera betur.“ Frétti reglulega af mér á geðdeild Jón Gnarr borgarstjóri hefur verið sagður geðveikur allt sitt líf. Hann kippir sér lítið upp við þessar sögusagnir og lýsir sjálfum sér sem einum mest „sane“ manni sem hann þekki. MYND/GVA Við þökkum stuðninginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.