Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 42
10. OKTÓBER 2013 FIMMTUDAGUR2 ● Geðhjálp Útgefandi: Geðhjálp | Umsjónarmaður auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512-5432 | Ábyrgðarmaður: Anna Gunnhildur Ólafsdóttir Ég fæddist inn í flókinn og tilfinninga- þrunginn heim geðraskana og varð snemma meðvituð um dýptina og vídd- ina sem eru hluti af lífinu. Það er ekki auð- velt og það er óhjákvæmilegt að því fylgi djúpar lægðir og háar hæðir og alls kyns upplifanir þess á milli sem geta verið á skjön við skynjun annarra. Þá er brýnt að geta leitað skjóls. Það getur verið bæði huglægt og hlutlægt og stundum nægir vit- undin um að skilningur, samkennd og virð- ing sé til staðar. Þetta er það sem Geðhjálp felur í sér fyrir mér. Hanna Styrmisdóttir listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Hvað kallar Geðhjálp upp í huga þínum? Geðhjálp: Fólk – bara fólk. Fólk sem hjálp- ast að og hjálpar hvert öðru til að hjálpa sjálfu sér. Fólk sem talar saman, fólk sem talar upphátt og þorir að setja nafn á hið ómögulega og kennir síðan heilu samfélagi nýja hugsun og nýtt tungutak. Fólk sem umvafði hana mömmu mína og skildi bæði svartnættið hennar og ofbirtu annarra daga. Fólk sem gaf honum pabba mínum í fyrsta skipti orð til að nota og léði honum eyra til að tala sitt hjarta hreint. Einfald- lega fólk sem þekkir þann eld sem á sjálf- um brennur og getur þess vegna flutt fjöll og breytt heiminum. Margrét Pála Ólafsdóttir, stjórnarformaður Hjallastefnunnar. Hrannar segist mjög hrif- inn af svokölluðu bata módeli sem gerir ráð fyrir því að allir geti náð sér af geðröskun- um, meira að segja þeim allra alvarlegustu. „Það þýðir ekki endilega að öllum takist það en ég veit þó um fjölmörg dæmi þess.“ Hrannar segir líka mik- ilvægt að fólk stígi fram. „Að það viður kenni vandann, tak- ist á við hann og stígi fram. Það hjálpar öðrum í leiðinni. Ekkert er verra en að finn- ast maður standa einn í spor- um sem þessum. Fyrir mig var það samfélag og tjáning sem skipti sköpum. Að finna fólk sem hafði svipaða reynslu og ég og að geta tjáð mig um það í öruggu umhverfi.“ STENDUR Á TÍMAMÓTUM Geðhjálp stendur nú á allnokkr- um tímamótum. „Félagið er 34 ára og hefur gengið í gegn- um ýmis skeið. Nú erum við að endurskipuleggja og endur- skilgreina hlutverk félagsins. Við viljum fyrst og fremst vera hagsmuna- og mannréttinda- félag sem miðlar fræðslu og upplýsingum. Við viljum vera hlutlaus aðili sem getur verið gagnrýninn og haldið uppi vörn- um. Við ætlum hins vegar að draga úr öðrum þáttum. Liður í því er að loka mötuneytinu sem við höfum rekið um langt skeið. Margir aðrir eru farnir að sinna því hlutverki mjög vel og því ætlum við að nýta kraft- ana í annað. Sjálfshjálparhóp- arnir okkar hafa reynst afar vel. Við ætlum að fjölga þeim og efla starfsemina. Auk þess höfum við áhuga á að fjölga skipulögð- um viðburðum og koma á fót öfl- ugum alþjóðasamskiptum svo dæmi séu nefnd.“ FLUTNINGAR FRAM UNDAN Geðhjálp flytur í nýtt húsnæði 1. desember en búið er að sam- þykkja kauptilboð í hús samtak- anna að Túngötu 7. „Við höfum augastað á öðru húsnæði en það er þó ekki frágengið. Húsið að Tún- götu var orðið of stórt og óhentugt fyrir starfsemina. Þá voru skuldir félagsins orðnar dragbítur fyrir starfsemina. Við þurftum að losa okkur út úr þeim til að geta ein- beitt okkur að geðheilbrigðismál- unum sem eru okkar helsta hlut- verk.“ Þegar ég heyri orðið Geðhjálp þá finn ég fyrir þakklæti og um leið létti. Hver og ein einasta manneskja lendir einhvern tíma í að eiga í erfiðleikum með geð sitt. Og geðið er þeim eiginleikum gert að það sést ekki en það er svo sannarlega hægt að finna fyrir því og á stundum er eins og það starfi bara sjálfstætt og taki völdin af mönnum. Þá er fjandinn laus og gott að vita að það sé hægt að fá hjálp til að takast á við það. Fá hjálp, Geðhjálp. Það eitt og sér er ekk- ert smáræði og það er meðal annars fram- lagi þínu, sem þetta lest, að þakka. Hörður Torfason, leikstjóri og söngvaskáld. Orðið Geðhjálp eitt og sér er fallegt. Það er traust, vekur vonir. Orð sem gleður. Kynni mín af félaginu Geðhjálp eru jákvæð. Þar leitast menn við að greiða úr flækjum, draga fram það jákvæða, styrkja og horfa fram á veginn. Það er lofsvert. Án Geð- hjálpar væri umhverfið einfaldlega fátæk- legra. Kristín Steinsdóttir rithöfundur. Alþjóðlegi geðheilbrigðisdag- urinn er dagur geðheilbrigðis. Hann er dagur fólks með geð- raskanir, fólks í tímabundnum andlegum erfiðleikum og allra þeirra sem búa við gott geðheil- brigði. Geðheilsa er nefnilega ein af grunnstoðunum í lífi okkar allra. Hátíðarhöld í tilefni dagsins hefjast með ávarpi Jóns Gnarr borgarstjóra og skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju niður Skóla- vörðustíg að Hörpu kl. 16 í dag. Í framhaldi af því tekur við há- tíðardagskrá í Flóa í Hörpu kl. 17. Geðhjálp og aðrir skipuleggj- endur hátíðarinnar hvetja fólk til að taka þátt í hátíðarhöldunum og nýta tækifærið til að kynna sér ýmis úrræði í tengslum við geð- raskanir og geðrækt á meðan á há- tíðardagskránni í Hörpu stendur. Í viðtali við Hrannar Jóns- son, formann Geðhjálpar, í Geðhjálpar blaðinu kemur fram að Geðhjálp stendur á tímamót- um. Félagið hefur ákveðið að hætta beinni þjónustu eins og rekstri mötuneytis og félags- heimilis og beina óskiptum kröft- um sínum að hagsmunabaráttu, réttindagæslu, geðrækt og bar- áttu gegn fordómum og mismun- un í garð fólks með geðraskanir. Því miður eru fordómar og mis- munun í garð fólks með geðrask- anir enn áberandi í samfélaginu. Ekki hafa allir jafn næman skiln- ing á geðröskunum og Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík. Jón býr að langri reynslu af því að starfa með fólki með geðraskanir og minnir meðal annars á hve hárfín línan er milli skapandi hugsunar og geðröskunar og því sé ekki að undra að margir þekktustu ein- staklingar sögunnar hafi átt við geðræn vandamál að stríða. Svo má alltaf spyrja sig: Hver ákvarðar hvað er „eðlilegt“? Eins og Jón Gnarr gerir í viðtalinu. Því þegar öllu er á botninn hvolft erum við auðvitað öll eðlileg á okkar eigin einstaka hátt. Njótið dagsins. Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Innilega til hamingju með 10. október, Alþjóða geðheilbrigðisdaginn Geðhjálp flytur í nýtt húsnæði 1. desember en búið er að samþykkja kauptilboð í hús samtakanna að Túngötu 7. Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.