Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 88
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 64 KÖRFUBOLTI Dominos-deild karla fer aftur af stað í kvöld með þremur leikjum en KR-ingum er spáð Íslandsmeistaratitlinum af fyrirliðum, þjálfurum og forráðamönnum félaganna fyrir tímabilið. Íslandsmeisturum síðustu tveggja ára, Grindavík, er aðeins spáð fimmta sætinu í deildinni. Stjarnan hafnar í sjötta sæti deildarinnar ef marka má spána. Grindavík og Stjarnan mættust í fimm leikja einvígi um Íslandsmeistaratitilinn. „Við erum bara spenntir fyrir þessu tímabili,“ segir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR. KR-ingar hafa styrkt hópinn mikið fyrir komandi átök en þeir Pavel Ermolinskij, Darri Hilmarsson og Magni Hafsteinsson verða allir í eldlínunni með KR í vetur. „Við náðum okkur aldrei almennilega á strik á síðasta tímabili og erum staðráðnir í því að gera betur að þessu sinni.“ KR-ingar mæta Grindvíkingum í fyrstu umferð í Röstinni í kvöld. „Við lukum keppni gegn Grindavík á síðasta tímabili og við fáum alvöru próf strax í fyrsta leik. Þessi spá er í raun mikið í takt við okkar væntingar. Það er hluti af þessu að fá pressu á sig sem KR-ingur og við ætlum okkur alla leið í vetur.“ Stjarnan hafnar í sjötta sæti deildarinnar ef marka má spána en Grindavík og Stjarnan mættust í fimm leikja einvígi um Íslandsmeistaratitilinn á síðasta tímabili. „Þessi spá er svona nokkurn veginn í takt við það sem maður hafði hugsað sér,“ segir Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar. „Við hefðum alveg verið til í það að vera komnir aðeins lengra með okkar leik á þessum tímapunkti. Leikmenn liðsins hafa verið að ganga í gegnum þó nokkur meiðsli á undirbúningstímabilinu. Við ætum okkur samt sem áður að vera klárir í fyrsta þegar Keflvíkingar koma í heimsókn.“ Viðureignir Stjörnunnar og Keflavíkur hafa verið magnaðar síðustu ár og ávallt barist til síðasta blóðdropa. - sáp BALLIÐ AÐ BYRJA Dominos-deildin fer á fullt á ný í kvöld með þremur leikjum. KR-ingum er spáð Íslandsmeistaratitlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Íslandsmeistaraefnin fara af stað Dominos-deild karla í körfuknattleik hefst í kvöld. Risaslagur í Röstinni. Domino's-deildin í körfubolta hefst með látum þegar KR-ingar mæta Íslandsmeisturunum frá Grindavík í Röstinni. Það verður spennandi að sjá hvernig þessi tvö frábæru lið koma undan sumri. Ekki missa af fjörinu á Stöð 2 Sport! Domino’s-deildin Fáðu þér áskrift 512 5100 stod2.is BIÐIN ER LOKS Á ENDA! Grindavík–KR í kvöld kl. 19:00 FÓTBOLTI Þór/KA mætti rúss- neska liðinu FC Zorkiy í Meist- aradeildinni í gær og mátti sætta sig við tap, 1-2, á heimavelli. Þetta var fyrri leikur liðanna í 32-liða úrslitum keppninnar. Það var Húsvíkingurinn Hafrún Olgeirsdóttir sem skoraði mark Þórs/KA undir lok leiksins. „Þetta er vel smurt og agað atvinnumannalið sem er þokkalegt í fót- bolta. Ég átti von á meira afgerandi leikmönnum hjá þeim sem myndu brjóta þetta meira upp og hreinlega slátra okkur í stöðunni 2-0 en það gerðist ekki. Þvert á móti kom mér kannski aðeins á óvart að þær skyldu leyfa okkur að sækja svona mikið í seinni hálfleik undan golunni,“ sagði Jóhann Kristinn Gunn- arsson, þjálfari Þórs/ KA, eftir leik og bætti svo við að baráttunni væri langt frá því að vera lokið. Liðið ætti góða möguleika í seinni leiknum með öguðum varnarleik og skynsömum bolta. - jsj Þór/KA tapaði í Meistaradeildinni SPORT FÓTBOLTI „Ég er mjög þakklát- ur fyrir það traust sem Framar- ar sýna mér með að leyfa mér að taka við liðinu. Ég er ekki alveg reynslulaus þó að ég hafi ekki þjálfað áður. Ég hef verið með þjálfara í ansi mörg ár og lært gott af sumum og hef svo slæma reynslu af öðrum. Það ætti að nýt- ast mér í starfinu,“ segir Bjarni Guðjónsson, sem skrifaði í gær undir þriggja ára samning sem nýr þjálfari Fram. Bjarni kveður KR-liðið nýbúið að lyfta Íslandsbikarnum í annað skiptið á þremur árum og hafa tekið á móti fjórum bikurum frá 2011. „Það er hvort tveggja mjög erfitt, að fara frá liði eins og KR og svo að hætta sem leikmaður. En tækifærið að þjálfa lið eins og Fram gerir þessa ákvörðun mun léttari,“ segir Bjarni. Hann segir að fókusinn verði á þjálfunina en er þó ekki tilbúinn að gefa það end- anlega út að skórnir séu komnir upp á hillu. Léleg lið verða ekki meistarar „Fram er bikarmeistari og það verða ekki léleg lið meistarar. Það er alveg á hreinu. Það verða ein- hverjar breytingar á hópnum og við þurfum að sjá hvernig enda- lokin á því verða og hvaða mann- skap við erum með,“ segir Bjarni. Hann var fyrr í haust búinn að neita því að fara út í þjálfa en ákvað svo í samráði við sjúkra- þjálfara og lækni að skrokkurinn væri kominn á endastöð. Það gerð- ist síðan mjög hratt að hann tók við Fram. „Við vorum búnir að viðra þetta við þrjá aðra og það fór ekkert lengra. Eftir að við töluðum við Bjarna þá gekk þetta mjög hratt fyrir sig. Við vorum að ræða flór- una og um það hvort að það væru einhverjir nýir spennandi þjálfar- ar á ferðinni,“ segir Sverrir Ein- arsson, formaður knattspyrnu- deildar Fram, um hvernig þeim datt í hug að tala við Bjarna. „Ég hringdi í hann á sunnu- dagskvöldið og þetta var klár- að í dag. Ég sé mikinn foringja og mikinn leiðtoga. Hann hefur mikla fótboltaþekkingu og þegar hann ræddi við okkur um hvern- ig hann sá þetta fyrir sér þá fór það mjög vel við okkar hugmynd- ir,“ segir Sverrir sem er óhræddur að henda mönnum út í djúpu laug- ina því Ríkharður Daðason hafði enga reynslu þegar hann réði hann í sumar. „Þetta hefur haft skamman aðdraganda og ég hef ekki náð að kynna mér leikmannamálin alveg eins og ég hefði viljað. Í lið- inu er fullt af úrvalsleikmönnum og gallhörðum Framörum sem er mjög gott að hafa. Liðið var mjög vel mannað í sumar og oft á tíðum betur mannað en það spilaði. Liðið varð samt bikarmeistari og það vantaði hugsanlega bara örlítinn stöðugleika. Það verða einhverj- ar breytingar á hópnum en hverj- ar þær verða nákvæmlega verður að koma í ljós á næstu dögum og vikum,“ segir Bjarni. Þjálfarinn Bjarni hefur verið lengi að gerjast. „Það hefur kannski verið svona í kringum fimm ára aldurinn sem mig langaði fyrst að verða þjálf- ari,“ sagði Bjarni í léttum tón. „Ég hef sagt það á seinni árum að það þarf tvo til. Eitt er að ég ákveði að verða þjálfari, en það þarf ein- hver að vilja hafa mig sem þjálfara á móti. Ég er mjög ánægður með að það hafi verið Fram í fyrstu atrennu. Ég er mjög stoltur af því og þakklátur fyrir traustið sem mér er sýnt,“ segir Bjarni. Hann á sér fyrirmynd Guðjón Þórðarson, faðir Bjarna, var aðeins 32 ára gamall þegar hann tók við ÍA-liðinu fyrst árið 1987 en Bjarni var þá bara átta ára gamall. Tveimur árum síðar gerði Guðjón KA að Íslandsmeisturum. „Ég þarf að byggja minn eigin feril og það hjálpar mér lítið hvað hann hefur gert. Ég hef fengið að fylgjast náið með honum þessi ár sem hann var að þjálfa og það hjálpar mér eitthvað. Ég þarf fyrst og fremst að standa á eigin fótum og það hjálpar mér lítið sem hann gerði,“ segir Bjarni. „Ég held að hann geti auðveld- lega stigið þetta skref. Hann á nú fyrirmynd í því þegar karlinn pabbi hans hætti sem leikmaður og varð einn farsælasti þjálfari sem við höfum átt,“ segir Sverrir og brosir. ooj@frettabladid.is Ég sé mikinn foringja Framarar sömdu í gær við fyrirliða Íslandsmeistara KR því hinn 34 ára gamli Bjarni Guðjónsson ætlar að söðla um og skella sér út í þjálfun. Bjarni segir sig hafa langað til að þjálfa síðan að hann var fi mm ára gamall. MÆTTUR Í SAFAMÝRINA Það mun örugglega taka menn nokkurn tíma að venjast því að sjá Bjarna Guðjónsson merktan Fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.