Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 10
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
IÐNAÐUR Líklegt er talið að met hafi
verið slegið í lagningu rafmagns-
sæstrengs þegar á einu ári tókst að
leggja nýjan streng til Vestmanna-
eyja. Ragnheiður Elín Árnadótt-
ir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
hleypti spennu á strenginn í Eyjum
í gær. Fram kom í máli Þórðar Guð-
mundssonar, forstjóra Landsnets,
við þetta tilefni, að alla jafna tæki
undirbúningur slíks verkefnis tvö
til þrjú ár.
Nýi strengurinn leysir af hólmi
Vestmannaeyjastreng 2 sem orðinn
var illa farinn og ótraustur. Streng-
ur 3 fylgir að mestu sömu leið og
strengur 1. Hann er tæplega þrettán
kílómetra langur og tengist spenni-
virkjum Landsnets á Landeyjasandi
og í Eyjum með þriggja og hálfs og
eins kílómetra jarðstrengjum.
Nýi strengurinn, sem kemur
frá ABB í Svíþjóð, er sérstaklega
styrktur til að forðast viðlíka slit og
plagað hefur forvera hans. Við það
eykst þyngd hans og umfang nokk-
uð. Einn metri af streng er um 41
kíló og má því gefa sér að strengur-
inn í sjó vegi yfir 500 tonn og tæp
700 tonn með strengjum í jörð.
Til að byrja með er Vestmanna-
eyjastrengur 3 rekinn á 33 kíló-
volta spennu en hann er gerður
fyrir allt að 66 kílóvolta spennu
sem gefur möguleika á enn meiri
raforkuflutningi í framtíðinni.
Samkvæmt upplýsingum Lands-
nets hefur heildarkostnaður við
verkefnið numið um 1,6 milljörð-
um króna.
Fram kom í máli forstjóra Lands-
nets við athöfnina í gær að þörf
væri fyrir enn annan sæstreng
til Eyja innan næsta áratugar og
að undirbúningur þess verkefnis
væri þegar hafinn. Með lagningu
þessa strengs væri hins vegar búið
að tryggja orkuöryggi Vestmanna-
eyja til næstu framtíðar.
„Strengurinn gerir sjávarút-
vegsfyrirtækjum hér í Eyjum
mögulegt að leggja af olíunotkun
sína sem nemur um sex til átta
þúsund tonnum á ári,“ sagði Þórð-
ur. Sparnaður vegna minni olíuinn-
flutnings sagði hann að gæti numið
um einum milljarði króna á ári.
„Enn fremur mun notkun raf-
orku í stað olíu draga verulega úr
losun gróðurhúsalofttegunda, svo
hér er einnig tekið mikilvægt skref
í umhverfismálum,“ bætti hann
við. olikr@frettabladid.is
SPENNA KOMIN Á Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hleypti
spennu á nýja sæstrenginn. Elliði Vigfússon, bæjarstjóri í Eyjum, Þórður Guðmundsson,
forstjóri Landsnets, og aðrir gestir klappa að verki loknu. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
Nýr sæstrengur til
Eyja tekinn í gagnið
Iðnaðarráðherra segist í störfum sínum munu leggja höfuðáherslu á uppbyggingu
raforkukerfisins. Leggja þarf streng til viðbótar til Vestmannaeyja innan áratugar.
„Afhendingaröryggi raforku er ein af undirstöðunum í orkumálum Íslands,“
sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, eftir að hún
hleypti spennu á nýjan sæstreng til Vestmannaeyja í gær. „Mun ég í vetur
gera það að einu af mínum aðalmálum bæði í þinginu og í ráðuneytinu.“
Ragnheiður Elín sagði vitað mál að flutningskerfi Landsnets færðist
stöðugt nær mörkum þess sem það gæti með góðu móti annað. Ljóst væri
að á allra næstu árum þyrfti að bæta kerfið til að leysa takmarkanir sem við
væri að fást og til að anna áætluðum vexti í raforkunotkun. Í þessum efnum
þyrfti að huga sérstaklega að jaðarsvæðum. „Að öðrum kosti er tómt mál að
tala um átak í atvinnuuppbyggingu eða nýfjárfestingar á slíkum svæðum. Í
augum uppi liggur að byggðamál og orkumál eru nátengd.“
Vill að flutningskerfi raforku verði eflt
Opinn fundur
Bráðnun jökla og hækkun
sjávarborðs
D
av
id
V
au
gh
an
Stjórnendur og íslenskir þátttakendur kynna niðurstöður
Evrópuverkefnisins ice2sea og ræða um áhrif loftslags
á jökla og hækkun sjávarborðs í Hátíðasal Háskóla Íslands
11. október kl. 12–13.
Dagskrá:
12.00 – Ari Trausti Guðmundsson setur fundinn.
12.05 – Stjórnandi ice2sea, David Vaughan, British Antarctic Survey,
k kynnir niðurstöður verkefnisins.
12.20 – Guðfinna Aðalgeirsdóttir, dósent í jöklafræði við Háskóla Íslands,
flytur erindið „ice2sea og svæðisbundnar breytingar á sjávarborði“.
12.30 – Helgi Björnsson, vísindamaður emeritus við Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands, flytur erindið „Jöklabreytingar á Íslandi frá
lokum 19. aldar“.
12.40 – Pallborðsumræður undir stjórn Ara Trausta Guðmundssonar.
13.00 – Fundarlok.
PIPA
R
\
W
A
TB
SÍA
1328
33
G
uð
fin
na
A
ða
lg
ei
rs
dó
tt
ir
H
el
gi
B
jö
rn
ss
on
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
9
3
9
4