Fréttablaðið - 10.10.2013, Síða 32
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 32
Landspítalinn á yfirleitt
fáa vini á stjórnmála-
sviðinu. Það þekki ég frá
þeim tíma þegar ég fyrir
margt löngu var heil-
brigðisráðherra. Reyndi
aftur og aftur að gera til-
lögur um fjárveitingar til
spítalans til Alþingis. Það
voru stundum myndar-
legar tölur í fjárlaga-
frumvarpinu en voru
ævinlega skornar niður.
Peningarnir voru þó ekki
teknir af heilbrigðiskerf-
inu heldur voru þeir fluttir til
annarra sjúkrahúsa sem
áttu vini. Sjúkrahúsa úti
á landi og Borgarspítal-
ans og Landakotsspítal-
ans sem áttu vini þó þeir
væru í Reykjavík. Samt
tókst að halda Landspít-
alanum við og vel það.
Landspítali – háskóla-
sjúkrahús varð seinna
til úr þremur spítölum í
Reykjavík.
Þá var ljós fram undan
Þegar afleiðingar hinnar
villtu frjálshyggju lögðust yfir
land og þjóð í hruninu þá hlaut
heilbrigðiskerfið og Landspít-
alinn líka að finna fyrir því.
Starfsfólkið lagði líf sitt í verk-
efnin og sjúklingarnir treystu
spítalanum fyrir lífi sínu. Það
sem bjargaði málum var dug-
legt starfsfólk, fórnfús for-
ysta og skilningur þjóðarinnar,
sjúklinganna og aðstandenda
þeirra. En það var líka ljós
fram undan: Það átti að byggja
nýjan Landspítala. Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra
og Álfheiður Ingadóttir heil-
brigðisráðherra höfðu kjark
til að taka utan um verkið og
sjá: Fyrir liggja tillögur um
endurreisn sjúkrahússins, til-
lögur sem kosta um 45 miljarða
króna. Og það sem meira var:
Það lá einnig fyrir að unnt var
að fjármagna verkið með fjár-
magni úr lífeyrissjóðunum. Það
fjármagn átti að taka að láni
en sparnaðurinn í rekstri hefði
borgað lántökukostnaðinn eins
og Björn Zoëga, fráfarandi for-
stjóri spítalans, benti á í viðtöl-
um fyrir helgina. Þannig hefði
mátt dreifa þessum fjárfesting-
arkostnaði á tíu til tuttugu ár!
Skuggi leggst yfir Landspítalann
En þá steig úrtölukórinn fram
á sviðið: Greinar um hvað þetta
væri dýrt birtust í þeim fáu blöð-
um sem eftir eru, heilu kastljós-
in og silfrin voru undirlögð af
úrtölumönnum og við sem erum
stuðningsmenn Landspítalans
vorum ekki nógu dugleg að verj-
ast. Þegar kom að kosningum lá
tvennt fyrir: Talsmenn stjórnar-
andstöðuflokkanna töluðu flestir
illa um Landspítalann og margt
var reynt til að gera verkefnið
tortryggilegt. Sumir stjórnar-
þingmenn fyrrverandi stjórnar
voru heldur lufsulegir í þessu
máli eins og öðrum. Ekki bætti
það svo úr skák eftir kosning-
arnar að talsmenn Landspítal-
ans voru uppteknir af öðru, því
að læknarnir væru að fara og að
það yrði að loka deildum spítal-
ans af því að enginn vildi vinna
þar lengur. Skuggi dáðleysis og
kjarkleysis lagðist yfir Land-
spítalann. Ný ríkisstjórn tók við.
Hún sá enga lausn aðra en að
létta sköttum af auðmönnum, að
skera meira niður til Landspít-
alans, að hætta við byggingar-
áformin og að einkavæða heil-
brigðiskerfið.
Bjartsýnisáætlun
Þegar ég gegndi starfi heilbrigð-
isráðherra áttaði ég mig á því
sem áður segir að spítalinn átti
ekki vini á Alþingi. Það áttu allir
aðrir spítalar. Líka spítalinn
sem var byggður upp með hraði
og vantaði svo „bara“ sjúklinga
að lokum. Af þessu tilefni gerði
ég tillögu til Alþingis um að
breyta lögum um heilbrigðis-
þjónustu þannig að Alþingi kysi
þrjá menn inn í stjórn Ríkis-
spítalanna eins og stofnunin hét
þá. Það hafði áhrif. Allt í einu
átti Landspítalinn talsmenn á
Alþingi bæði í stjórnarliði og
í stjórnarandstöðu. En þetta
fyrirkomulag var afnumið og
það varð Landspítalanum dýrt.
Nú þarf að hefja nýja baráttu
fyrir Landspítalann. Bjartsýnis-
áætlun Landspítalans þarf að
verða til. Sú áætlun þarf að ná
til sjúklinganna og aðstand-
endanna, til starfsmannanna,
kjara þeira og starfsaðstæðna,
og til framtíðar. Það á að hefj-
ast handa við að byggja nýjan
Landspítala – ekki seinna en nú
þegar.
Ég var svo heppinn á síðasta
ári að fá að kynnast Landspít-
alanum. Það er ekki endilega
heppni að þurfa að fara þangað
inn en það er heppni að fá að
skilja aðstæður þessarar stofn-
unar. Það gerir mig og aðra
betur færa um að hafa skoðun
á þessari stofnun og þörfum
hennar. Þegar ég sat í stjórnar-
nefnd Ríkisspítalanna og var
heilbrigðisráðherra samtals í
nærri áratug kynntist ég spítal-
anum vel og vandamálum hans. Í
fyrra kynntist ég honum aðeins
innan frá. Það var mikilvæg lífs-
reynsla. Nú þurfa allir þeir sem
eiga Landspítalanum líf að launa
að taka sig saman og standa með
spítalanum. Landspítalinn er
reyndar ekki bara heilbrigðis-
mál. Þjóð sem ekki á gott stofn-
sjúkrahús stendur ekki undir því
að geta heitið fullvalda þjóð.
Gerum bjartsýnisáætlun fyrir Landspítalann
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Svavar
Gestsson
fv. heilbrigðis-
ráðherra
➜ Nú þarf að hefja nýja
baráttu fyrir Landspítalann.
Bjartsýnisáætlun Land-
spítalans þarf að verða til.
Sú áætlun þarf að ná til
sjúklinganna og aðstand-
endanna, til starfsmann-
anna, kjara þeira og starfs-
aðstæðna, og til framtíðar.