Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 4
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 DÓMSMÁL Sérstakur saksóknari dró á mánudag til baka ákæru á hendur Erlendi Magnússyni, fyrr- verandi framkvæmdastjóra hjá Glitni, fyrir tíu milljóna króna inn- herjasvik þegar hann seldi bréf í bankanum í febrúar og mars 2008. „Maður getur núna farið að ein- beita sér að einhverju uppbyggi- legra og skemmtilegra,“ segir Erlendur, sem kveðst feginn yfir málalyktunum. Fjármálaeftirlitið kærði málið til sérstaks saksóknara í vor, sem skoðaði málið og felldi það í kjöl- farið niður. Fjármálaeftirlitið var ósátt við það og kærði niðurfell- inguna til Ríkissaksóknara, sem gerði Sérstökum saksóknara að gefa út ákæru í málinu. „Þetta snerist um það á endanum að ákvörðun Ríkissaksóknara um að höfða málið að nýju var tekin of seint,“ segir Björn Þorvaldsson hjá Sérstökum saksóknara. Erlendur segist alltaf hafa verið sannfærður um sakleysi sitt og segir málið hafa haft mikil áhrif á sig. „Ég hef þurft að draga mig út úr verkefnum og minnka mína hlut- deild í ýmsu.“ Sem betur fer hafi hann ekki sætt ákæru lengi. „En það verður samt eitthvert tjón sem maður verður að sætta sig við.“ Og hann segist líklega ekki ætla að leita réttar síns, enda telji hann að það mundi ekki skila miklu. „Hefnd er ekki ofarlega í mínum huga. Ég ákvað þegar ég lenti í þessari stöðu að láta ekki þær slæmu kenndir reiði og hefnd ná tökum á mér.“ - sh Innherjasvikaákæra gegn Erlendi Magnússyni dregin til baka eftir að Ríkissaksóknari féll á tíma: „Hefnd er ekki ofarlega í mínum huga“ ÓSÁTTUR Erlendur er ósáttur við aðkomu Fjármálaeftirlitsins að því að málið gegn honum fór aftur af stað í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SKIPULAGSMÁL „Mín skoðun er sú að það hefði verið best að viður- kenna mistök og engin skömm að því,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Umhverfis- og skipulagsráð sam- þykkti í gær breytingar á Hofs- vallagötu. Sjálfstæðismenn sátu hjá. Umdeild flögg og eyjur verða fjarlægð verði málið samþykkt í borgarstjórn en hart hefur verið tekist á um götuna eftir umdeildar breytingar. Fundur var h a ld i n n með óánægðum íbúum í hverfinu í lok ágúst. Þar kom fram hörð gagn- rýni á hendur borgarfulltrúum vegna samráðs- leysis. Júlíus Vífill segir að með samþykktinni í ráðinu í gær felist viðurkenning á því að ekki hafi verið staðið rétt að málum. Hann gagnrýnir hins vegar að þetta sé í fyrsta skiptið sem málið rati fyrir umhverfis- og skipulagsráð. „Það er eiginlega bara mjög furðulegt að ekki hafi verið kallað fyrr til fundar um málið,“ segir Júl- íus Vífill. Spurður hvort hann sé sáttur við breytingarnar segir Júlíus Vífill að hann hefði viljað ganga lengra. Þrátt fyrir að flöggin og eyj- urnar verði fjarlægð verða áfram hjólastígar báðum megin á götunni auk þess sem enn verður aðeins ein akrein. Júlíus Vífill gagnrýnir að ekki skuli vera tvær akreinar við gatnamót Hringbrautar. „Og ég hefði viljað fá útskot fyrir strætó, þannig hann stoppi ekki alla umferð þegar farþegum er hleypt út. Það skapar oft óþarfa hættu,“ segir Júlíus Vífill. Kristinn Fannar Pálsson, verk- fræðingur og íbúi í hverfinu, er einn þeirra sem mættu á íbúafund- inn og gagnrýndu framkvæmdirn- ar harðlega; meðal annars í viðtali á visir.is. „Við erum mjög ósátt við hjóla- stígana nærri ljósunum,“ segir Kristinn Fannar og útskýrir að það hafi verið vilji íbúa að hjólastígur- inn færðist upp á stétt nærri ljósun- um þannig það væri hægt að nýta tvær akreinar, við gatnamót Hring- brautar. Að öðru leyti kveðst Kristinn sátt- ur við breytingarnar. „Við erum að sjálfsögðu ánægð með að það sé hlustað á okkur,“ segir Kristinn sem vonast til þess að nú verði lagst í að laga götuna „almennilega“ og í sátt og samlyndi við íbúa hverfisins. valur@frettabladid.is Flögg og eyjur hverfa af Hofsvallagötunni Samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði að fjarlægja flögg og eyjur sem eru á Hofsvallagötu. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segir að viðurkenna hefði átt mis- tök. Ósáttur íbúi segir að ganga hefði átt lengra og tvöfalda akreinar nærri ljósum. HOFSVALLA- GATA Starfs- menn borgar- innar athafna sig á Hofsvalla- götunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON Framkvæmdir við Hofsvallagötu hafa kostað Reykjavíkurborg tæpar 18 milljónir króna. Það sem fellur undir þennan kostnað er meðal annars kostnaður vegna hönnunarinnar sem var 680 þúsund krónur, kostnaður vegna flagga og fuglahúsa var rúmar þrjár milljónir króna en samkvæmt upplýsingum frá borginni fellur kostnaður vegna allra staura sem settir voru upp við götuna undir þann kostnaðarlið. Kostnaður borgarinnar við sérfræðivinnu verktaka var 200 þúsund og bekkirnir kostuðu 180 þúsund krónur. Gróðurkassarnir kostuðu rúmar tvær milljónir króna. Breytingarnar kostuðu 18 milljónir LEIÐRÉTTING Í fyrirsögn aðsendrar greinar Ögmund- ar Jónassonar í Fréttablaðinu í gær hafði orðið arkitektar verið ritað í stað orðsins verktakar. Rétt er fyrirsögnin svona: „Skattheimta og skipulagsvald til verktaka“. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. 96,7% Íslendinga notuðu tölvu einu sinni eða oftar á þriggja mánaða tímabili árið 2012. Nær allir, alls 96,2 prósent lands- manna, tengdust netinu. Hlutfallið hefur hækkað frá 2007 þegar 91 prósent notaði tölvu og 90 prósent netið. Heimild: Hagstofa Íslands HEILBRIGÐISMÁL Stjórn og kjara- nefnd Félags sjúkraþjálfara mót- mæla þeirri fyrirætlun ríkis- stjórnarinnar sem kemur fram í fjárlagafrumvarpinu að draga enn frekar úr útgjöldum sjúkratrygg- inga til sjúkraþjálfunar. „Á síðustu fimm árum hefur kostnaðarhlut- deild skjólstæðinga sjúkraþjálfun- ar aukist að meðaltali um 33 pró- sent en á meðan hefur verðskrá sjúkraþjálfara ekkert hækkað,“ segir Unnur Pétursdóttir, formað- ur Félags sjúkraþjálfara. „Að auki fær fólk í dag að hámarki tuttugu tíma niðurgreidda hjá sjúkraþjálfara, eftir það þarf það að borga allt gjaldið sjálft,“ segir Unnur. - ebg Ósáttir við fjárlagafrumvarp Skorið niður til sjúkraþjálfunar STJÓRNMÁL Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík mót- mælir harðlega ætlun ríkis- stjórnarinnar að leggja 1.200 króna gjald á þá sem leggjast inn á Landspítalann og aðrar sjúkra- stofnanir. Telur nefndin gjald- ið bitna á öldruðum og skorar á stjórnvöld að falla frá því. Þegar séu komugjöld og aðrir sjúklinga- skattar of háir. Jafnframt harmar nefndin að í fjármálafrumvarpinu sé ekki gert ráð fyrir leiðréttingu lífeyris aldr- aðra og öryrkja, sem orðið hafa fyrir kjaragliðnun á krepputíman- um. Standa þurfi við gefin loforð og hækka þurfi lífeyri um tuttugu prósent til leiðréttingar. - skó Áskorun frá eldri borgurum: Fallið verði frá sjúklingagjaldi LAUNAMÁL Formaður VR segir ábyrgð vegna ofgreiddra launa liggja hjá Bauhaus, þar sem það hafi ekki verið leiðrétt strax. Að ekki gangi að krefja starfsfólk um ofgreidd laun ári síðar. Bauhaus hefur sent mörgum núverandi og fyrrverandi starfs- mönnum kröfu um endurgreiðslu á launum frá því í apríl til júlí 2012. VR óskaði eftir lista yfir starfsmenn fyrirtækisins en því var hafnað og í gær höfðu þrjátíu manns leitað til VR vegna málsins. - jjk, skó 30 manns höfðu samband: Bauhaus ber ábyrgðina UNGMENNI Á Íslandi vinna 52 prósent fólks á aldrinum 15-19 ára og er það mest meðal Norður- landanna. Í Danmörku vinna 44 prósent ungmenna, í Noregi 35 pró- sent, í Finnlandi 24% en einungis sextán prósent vinna í Svíþjóð. Meðal þess sem kemur fram í skýrslu um vinnuaðstöðu ungs fólks er að ungmenni eru gjarn- an í láglaunastörfum sem krefjast engrar kunnáttu eða þekkingar og vinnutíminn er oft óreglulegur. Einnig að ungt fólk sé líklegra til að lenda í vinnuslysum. - skó Líklegri til að lenda í slysum: Ungt íslenskt fólk vinnusamt TELJA GJÖLD ÞEGAR OF HÁ Kjara- nefnd félags eldri borgara ályktar AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur Strekkingur allra vestast en annars hægari. MILDIR DAGAR eru fram undan en nokkuð vindasamir vestanlands. Dálítil úrkoma verður sunnan og vestan til en bjart með köflum norðan- og austanlands. Á sunnudaginn lítur út fyrir hægviðri og nokkuð bjart veður um allt land. 8° 18 m/s 8° 15 m/s 8° 7 m/s 9° 8 m/s Á morgun Strekkingur eða allhvasst allra vestast en annars hægari. Gildistími korta er um hádegi 9° 9° 8° 8° 8° Alicante Aþena Basel 26° 26° 17° Berlín Billund Frankfurt 13° 12° 13° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 10° 12° 12° Las Palmas London Mallorca 26° 12° 26° New York Orlando Ósló 17° 29° 10° París San Francisco Stokkhólmur 13° 18° 13° 6° 4 m/s 7° 5 m/s 8° 4 m/s 6° 6 m/s 8° 10 m/s 7° 10 m/s 1° 11 m/s 10° 9° 9° 11° 9°
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.