Fréttablaðið - 10.10.2013, Qupperneq 12
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | AVIÐTAL | 12
YOKO ONO ER HEIÐURSBORGARI REYKJAVÍKUR
María Lilja
Þrastardóttir
maria@frettabladid.is
MYNDARLEGUR
www.landrover.is
NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4
VERÐ FRÁ 10.990.000 KR.
Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins
8,3 l/100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun
á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
8
7
5
8
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
Yoko Ono er stödd hér á landi í sinni árlegu
heimsókn til þess að tendra Friðarsúluna í
Viðey. Það gerir hún á afmælisdegi Johns
heitins Lennon. Hún segist elska Ísland og
þrátt fyrir að Íslendingar þrefi innbyrðis
um málefni ríki hér vandfundinn friður.
Áfall að vera heiðruð
Yoko tók jafnframt á móti verðlaunum sem
heiðursborgari Reykjavíkur við hátíðlega
athöfn í gær. Hún segir sér hafa brugðið
við að hlotnast þessi mikli heiður en að það
muni veita sér styrk til þess að halda áfram
að berjast fyrir friðsælli heimi.
„Ég fékk hálfpartinn áfall þegar ég fékk
fréttirnar af verðlaununum,“ útskýrir Yoko
fyrir mér á meðan við komum okkur fyrir í
uppstilltu stúdíói á hótel Nordica.
Með frú Yoko er heilmikið fylgdarlið sem
sá til þess að allt gengi að óskum, allir fjöl-
miðlar fengju sinn tíma.
Þrátt fyrir allt tilstandið er viðmót Ono
hlýtt og manneskjulegt. „Mér finnst hárið
þitt fallegt, þið Íslendingar eruð falleg þjóð,“
segir hún og brosir.
Auglýsingaskilti fyrir Ísland
Yoko Ono segist stolt af Friðarsúlunni og
því umtali sem hún hefur komið af stað.
„Þegar ég ferðast um heiminn þá fer ég
yfirleitt í viðtöl um hin ýmsu mál. Næstum
allir sem ég tala við spyrja mig um Frið-
arsúluna í Viðey. Svo það má segja að ég
sé orðin að gangandi auglýsingaskilti fyrir
hið friðsama og fallega Ísland,“ segir Ono,
hlær og bætir við að sér þyki vænt um hlut-
verkið.
„Það skiptir mig miklu máli að hafa
vakið jákvæða athygli á landinu annars
staðar í heiminum.
Ég hefði líka aldrei komið með Friðar-
súluna til lands sem stæði í stríði, eða þar
sem alvarlegt misrétti og ófriður þrífst. Á
Íslandi svífur andi friðar yfir vötnum og
mig langar til að hingað geti aðrar þjóð-
ir litið og séð að friður er raunverulegur
möguleiki.“
Aktívistar í hverju horni
Talið berst að þeim átökum sem eiga sér
stað hér á landi, pólitískum og á sviði jafn-
réttismála. Yoko segir það vera smámuni í
hinu stóra samhengi hlutanna. Allar þjóðir
þrefi innbyrðis. Það sé eðlilegt og krafa um
að allir séu sammála og samstíga sé óraun-
hæf.
„Ég sé sjálfa mig ekki beint sem fyrir-
mynd. Heimurinn er samt sem áður ríkur
af góðum fyrirmyndum. Kannski hjálpuð-
um við John einhverjum, opnuðum jafn-
vel augu sumra fyrir margt löngu síðan. Í
dag eru til dæmis „aktívistar“ úti um allt.
Alveg sama hvort þú lítur á hægri væng-
inn eða þann vinstri, það eru „aktívistar“
alls staðar og það er svo fallegt. Öll ætla
þau sér að gera eitthvað sem bætir heim-
inn. Hver með sínum hætti, þar af leiðandi
gerist það,“ útskýrir Yoko.
Hjálpum konum sem lifa í ótta
„Kvennabaráttunni er hvergi nærri lokið,“
segir Yoko og beinir því næst orðum sínum
beint að blaðamanni.
„Konur eins og við, við erum heppnar. Við
höfum ákveðin völd í okkar samfélagi. Þau
völd verðum við að sjálfsögðu að nýta til
þess að hjálpa öðrum konum að öðlast jafn-
rétti og frið. Til eru þær konur sem lifa í
stöðugum ótta um líf sitt, hugsaðu þér það.“
Óttast Ono ekki eins og Lennon?
Spurð hvort hún sjálf hafi aldrei óttast um
sitt líf eftir að eiginmaður hennar, John
Lennon, var myrtur fyrir það eitt að hafa
talað fyrir friði segist Yoko aldrei hafa ótt-
ast.
„Fólk var hrætt við völdin sem John hafði.
Á því leikur ekki vafi. Ég held að fólk hræð-
ist mig ekki með sama hætti,“ segir hún
kímin. „Ég hef því, frá því að John var myrt-
ur, aldrei óttast að einhver vinni mér mein.
Hins vegar hef ég tekið mér það hlutverk
eftir dauða Johns að halda baráttunni áfram
í hans nafni því það er svo margt, eins og
við vitum, sem má betur fara í heiminum.“
„Takk fyrir mig“
„Ég er afar þakklát fyrir þessi verðlaun.
Fyrir mér er það ómetanlegt að hugsað sé
til mín af slíkri virðingu. Ég mun koma til
með að nota þetta mér til hvatningar til þess
að gera betur og leggja harðar að mér í þágu
friðar. Takk fyrir mig.“
Óttaðist aldrei
um líf sitt
Yoko Ono er stödd á Íslandi í ellefta sinn. Vera hennar hér á landi
vekur ávallt mikla athygli og hefur tendrun Friðarsúlunnar í Viðey
fest sig í sessi sem ljúfur boði Veturs konungs. Í ár tók Yoko á móti
æðstu heiðursnafnbót Reykvíkinga, hún segir það óvænt en hvetjandi.
HEIÐURSBORGARI
Í HÖFÐA Yoko Ono
tók við viðurkenn-
ingunni í Höfða
í gær. Jón Gnarr
borgarstjóri fylgdist
með heiðurs-
borgaranum halda
þakkarræðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR