Fréttablaðið - 10.10.2013, Side 16
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
HEILSUHÚSIÐ LÁGMÚLA 5, KL. 18:30 – 21:00 Nánari upplýsingar og skráning
á ung@gudrunbergmann.is
og www.ungaollumaldri.is
Á NÁMSKEIÐINU VERÐUR FARIÐ YFIR:
fimmtudagur
17. okt.
4.900 kr.
Hvernig þekkja má
bólgueinkennin
og finna leiðir til bata.
Hvaða fæðutegundir valda
bólgueinkennum
í líkamanum.
Hvaða fæðu, krydd og
bætiefni má nota til að draga
úr bólgum.
GUÐRÚN BERGMANN
hefur haldið fjölda
fyrirlestra og námskeiða
og skrifað bækur um
heilsu, náttúrulækningar
og umhverfisvitund.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 02.09.13 - 08.10.13
1 2Maður sem heitir Ove Fredrik Backman Höndin Henning Mankell
5 Leðurblakan Jo Nesbo 6 Amma GlæponDavid Walliams
7 Nikký og slóð hvítu fjaðranna Brynja Sif Skúladóttir 8 Ég skal gera þig svo hamingju-saman - Anne B. Ragde
10 Iceland small world Sigurgeir Sigurjónsson9 Norðurslóðasókn - Ísland og tækifærin - Heiðar Guðjónsson
4 Sáttmálinn Jodi Picoult3 Heilsubók Jóhönnu Jóhanna Vilhjálmsdóttir
SLYS Grazvydas Lepikas vann hetju-
dáð í Suðurbæjarlaug um síðustu
helgi þegar honum tókst að endur-
lífga mann sem lá meðvitundarlaus
í sundlauginni. Þegar Lepikas kom
að manninum var hann blár í kring-
um varirnar og annar sundlaugar-
gestur hafði hafið skyndihjálp.
„Ég vissi að hver sekúnda skipti
sköpum og ég setti höfuð mannsins í
rétta stöðu og hóf að blása og hnoða
til skiptis. Ég veit ekki hversu lengi
ég gerði þetta en þetta virtist vera
heil eilífð.“ Lepikas kallaði annan
sundlaugargest til hjálpar sem blés
í manninn á meðan Lepikas hnoðaði
hann. „Allt í einu gerðist kraftaverk
sem ég á erfitt með að lýsa. Ég fann
að hjartað fór að slá á ný. Hjartað
hökti af stað eins og dísilvél á köld-
um vetrarmorgni.“
Maðurinn komst aftur til meðvit-
undar, en lífgunartilraunir Lepikas
höfðu reynt svo á hann að hann sat
lengi á sturtugólfinu og hvíldi sig.
Lepikas, sem er frá Litháen, er 43
ára gamall og hefur búið hér á landi
í átta ár. - jjk, skó
„Hjartað hökti af stað eins og dísilvél á köldum vetrarmorgni“:
Vann hetjudáð í Suðurbæjarlaug
SNÖR HANDTÖK Sundlaugargestir í
Hafnarfirði björguðu mannslífi.
ALÞINGI „Hættum að tala um nýtt
hátæknisjúkrahús, tölum um eðli-
legt viðhald á gömlum húsum,“
sagði Þórunn Egilsdóttir Fram-
sóknarflokki í umræðum um
Landspítalann á Alþingi í gær. Þór-
unn sagði jafnframt að það hefði
komið fram á fundi með stjórnend-
um sjúkrahússins að þrjá milljarða
króna vantaði til reksturs og upp-
byggingar þess á næsta ári.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Samfylkingu sagði að það hefði
ekki farið fram hjá nokkrum
manni að óánægja starfsfólks á
Landspítalanum færi vaxandi.
„Sú óánægja snýr ekki síst að
þeirri staðreynd að þær fyrirætl-
anir sem uppi voru um endurnýj-
un húsakosts sjúkrahússins eru
nú í uppnámi og ekki virðist mik-
ill skilningur á þörfinni hjá núver-
andi stjórnvöldum,“ sagði þing-
maðurinn.
Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra sagði stjórnvöld
hafa skilning á því að Landspít-
alinn þyrfti endurbættan húsa-
kost. „Ég hef átt í viðræðum við
formann byggingarnefndar nýja
Landspítalans og staðið í viðræð-
um við aðra stjórnarmenn um að
þetta mál þurfi að útfæra,“ svar-
aði ráðherrann. Kristján sagðist
hafa kallað eftir hugmyndum í þá
veru og falið stjórninni að stilla
upp sundurliðuðum möguleikum á
framkvæmdinni bæði hvað varð-
ar aðalbygginguna og ekki síður
smærri þætti verksins.
Sigríður Ingibjörg vildi fá svar
við því hvernig ætti að tryggja
fjármuni til tækjakaupa á sjúkra-
húsinu. Heilbrigðisráðherra sagði
Landspítala vantar
þrjá milljarða króna
Heilbrigðisráðherra segist gera sér grein fyrir vanda sjúkrahússins. Þingmaður
fagnar því að skilningur virðist vera á því meðal þingmanna að sjúkrahúsið þurfi
meira fé. Annar segir að hætta eigi tali um nýtt hátæknisjúkrahús.
FJÁRVANA Þingmenn á Alþingi ræddu vanda Landspítalans í gær. Heilbrigðisráð-
herra sagði að hann hefði átt í viðræðum við formann og stjórn byggingarnefndar
nýs Landspítala og hefði óskað eftir tillögum og hugmyndum frá þeim.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ELÍN HIRST KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON
GUÐMUNDUR
STEINGRÍMSSON
SIGRÍÐUR
INGIBJÖRG
INGADÓTTIR
að hann og fjármálaráðherra ætl-
uðu að fara fram á að gerð yrði
tímasett áætlun til fjögurra ára um
tækja- og búnaðarþörf spítalans.
„Við verðum að leggja aukið fé
til spítalans, það er engin spurning
í mínum huga,“ sagði Elín Hirst
Sjálfstæðisflokki. Hún sagði að
það mætti þó ekki gera með því
að auka skuldasöfnun ríkisins.
Peningana yrði að finna með öðru
móti.
Guðmundur Steingrímsson,
þingmaður Bjartrar framtíðar,
sagði frekari niðurskurð á fjár-
framlögum til spítalans ekki ger-
legan. Hann sagðist fagna því að
svo virtist sem það væri að mynd-
ast samhljómur og skilningur
meðal þingmanna á því að sjúkra-
húsið þyrfti meira fé svo hægt yrði
að fara í nauðsynleg tækjakaup,
viðhald og uppbyggingu.
- johanna@frettabladid.is