Fréttablaðið - 10.10.2013, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR 10. október 2013 | SKOÐUN | 29
➜ Nú er tækifæri fyrir þig
til að sýna í verki að þú látir
gömul hús og menningar-
minjar þig varða.
Ríkisstofnanir bregðast ólíkt við
fjársvelti og kröfum um niður-
skurð og hagræðingu. Háskóli
Íslands (HÍ) hefur undanfarin
ár tekið niðurskurði, vanefnd-
um ríkis á samningum, breyt-
ingum menntamálaráðaneytis á
reikniflokkum og skorti á stuðn-
ingi við grunnrannsóknir með
því að rétta fram hinn vang-
ann. HÍ hefur borið sig vel og
lagt áherslu á fjölda innritaðra
nemenda, fjölda framhaldsnema
og góða stöðu á einum lista yfir
ágæti háskóla (sem er að mestu
leyti vegna erlendrar samvinnu í
vísindum Íslenskrar erfðagrein-
ingar og Hjartaverndar).
Halda mætti að innra starf HÍ
væri með ágætum en það er ansi
fjarri lagi. Margir hafa bent á
ótal atriði sem bæta þarf innan
HÍ. Í stuttu máli er ekki hægt
að reka rannsóknarháskóla með
litlu og dvínandi fjármagni án
þess að það bitni á gæðum. Hluti
af vandanum er að yfirstjórn
HÍ virðist ekki skilja vandamál
einstakra deilda eða rannsókn-
arsviða. Markmið HÍ eru skýr
(gæðakennsla og gæðarann-
sóknir) en leiðirnar sem farnar
eru til að ná þeim eru furðuleg-
ar á köflum. Sem dæmi má taka
úthlutun á afmælisgjöf Alþingis
vegna aldarafmælis HÍ. Yfir-
stjórn HÍ ákvað að nýta afmælis-
gjöfina á nokkra vegu, í stoðþjón-
ustu, innviði, nýdoktora og nýja
kennara. En útdeiling fjármuna
í þessi atriði þarfnast heilmikill-
ar umsýslu sem hefur ekki verið
gagnsæ. Einfaldast og líklega
áhrifaríkast hefði verið að setja
stóran hluta afmælisgjafarinn-
ar í rannsóknasjóð HÍ og útdeila
honum beint til þeirra kennara
og framhaldsnema sem eru að
stunda rannsóknir. Þannig hefðu
peningarnir nýst strax í erfiðu
árferði.
Sussað á vísindafólk
Mjög skiptar skoðanir eru
innan HÍ um hvernig bæta eigi
ástandið. Á tímabili var sussað
á vísindafólk HÍ fyrir að benda
á brotalamir eða „tala niður“
Háskóla Íslands. Það var ekki
álitið heppilegt, sérstaklega ef
yfirstjórn HÍ stóð í samningum
við yfirvöld um einstök mál, að
einstakir starfsmenn væru að
gagnrýna menntastefnu stjórn-
valda, stjórnsýslu eða rekstur
HÍ. Hugmyndin var líklega sú
að HÍ ætti að hafa eina skýra
stefnu og alls ekki margar ólíkar
meiningar. Orsökin er að hluta sú
að í gamla daga fóru allmargir
starfsmenn HÍ í ráðuneytin til
að betla, þ.e.a.s. færa rök fyrir
fjárstuðningi við einstök verk-
efni eða stofnanir. Stjórnvöldum
leiddist það suð og þau báðu HÍ
að hafa hemil á sínu fólki.
Á meðan HÍ sat þægur í krepp-
unni ákváðu aðrar ríkisstofn-
anir að lýsa raunveruleikanum.
Landspítalinn minnir yfirvöld
og landsmenn reglulega á áhrif
fjárskorts á rekstur og viðhald
spítalans. Matís kvartaði þegar
IPA-styrkirnir brugðust. Hvorir
tveggja fá áheyrn ráðamanna og
loforð um úrlausn. Athugið, hér
er ekki lagt neitt mat á hlutfalls-
legt mikilvægi ólíkra stofnana
ríkisins, heldur bara fjallað um
viðbrögð þeirra við fjárskorti.
Sannarlega eru hlutverk Land-
spítala og HÍ ólík. Á meðan
flestir sjá augljóst gildi góðrar
heilbrigðisþjónustu virðast færri
átta sig almennilega á mikilvægi
háskólamenntunar og rannsókna.
Samfélagið þarfnast vel
menntaðs fólks fyrir margs
konar störf og hlutverk sem oft
er erfitt að sjá fyrir. Við þurfum
góða lækna, vísindamenn, verk-
fræðinga, fjármálastjóra, félags-
fræðinga og kennara. HÍ hefur
alltaf verið sparneytinn, t.d.
miðað við norræna eða breska
háskóla, en hann getur ekki keyrt
á bensíngufu. Ef kenna á fleiri
nemendum fyrir færri krónur
mun gæðum námsins hraka.
Og ef styrkir til rannsókna eru
skornir niður munu íslensk vís-
indi ekki standa undir fram-
förum og betra mannlífi. Gæði
í háskólastarfi byggja að miklu
leyti á því að háskólakennarar og
nemendur séu virkir í rannsókn-
um. Án rannsókna munu vísinda-
og tækniframfarir framtíðar
ekki vera íslenskar og fyrirtækin
sem græða á þeim ekki heldur.
Rannsóknir leiða einnig af sér
upplýst fólk og þjálfa nemendur í
gagnrýnni hugsun, hvorutveggja
nauðsynlegt þjóðinni. Forsenda
virkra rannsókna er að hlúa að
rannsóknarsjóði HÍ og að tryggja
fjárframlög til rannsóknarsjóða
Rannís, sem fjármagna stóran
hluta allra rannsókna hérlendis.
Við fögnum því að yfirstjórn
HÍ skuli loksins segja beint út að
HÍ þoli ekki meiri niðurskurð og
rökstyðji þörfina fyrir öflugan
rannsóknarháskóla.
Notagildi menntunar
og lífsbarátta Háskóla Íslands
Herra Sigmund-
ur Davíð, þú
hefur ekki svar-
að opnu bréfi
sem ég sendi þér
í vor og birtist í
Fréttablaðinu
þann 4. júní.
Þ ú ósk að -
ir eftir því að
hafa yfirum-
sjón með þeim
málaflokki sem
verndun húsa,
minja, menningar og sögu heyrir
undir. Nú er tækifæri fyrir þig til
að sýna í verki að þú látir gömul
hús og menningarminjar þig
varða. Minjavernd og Húsafrið-
unarnefnd hafa sent þér til und-
irskriftar beiðni um friðlýsingu
gömlu húsanna í kringum Ingólfs-
torg og Nasasalar.
Nú er lag fyrir þig sem for-
sætisráðherra að láta gott af þér
leiða og þín gæti verið minnst
sem verndari gamalla húsa í
miðbænum. Þú gætir þannig
stigið fyrsta skrefið í því að setja
miðbæ Reykjavíkur jafnvel á
heimsminjaskrá UNESCO, eins
og spænskir arkitektar hafa lagt
til.
Með því að skrifa undir beiðn-
ina um friðlýsingu svarar þú um
leið bréfi mínu.
Forsætisráð-
herra, ég bíð
eftir svari
MENNTUN
Arnar
Pálsson
erfðafræðingur
og dósent við HÍ
Pétur Henry
Petersen
taugalíff ræðingur
og dósent við HÍ
➜ Halda mætti að innra
starf HÍ væri með ágætum,
en það er ansi fjarri lagi.
Margir hafa bent á ótal
atriði sem bæta þarf innan
HÍ. Í stuttu máli er ekki
hægt að reka rannsóknarhá-
skóla með litlu og dvínandi
fjármagni án þess að bitni
á gæðum. Hluti af vand-
anum er að yfi rstjórn HÍ
virðist ekki skilja vandamál
einstakra deilda eða rann-
sóknarsviða
SKIPULAG
Þóra
Andrésdóttir
íbúi í miðborginni