Fréttablaðið - 10.10.2013, Side 38
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Ég fékk að vera með í haustlínunni þeirra. Þetta er ágætlega virt tímarit í prjónaheiminum,“ segir
Arndís Ósk Arnalds, verkfræðingur hjá
Orkuveitu Reykjavíkur. Hún fékk birta
prjónauppskrift eftir sig á veftímaritinu
TwistCollective.com nú í haust. Peys-
una prjónaði hún handa mömmu sinni.
„Mig langaði til að gera peysu sem
væri eins og hún. Mamma er klassísk og
stílhrein kona og mér fannst munstrið
einmitt vera þannig,“ útskýrir Arndís en
munstrið kemur úr Íslensku sjónabók-
inni sem Heimilisiðnaðarfélag Íslands,
Þjóðminjasafnið og Listaháskólinn gáfu
út árið 2009. „Sjónabókin er svo ótrúlega
falleg bók.“
Arndís lærði að prjóna af ömmu sinni
þegar hún var krakki og er forfallin
prjónaáhugamanneskja í dag. Hún segist
prjóna öll kvöld og vera ómöguleg nema
hún hafi prjónana í höndunum. „Það er
betra að prjóna á kvöldin en að sitja og
borða popp,“ segir hún hlæjandi. Arndís
hefur gefið út tvær uppskriftir áður og
stefnir að því að gefa út fleiri þótt mikil
vinna liggi á bak við hverja prjónaupp-
skrift.
„Þetta er ekki beinlínis gróðavænleg
iðja því þetta er gífurleg vinna og heil-
mikil stærðfræði, sem hentar mér reynd-
ar vel. Prjónauppskrift er í raun stórt,
flókið Excel-skjal og ég er með Excel-
blæti,“ segir Arndís hlæjandi en sem
fagstjóri vatnsveitunnar hjá Orkuveitu
Reykjavíkur vinnur hún að kerfisrann-
sóknum og hannar vatnsveitur á daginn.
„Það er gott að vera með kvenlegt hobbí
þegar maður vinnur alla daga í svo karl-
lægum heimi,“ segir hún sposk.
Fyrstu peysuna færði hún mömmu
sinni að gjöf og hefur síðan prjónað
tvær til viðbótar. Önnur þeirra er nú
á ferðalagi um heiminn á sýningum
á vegum Twist Collective og segir
Arndís peysuna hafa fengið ágætis
viðtökur.
Nánar má forvitnast um prjónaskap
Arndísar á bloggsíðunni arndisosk.
word press.com. ■ heida@365.is
HANNAR VATNS-
VEITUR Á DAGINN
ÍSLENSKT MUNSTUR Arndís Ósk Arnalds verkfræðingur hannaði prjóna-
peysu handa mömmu sinni og fékk uppskriftina birta á TwistCollective.com.
PRJÓN Peysa Arndísar
komst inn í haustlínu
TwistCollective.com.
MYND/ARNÞÓR
MYND/JANE HELLER
Sjá fleiri myndir á
Skokkar
áður 16.990
nú 7.990
Árshátíðarkjólar
áður 24990
nú 9.990 nú 5.000
margar gerðir
Peysur og buxur á 5.000
Kjólar
áður 11990
Lagerhreinsun
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
Við erum á Facebook
Flottir kjólar
og túnikur :-)
str. 36-56/58
fleiri litir
og
munstur
kr.
kr. kr.