Fréttablaðið - 10.10.2013, Qupperneq 46
10. OKTÓBER 2013 FIMMTUDAGUR2 ● Gengur vel
Ert þú líftryggð(ur)?
Þakklæti er mér efst í huga
á 10 ára afmæli Gengur vel
ehf., þá sérstaklega gagnvart
traustum viðskiptavinum og
sölustöðum. Ég og starfsfólk
mitt höfum lagt mikinn
metnað í að finna hreinar
og góðar heilsuvörur sem
sannarlega hefur tekist.
Helstu ógnir nútímans eru hraði,
stress og tímaskortur. Hver og
einn þarf því að vera vakandi
fyrir því að fara ekki fram úr
sjálfum sér. Bestu ráðin eru oft
ókeypis s.s. að fara í göngutúr,
að setjast niður og anda djúpt,
hugsa jákvætt, vera vinir og
drekka nóg af vatni.
Vinnuregla Gengur vel ehf.
hefur verið sú að finna vörur
sem virka og skila viðskiptavin-
inum einhverri bót en hitt vitum
við að eitt virkar fyrir suma og
annað fyrir aðra. Þess vegna
leggjum við mikið upp úr því að
vera í góðu sambandi við við-
skiptavinina. Gaman væri að
heyra frá þeim á gengurvel@
gengurvel.is
Ég er fullviss um að framtíð-
in beri í skauti sér byltingu sem
felst í því að fólk fari sjálft að
taka ábyrgð á eigin heilsu. Í far-
vatninu er ný tækni sem við
munum kynna á nýju ári sem
getur aðstoðað fólk við að kanna
ástand heilsu þess. Grípa í taum-
ana áður en kvillar og sjúkdóm-
ar banka á dyr. Spennandi tímar
eru fram undan og trúi ég að
auðveldari og ódýrari lausnir
séu í sjónmáli til að efla heilsu
og hreysti því heilsan er dýr-
mætasta eignin. Mikilvægt er að
fólk vakni til sjálfs sín og fram-
selji ekki heilsu sína í hendur
annarra heldur spyrji sig hvað er
gott fyrir mig.
Gengur vel tekur sporin létt og
ákveðið áfram inn í framtíð-
ina. Mikil eftirvænting er fram
undan í herbúðum Gengur vel
varðandi kynningu á lífrænt
vottuðum förðunar- og húðvör-
um frá Benecos. Seinna í vetur
munum við svo kynna til leiks
náttúrulegar vörur sem munu
hjálpa börnum og fullorðnum
að bæta margs konar húðkvilla.
Óþol fyrir matvælum eru einnig
staðreynd og eru Food Detective
óþolsheimaprófin sérlega góð
leið til að finna út hvaða fæðu-
tegundir ber að hætta að borða
tímabundið til að öðlast betri
heilsu. Afi minn sagði oft að það
væri til ráð við öllum hlutum
nema ráðaleysi sem ég læt vera
lokaorðin. Njótið blaðsins og til-
boðanna og aftur, takk!
Þuríður Ottesen
framkvæmdastjóri og
stofnandi Gengur vel ehf.
Heilsan
dýrmætasta
eignin
„Ég og starfsfólk mitt höfum lagt mikinn
metnað í að finna hreinar og góðar
heilsuvörur sem sannarlega hefur
tekist,“ segir Þuríður.
ERT ÞÚ LÍFTRYGGÐUR?
Flestir huga vel að alls konar
skyldutryggingum og viðbótar-
tryggingum. Við tryggjum sam-
viskusamlega bílinn, innbúið og
jafnvel dýrin okkar og síðast en
ekki síst okkur sjálf gegn alls konar
sjúkdómum. Það er mjög skynsam-
legt en um leið ættum við að sjálf-
sögðu að hugsa eins vel um okkur
sjálf og við mögulega getum til að
lifa vel og lengi. Það eru til alls
konar leiðir til að hugsa vel um
heilsuna og gríðarlega margar rann-
sóknir styðja til dæmis hreyfingu,
hvíld, jákvætt hugarfar og næringu.
Við hjá Gengur vel settum saman
okkar eigin líftryggingarpakka sem
saman stendur af vörum sem bæði
við og vísindamenn víðs vegar um
heim teljum að sé grunnur að góðri
líkamsstarfsemi.
MELTINGARGERLAR
Prógastró DDS+3 eru frábærir
próbíótískir gerlar sem hjálpa til við
að halda meltingarveginum í jafn-
vægi, minnka þarmaólgu, vindgang
og uppþembu. Heilbrigður melting-
arvegur er af mörgum talinn grunn-
urinn að góðri heilsu.
DVÍTAMÍN
Fjölmargar rannsóknir benda til
þess að stór hluti Íslendinga fái
ekki nægilegt magn D-vítamíns
og því er ráðlagt að taka inn auka-
skammt af D-vítamíni í fæðubótar-
formi. D-LÚX 1000 er frábær D-
vítamínúði sem er spreyjað beint
undir tunguna.
OMEGA 3
Norðurkrill er ein hreinasta og
besta uppspretta ómega 3-fitusýra
sem kostur er á. Fitusýrurnar úr
krillinu eru taldar nýtast líkaman-
um betur en hefðbundnir ómega-
gjafar. Ómega 3 er nauðsynlegt
fyrir heila- og taugastarfsemi og í
raun flesta starfsemi líkamans.
MAGNESÍUM
Rannsóknir sýna að alltof
margir fá ekki nægilegt
magnesíum úr fæðunni.
Magnesíum gegnir mikil-
vægu hlutverki meðal
annars í orkumyndun,
vöðva- og taugastarf-
semi og myndun tanna
og beina. Magnesíum-
vörurnar frá Better
You eru margverð-
launaðar og með því að
bera magnesíum á húðina
getur það skilað hærri upp-
takanlegum skömmtum inn í
frumur líkamans.
Lóló Rósenkranz íþróttakennari mælir
með Sore No More hita- og kæligelinu.
Matthildi Rósenkranz Guðmundsdóttur, eða
Lóló, kannast margir við enda hefur hún
verið áberandi í íslensku þjóðlífi í áratugi.
Lóló er ein af þeim sem hafa notað Sore No
More hita- og kæligelið síðan það kom á
markað fyrir sex árum og ráðleggur öllum
þeim sem hún þekkir að gera slíkt hið sama.
„Ég er íþróttakennari og hef starfað sem
einkaþjálfari í World Class í 18 ár. Á þessum
tíma hefur margt breyst varðandi áherslur
í heilsu og líkamsrækt. Fólk er að mörgu
leyti orðið meðvitaðra og umræðan um
heilsu og vellíðan meiri, en grunnurinn er
alltaf sá sami þótt breiddin og framboð hafi
aukist,“ segir Lóló og bætir við að hennar
markmið með þjálfun hafi alltaf verið það
sama: að bæta heilsuna og daglega líðan.
„Fólk kemur til mín í alls konar ástandi
og með mismunandi markmið en stór hluti
finnur fyrir vöðvabólgu, eymslum hér og
þar, eða er
með gigt
eða einhvers
konar krank-
leika og þá
mæli ég allt-
af með Sore
No More. Það
virkar strax
og maður ber
það á sig og
maður finn-
ur gríðarlegan
mun. Svo er frá-
bært að nota það
á gagnaugun við
höfuðverk, á efri
vörina við kvefi
og á bringuna
við hósta. Ég er
rosalega hrif-
in af þessari vöru
enda er hún nátt-
úruleg og án allra
kemískra auka-
efna og hentar því
öllum aldri. Ég á
tvo stráka sem æfðu
fótbolta og ég not-
aði Sore No More
mikið á þá sem ég
hefði auðvitað ekki
gert nema ég hefði
100 prósent trú á
vörunni.“
Virkar strax
Lóló hefur
notað Sore
No More
hita- og
kæligelið frá
því það kom
á markað fyrir
sex árum.
Útgefandi : Gengur vel
Ábyrgðarmaður: Þuríður Ottesen
Ritstjórn:
Elín Hrund Þorgeirsdóttir