Fréttablaðið - 10.10.2013, Síða 74
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
FIMMTUDAGUR
10. OKTÓBER
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Opnanir
17.00 Týsgallerí verður opnað á Týs-
götu með sýningunni Merki eftir Baldur
Geir Bragason.
17.00 Opnun Menningarhátíðar Sel-
tjarnarness fer fram í dag. Setning
hátíðarinnar fer fram í Bókasafni Sel-
tjarnarness en þar verða opnaðar þrjár
sýningar.
Félagsvist
20.00 Rangæingar í Reykjavík athugið!
Félagsvist í samvinnu við Skaftfellinga
hefst í Skaftfellingabúð í Reykjavík í
kvöld.
Upplestur
12.00 Í tilefni Lestrarhátíðar í Reykjavík
verður boðið upp á girnileg ljóð og
gómasætar súpur á góðu verði í aðal-
safni Borgarbókasafns alla fimmtudaga
í október og fyrsta fimmtudag í nóvem-
ber. Ljóðalestur, súpa, heimabakað
byggbrauð með hummusi og hvítlauks-
smjöri og kaffi á eftir á 1.290 krónur.
Allir velkomnir.
12.00 Boðið er upp á ljóðalestur og
súpu frá Kryddlegnum hjörtum í aðal-
safni Borgarbókasafns í dag. Ljóðalest-
ur, súpa og kaffi kostar 1.290 krónur.
Pub Quiz
21.00 Rokk Quiz fer fram á Bar 11 í
kvöld. Það kostar ekkert að taka þátt
og veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu
sætin. Spyrill að þessu sinni verður
Matti á Rás 2.
Tónlist
20.00 Björg Þórhallsdóttir sópransöng-
kona og Jónas Ingimundarson píanó-
leikari koma fram í Menningarhúsinu
Bergi á Dalvík í kvöld.
20.30 Eiríkur Hauksson er gestur Jóns
Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum
fram sem fram fer í Salnum í Kópavogi.
Nánari upplýsingar á Miði.is.
22.00 Bítladrengirnir blíðu halda tón-
leika á Obladíoblada við Frakkastíg 8.
Góður gestur kemur í heimsókn!
Uppákomur
21.00 Opnar prufur fyrir Skinnsemi
sirkus fara fram á Harlem í kvöld.
Alls kyns tónlistaratriði, súluhópdans,
húllabrjálæði, diskódrottning, spákona.
Gleðin fer fram í bakherberginu á
Harlem og það kostar 1.500 krónur inn.
Aldurstakmark áhorfenda og skemmti-
krafta eru 20 ár.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að
skrá þá inni á visir.is.
Hljómar og John Grant eru á meðal þeirra sem koma
fram á afmælisfundi SÁÁ í Háskólabíói í kvöld.
Á meðal annarra sem koma fram eru Lockerbie,
Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar og Karlakórinn
Fóstbræður. Sérstakur gestur verður Kristján Þór
Júlíusson heilbrigðisráðherra.
„Þarna erum við að stilla saman strengina og
brýna okkur öll í baráttunni sem er fram undan,“
segir leikarinn Rúnar Freyr Gíslason, starfsmaður
SÁÁ.
Fjársöfnunin Áfram Vogur er nýhafin þar sem
óskað er eftir aðstoð frá fyrirtækjum og einstak-
lingum. Einstaklingar geta hringt í síma 903-2001,
903-1003 og 903-1005 og borgað eitt til fimm þús-
und krónur. „Okkur finnst við standa á tímamótum
því Þórarinn Tyrfingsson [yfirlæknir á Vogi] segist
aldrei hafa séð svartara ástand. Við erum að byggja
upp aðstöðu fyrir veikasta fólkið og eins og staðan er
núna þurfum við aðstoð til að geta þetta. Annars er
nánast óumflýjanlegt að skerða þjónustuna,“ segir
Rúnar Freyr. „Þess vegna viljum við hittast og fylla
Háskólabíó.“
Tónleikarnir eru ókeypis og hefjast klukkan 20. -fb
Hljómar og John Grant á svið
Hljómar og John Grant spila á afmælisfundi SÁÁ í Háskólabíói í kvöld.
JOHN GRANT Tónlistarmaðurinn John Grant kemur fram á
afmælisfundi SÁÁ. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
➜ Grant hefur talað opinskátt um eiturlyfja-
neyslu sína og tók vel í það að syngja nokkur lög.
Hljómsveitin Major Lazer, með
tónlistarmanninn Diplo í broddi
fylkingar, hefur staðfest komu
sína á tónlistarhátíðina Sónar
Reykjavík 2014.
Major Lazer hefur leikið á
mörgum stærstu tónlistarhátíð-
um heims síðustu ár og lék í júní
á Sónar í Barcelona. Hljómsveitin
gaf í apríl út breiðskífuna Free
The Universe, þar sem hljómsveit-
in nýtur meðal annars liðsinnis
Bruno Mars, Santigold, Flux pavil-
lion og Ezra Koenig úr hljómsveit-
inni Vampire Weekend. Á plötunni
er m.a.
stór-
smell-
inn
Get
Free.
Major Lazer
spilar á Sónar
„Við opnuðum síðustu helgi og
slógum upp mikilli veislu en það
verður enn þá meira um að vera
hjá okkur núna um helgina,“ segir
Böðvar Reynisson, betur þekktur
sem Böddi í Dalton, einn af eigend-
um veitinga- og skemmtistaðarins
Hendrix, um opnunina á nýja staðn-
um.
Á föstudagskvöldið verður alvöru
dansleikur með hljómsveitinni Út í
hatt og á laugardagskvöldið koma
fram Ultra Mega Technobandið
Stefán og Haffi Haff. „Síðasta helgi
var minni í sniðum, fyrir vini og
vandamenn, næsta helgi er í raun
formleg opnunarhelgi.“
Nýi veitinga- og skemmtistaður-
inn Hendrix er nefndur eftir gít-
arhetju og stendur við Gullinbrú,
Stórhöfða 17. „Við ætlum að leggja
mikinn metnað í góðan mat og
ætlum að sýna allt helsta sportið,“
bætir Böðvar við. Að auki verður
lifandi tónlist í hávegum höfð á
Hendrix.
Staðurinn er einn stærsti sport-
bar landsins, eða um 400 manna
staður. „Staðurinn ætlar að hýsa
alls kyns viðburði eins og pub quiz,
bingó og svo er líklegt að Íslands-
mótið í karókíi verði haldið hér,“
segir Böðvar að lokum. -glp
Hendrix hýsir
sport og tónlist
Veitinga- og skemmtistaðurinn Hendrix leggur metnað í mat, sport og tónlist.
GLEÐI VIÐ
GULLINBRÚ
Böðvar
Reynisson,
einn eigenda
Hendrix við
Gullinbrú.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MAJOR LAZER
Hljómsveitin
Major Lazer
spilar á Sónar
Reykjavík í
næsta
ári.
OPIÐ HÚS
Gunnarsbraut 47 - efri sérhæð
Í dag kl. 17.30 til 18.00.
Glæsileg 126,7 fm. neðri sérhæð
auk 15,5 fm. bílskúrs á vinsælum
stað í Norðurmýrinni. Sér inngangur.
Samtals 142,2 fm. Gott skipulag
og innréttingar. Fallegur garður. Sjón er sögu ríkari.
Háholt 14, Mosfellsbær
Sími: 588 5530 • berg@berg.is
www.berg.is • GSM 897 0047
Pétur Pétursson lögg. fasteignasali
Petur@berg.is
Sölumaður Berg tekur á móti áhugasömum.