Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 90
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 66
PEPSI-DEILDIN 2013
BESTI LEIKMAÐURINN
LÁGMARK 14 LEIKIR
1. Baldur Sigurðsson , KR 6,55
2. Björn Daníel Sverrisson, FH 6,48
3. Haukur Páll Sigurðsson , Val 6,44
4. Guðmann Þórisson , FH 6,41
5. Viðar Örn Kjartansson , Fylki 6,41
6. Einar Hjörleifsson, Víkingi Ó. 6,39
7. Halldór Orri Björnsson , Stjörnunni 6,38
8. Óskar Örn Hauksson , KR 6,36
9. Atli Viðar Björnsson , FH 6,27
10. Sverrir Ingi Ingason, Breiðabliki 6,24
11. Abdel-Farid Zato-Arouna, Víkingi Ó. 6,18
12. Sam Tillen , FH 6,15
13. Eiður Aron Sigurbjörnsson, ÍBV 6,14
14. Brynjar Gauti Guðjónsson, ÍBV 6,14
15. Guðmundur Reynir Gunnarsson, KR 6,11
16. Finnur Orri Margeirsson, Breiðabliki 6,10
17. Almarr Ormarsson, Fram 6,05
18. Jónas Guðni Sævarsson, KR 6,05
18. Kristinn Jónsson, Breiðabliki 6,05
18. Mark Tubæk , Þór Ak. 6,05
21. Víðir Þorvarðarson, ÍBV 6,05
22. Róbert Örn Óskarsson, FH 6,00
22. Atli Jóhannsson, Stjörnunni 6,00
22. David James, ÍBV 6,00
25. Daníel Laxdal, Stjörnunni 5,95
25. Gary Martin, KR 5,95
27. Samuel Hewson , Fram 5,95
28. Ingvar Jónsson, Stjörnunni 5,95
28. Arnór Ingvi Traustason, Keflavík 5,95
30. Chukwudi Chijindu, Þór Ak. 5,94
31. Brynjar Ásgeir Guðmundsson, FH 5,94
32. Arnór Eyvar Ólafsson, ÍBV 5,91
32. Ögmundur Kristinsson, Fram 5,91
32. Grétar Sigfinnur Sigurðsson KR 5,91
35. Tonny Mawejje , ÍBV 5,90
35. Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki 5,90
35. Jóhann Laxdal , Stjörnunni 5,90
38. Fjalar Þorgeirsson, Val 5,89
39. Bjarni Guðjónsson, KR 5,89
40. Freyr Bjarnason, FH 5,88
41. Guðjón Pétur Lýðsson , Breiðabliki 5,85
41. Hólmbert Aron Friðjónsson, Fram 5,85
41 . Atli Guðnason , FH 5,85
44. Michael Præst , Stjörnunni 5,84
45 . Jóhann Helgi Hannesson, Þór Ak 5,82
46. Magnús Már Lúðvíksson, Val 5,82
47. Hannes Þór Halldórsson , KR 5,80
47. Brynjar Björn Gunnarsson, KR 5,80
47. Insa Bohigues, Víkingi Ó. 5,80
50. Kristján Hauksson, Fylki 5,79
VERSTI LEIKMAÐURINN
LÁGMARK 10 LEIKIR
Maksims Rafalskis , ÍA 4,40
Pétur Viðarsson , FH 4,50
Kári Ársælsson, ÍA 4,55
Jón Gunnar Eysteinsson , Fram 4,58
Haukur Baldvinsson , Fram 4,60
Einar Logi Einarsson, ÍA 4,67
Thomas Sörensen, ÍA 4,70
Janez Vrenko , Þór Ak. 4,73
Eggert Kári Karlsson, ÍA 4,93
Arnar Már Guðjónsson, ÍA 4,93
OFTAST MAÐUR LEIKSINS
Atli Viðar Björnsson , FH 4
Gary Martin, KR 4
Guðmann Þórisson, FH 4
Abdel-Farid Zato-Arouna, Víkingi Ó. 3
Almarr Ormarsson, Fram 3
Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki 3
Arnór Ingvi Traustason, Keflavík 3
Atli Guðnason, FH 3
Árni Vilhjálmsson, Breiðabliki 3
Baldur Sigurðsson, KR 3
Björn Daníel Sverrisson, FH 3
Guðjón Pétur Lýðsson, Breiðabliki 3
Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 3
Hörður Sveinsson, Keflavík 3
Ingvar Jónsson, Stjörnunni 3
Óskar Örn Hauksson, KR 3
Rúnar Már Sigurjónsson, Val 3
Veigar Páll Gunnarsson, Stjörnunni 3
MARKVÖRÐURINN
LÁGMARK 14 LEIKIR
1. Einar Hjörleifsson, Víkingi Ó. 6,39
2. Róbert Örn Óskarsson, FH 6,00
2. David James, ÍBV 6,00
4. Ingvar Jónsson, Stjörnunni 5,95
5. Ögmundur Kristinsson, Fram 5,91
6. Fjalar Þorgeirsson, Val 5,89
7. Hannes Þór Halldórsson , KR 5,80
8. Gunnleifur Gunnleifsson , Breiðabliki 5,77
VARNARMAÐURINN
LÁGMARK 14 LEIKIR
1. Guðmann Þórisson, FH 6,41
2. Sverrir Ingi Ingason, Breiðabliki 6,24
3. Sam Tillen, FH 6,15
4. Eiður Aron Sigurbjörnsson, ÍBV 6,14
5. Brynjar Gauti Guðjónsson , ÍBV 6,14
6. Guðmundur Reynir Gunnarsson, KR 6,11
7. Kristinn Jónsson, Breiðabliki 6,05
8. Daníel Laxdal , Stjörnunni 5,95
MIÐJUMAÐURINN
LÁGMARK 14 LEIKIR
1. Baldur Sigurðsson, KR 6,55
2. Björn Daníel Sverrisson, FH 6,48
3. Haukur Páll Sigurðsson, Val 6,44
4. Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 6,38
5. Óskar Örn Hauksson, KR 6,36
6. Abdel-Farid Zato-Arouna, Víkingi Ó. 6,18
7. Finnur Orri Margeirsson , Breiðabliki 6,10
8. Almarr Ormarsson , Fram 6,05
SÓKNARMAÐURINN
LÁGMARK 14 LEIKIR
1. Viðar Örn Kjartansson , Fylkii 6,41
2. Atli Viðar Björnsson, FH 6,27
3. Víðir Þorvarðarson , ÍBV 6,05
4. Gary Martin , KR 5,95
5. Chukwudi Chijindu, Þór Ak. 5,94
6. Hólmbert Aron Friðjónsson, Fram 5,85
6. Atli Guðnason, FH 5,85
8. Hörður Sveinsson, Keflavík 5,70
NÝI MAÐURINN
LEIKMENN SEM SKIPTU UM LIÐ
1. Viðar Örn Kjartansson, Fylki 6,41
2. Abdel-Farid Zato-Arouna, Víkingi Ó. 6,18
3. Sam Tillen, FH 6,15
4. Eiður Aron Sigurbjörnsson, ÍBV 6,14
5. Mark Tubæk, Þór Ak. 6,05
6. David James, ÍBV 6,00
7. Fjalar Þorgeirsson , Val 5,89
8. Guðjón Pétur Lýðsson, Breiðabliki 5,85
9. Michael Præst , Stjörnunni 5,84
10. Magnús Már Lúðvíksson, Val 5,82
BESTI GAMLINGINN
FÆDDUR 1980 EÐA FYRR
1. Einar Hjörleifsson, Víkingi Ó. 6,39
2. Atli Viðar Björnsson, FH 6,27
3. David James, ÍBV 6,00
4. Fjalar Þorgeirsson, Val 5,89
5. Bjarni Guðjónsson, KR 5,89
6. Freyr Bjarnason, FH 5,88
7. Brynjar Björn Gunnarsson, KR 5,80
8. Gunnleifur Gunnleifsson , Breiðablik i 5,77
9. Jóhann Birnir Guðmundsson, Keflavík 5,65
10. Veigar Páll Gunnarsson , Stjörnunni 5,63
BESTI UNGLINGURINN
FÆDDUR 1993 EÐA SÍÐAR
1. Sverrir Ingi Ingason, Breiðabliki 6,24
2. Arnór Ingvi Traustason, Keflavík 5,95
3. Hólmbert Aron Friðjónsson, Fram 5,85
4. Alfreð Már Hjaltalín, Víkingur Ó. 5,78
5. Tómas Óli Garðarsson, Breiðabliki 5,71
6. Árni Vilhjálmsson, Breiðabliki 5,67
7. Gunnar Þorsteinsson , ÍBV 5,55
8. Emil Atlason , KR 5,38
BESTUR Í FYRRI UMF.
LÁGMARK 7 LEIKIR
1. Óskar Örn Hauksson, KR 6, 91
2. Rúnar Már S Sigurjónsson, Val 6,88
3. Baldur Sigurðsson, KR 6,70
4. Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 6,64
5. Haukur Páll Sigurðsson, Val 6,60
6. Eiður Aron Sigurbjörnsson, ÍBV 6,55
7. Brynjar Gauti Guðjónsson, ÍBV 6,55
8. Björn Daníel Sverrisson, FH 6,45
9. Víðir Þorvarðarson, ÍBV 6,45
10. Guðmann Þórisson, FH 6,43
BESTUR Í SEINNI UMF.
LÁGMARK 7 LEIKIR
1. Viðar Örn Kjartansson, Fylki 7,09
2. Atli Viðar Björnsson, FH 7,00
3. Hörður Sveinsson, Keflavík 6,70
4. Einar Hjörleifsson, Víkingi Ó. 6,70
5. Guðmundur Reynir Gunnarsson, KR 6,57
6. Sverrir Ingi Ingason, Breiðabliki 6,50
7. Björn Daníel Sverrisson, FH 6,50
8. Chukwudi Chijindu, Þór Ak. 6,50
9. Baldur Sigurðsson, KR 6,40
10. Guðmann Þórisson, FH 6,40
Vill ekki í atvinnumennsku
Baldur Sigurðsson, miðjumaður Íslandsmeistara KR, er leikmaður ársins hjá Fréttablaðinu í Pepsi-deild
karla í fótbolta. Baldur var loksins heill á undirbúningstímabilinu og telur það hafa skipt öllu máli í sumar.
FÓTBOLTI Það spilaði enginn betur í
Pepsi-deildinni í sumar en KR-ing-
urinn Baldur Sigurðsson sem fékk
6,55 í meðaleinkunn hjá blaða-
mönnum Fréttablaðsins og Vísis í
sumar. Baldur sló við FH-ingnum
Birni Daníel Sverrissyni og Vals-
manninum Hauki Páli Sigurðssyni
sem komu í næstu sætum.
KR-ingar voru frábærir í
sumar og enginn betri en Baldur.
Liðið setti nýtt stigamet (52 stig),
skoraði yfir 50 mörk og gat fyrst
tryggt sér titilinn þegar liðið átti
þrjá leiki eftir. Baldur skoraði átta
mörk í 20 leikjum af miðjunni og
var í hópi markahæstu manna.
Mörkin komu honum af stað
„Maður er alltaf dæmdur af
mörkunum og það voru þau sem
komu mér af stað í tímabilinu.
Ég var ánægður með tímabilið í
heild sinni. Ég spilaði framarlega
á vellinum en svo leysti ég mjög
marga leiki djúpur á miðjunni
með Jónasi Guðna. Mér fannst
ég aðlagast báðum hlutverkum
vel. Ég hef líka verið að bíða eftir
því undanfarin ár að ná að halda
stöðugleikanum út heilt tímabil en
ekki vera með einhverjar rokur
hér og þar og detta svo niður,“
segir Baldur.
KR-ingar unnu tvöfalt árið 2011
og voru í titilbaráttunni árið eftir
þar til liðið gaf mikið eftir í lokin.
„Við lögðum bara mikla áherslu
á það í vetur að taka mikinn lær-
dóm frá sumrinu 2012. Ég held að
það hafi hjálpað okkur mjög mikið
og eigi líka eftir að hjálpa okkur í
framtíðinni,“ sagði Baldur.
Baldur gaf tóninn strax í byrj-
un móts með því að skora fjög-
ur mörk í fyrstu fjórum leikj-
um KR-liðsins sem allir unnust.
Gerði hann eitthvað annað í
vetur en árin á undan? „Munur-
inn var kannski sá að ég hélst
heill allt undirbúningstímabilið og
í raun allt sumar. Ég lenti aldrei
í neinum meiðslum ólíkt því sem
hefur verið síðustu sumur,“ segir
Baldur og bætir við:
„Þegar ég kom til KR í apríl
2009 kom ég inn með slæm ökkla-
meiðsli og það tók mig langan tíma
að ná mér af þeim. Á næstu árum
á eftir var alltaf eitthvað og það
gerðist alltaf á miðju undirbún-
ingstímabili. Þá var maður alltaf
að vinna sig í form á tímabilinu.“
Rúnar hefur skólað mig mikið til
Baldur segist eiga þjálfaranum
Rúnari Kristinssyni mikið að
þakka. „Ég er í rauninni að spila
stöðuna hans því ég spila þarna í
holunni. Hann setti mig þar um
leið og hann tók við liðinu og ég hef
bara haldið mig þar með örfáum
undantekningum,“ segir Baldur og
hann hefur notið góðs af þekkingu
Rúnars á hans stöðu.
„Hann hefur skólað mig mikið
til en það leiðinlegasta í þessu er
að ég get aldrei gert allt sem hann
biður mig um því hann var svo
góður sjálfur,“ segir Baldur. Það
hlýtur að vera eitthvað sem hann
gerir betur en Rúnar? „Ég veit það
nú ekki en hann kunni allavega
ekkert að skalla,“ svarar Baldur
hlæjandi.
Baldur segir hungrið í titla
bara aukast við það að vinna og
hann ætlar sér að standa sig vel
og hjálpa KR að halda sér á toppn-
um. Baldur segir hins vegar að
atvinnumennskan komi ekki til
greina. „Ég fékk að prófa atvinnu-
mennsku á sínum tíma en ég held
að þeim kafla hjá mér sé lokið,“
segir Baldur og bendir á að hann
hafi kannski spilað undir minni
pressu vegna þessa.
Skólinn og fjölskyldan
„Þegar maður var ungur lá þetta
alltaf í hausnum. Ég held að það
hafi bara hjálpað mér í spila-
mennskunni í sumar að ég var
ekkert að pæla í atvinnumennsku
og vildi bara standa mig sem best
hér hjá KR. Nú er maður bara að
klára skólann og er kominn með
fjölskyldu. Ég vil bara einbeita
mér að lífinu hér og er virkilega
sáttur í KR. Ég vil bara gera eins
vel og ég get fyrir KR á meðan ég
fæ nýjan samning hjá þeim,“ segir
Baldur. ooj@frettabladid.is
BALDUR MEÐ BIKARINN Baldur Sigurðsson hefur unnið fjóra titla með KR-liðinu á síðustu þremur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL