Fréttablaðið - 24.10.2013, Qupperneq 2
24. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Jóhann, er það ekki bara húrra
fyrir pylsugerðarmanninum?
„Það er alltaf gott að fá eina með
öllu og mjólkurglas með.“
Jóhann G. Kristinsson er vallarstjóri á Laugar-
dalsvelli. Til að völlurinn verði til reiðu fyrir
leikinn mikilvæga gegn Króatíu hefur KSÍ
fengið risastóra pylsu sem heitu lofti er dælt
inni í og á að halda hita á vellinum.
SPURNING DAGSINS
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, Funahöfða 13
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
EX
PO
-
w
w
w.
ex
po
.is
Sími: 535 9000
RAFGEYMAR
Í ÚRVALI! VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL
Er rafgeymirinn klár fyrir veturinn
MENNING „Myndirnar gefa nýtt sjónarhorn
á hafnfirskt mannlíf fyrir einni öld. Þetta er
alveg þrælmerkilegur fundur,“ segir Björn
Pétursson, bæjarminjavörður Hafnarfjarðar.
Þessa dagana er byggðasafnið að undir-
búa hátíðahöld um næstu helgi í tilefni
þess að 250 ár eru liðin frá fæðingu Bjarna
Sívertsen, „föður Hafnarfjarðar“.
Af því tilefni er verið að taka Sívertsen-
hús í gegn. Eitt af þeim verkefnum sem
ákveðið var að ráðast í var að laga raflagnir
í húsinu. Taka þurfti upp gólfborð á efri hæð
hússins til að koma nýjum lögnum fyrir. Á
mánudag fundust merkilegir gripir faldir
undir gólffjölunum. Annars vegar var um
barnaskó að ræða og hins vegar veski með
134 filmum í.
„Við skiljum ekki hvernig veskið með
öllum þessum filmum gat endað undir gólf-
fjölunum. Þetta hlýtur að hafa verið góður
felustaður á sínum tíma,“ segir Björn.
Filmurnar eru taldar rétt rúmlega aldar-
gamlar. Myndirnar sem þær geyma eru
flestar teknar í Hafnarfirði á árunum 1910
til 1915. Einstaka er þó úr Reykjavík og frá
Danmörku. Margar þeirra sýna fólk við dag-
leg störf.
„Þarna eru myndir af konum að elda
og strauja og verkamönnum við störf sín.
Myndirnar eru flestar mjög skýrar og
góðar,“ segir Björn.
Þótt safnamönnum hafi ekki gefist langur
tími til að skoða filmurnar og skanna þær
telja þeir líklegast að þær séu teknar af
Ólafi V. Davíðssyni en hann bjó í Sívertsen-
húsi á þessum árum ásamt konu sinni, list-
málaranum Hönnu Davíðsson. Hún málaði
meðal annars myndir á skírnarfontinn og
predikunarstólinn í Fríkirkjunni í Hafnar-
firði.
Ólafur var verkstjóri hjá Bookles-bræðr-
um um tíma en rak svo um árabil eigin fisk-
verkun í bænum. Hann vann sér það meðal
annars til frægðar að vinna fyrstu Íslands-
glímuna 1906. johanna@frettabladid.is
Merkilegar mann-
lífsmyndir finnast
Aldargamlar filmur fundust í vikunni undir gólffjölum í Sívertsenhúsi í Hafnar-
firði. Bæjarminjavörður segir myndirnar gefa nýtt sjónarhorn á mannlíf í bænum.
Talið er að Ólafur V. Davíðsson glímukóngur hafi tekið myndirnar í kringum 1910.
DAGLEG STÖRF
Margar af þeim
myndum, sem
komu í ljós
þegar filmurnar
sem fundust í
Sívertsenhúsi
voru skannaðar,
eru af fólki við
dagleg störf í
Hafnarfirði fyrir
einni öld. Þær
eru flestar tekn-
ar í nágrenni við
Sívertsenhúsið.
PRÚÐBÚNAR SYSTUR Talið er að þetta sé mynd af Flygenringsystrum.
Þær bjuggu í samnefndu húsi og voru nágrannar Ólafs V. Davíðssonar sem
talinn er hafa tekið myndina einhvern tíma á árunum 1910 til 1915.
DÓMSMÁL Enn er beðið eftir niður-
stöðu úr geðheilbrigðisrannsókn
eins Íslendinganna sem dómstóll í
Kaupmannahöfn sakfelldi nýlega
fyrir stórfellt fíkniefnasmygl frá
Hollandi til Danmerkur.
Fyrir mánuði var maðurinn, sem
er 35 ára, fundinn sekur um aðild
að smygli á samtals 60 kílóum af
amfetamíni til Danmerkur. Hann
átti stóran þátt í málinu en refsing
hans verður ekki ákveðin fyrr en
niðurstaða læknisrannsóknarinn-
ar liggur fyrir. Gitte Juul Jensen,
lögmaður hans, segir ekki ljóst
hvenær hennar er að vænta.
Sjö aðrir Íslendingar hafa verið
sakfelldir vegna málsins. Af þeim
fengu sex fangelsisdóma, tveir sex
ára dóma, þrír tíu ára dóma og
einn, höfuðpaurinn Guðmundur
Þóroddsson, tólf ára dóm. Að auki
var einn Íslendingur dæmdur til
vistar á geðsjúkrahúsi.
Til viðbótar við Íslendingana
sjö hafa þrír menn hlotið sjö, átta
og tíu ára dóma fyrir aðild sína að
málinu. - sh
Ekki er búið að ákveða refsingu eins Íslendinganna í dópmálinu í Danmörku:
Niðurstöðu geðmats enn beðið
VANDLEGA FALIÐ Efnin voru vandlega
falin í bíl sem ekið var frá Hollandi til
Danmerkur, eins og sjá má hér að ofan.
MYND/KAUPMANNAHAFNARLÖGREGLAN.
LONDON, AFP Georg prins, þriggja mánaða gamall ríkisarfi í Bretlandi,
var skírður við hátíðlega athöfn í St. James‘s Palace í London í gær.
Foreldrarnir, Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja, völdu sjö
nána vini fjölskyldunnar til að vera guðforeldrar piltsins. Þar á meðal
eru jarlinn af Grosvenor, fyrrverandi einkaritari foreldra prinsins, og
gömul vinkona Díönu prinsessu. Erkibiskupinn af Kantaraborg skírði
piltinn. -ebg
Látlaus athöfn með nánum vinum og fjölskyldu:
Ríkisarfinn Georg skírður í gær
SKÍRN Athöfnin var fremur látlaus miðað við íburð brúðkaups Vilhjálms Bretaprins
og Katrínar hertogaynju. MYND/AFP
ATVINNUMÁL Skráð atvinnuleysi
í september var 5,2 prósent sam-
kvæmt Vinnumarkaðsrannsókn
Hagstofu Íslands sem birt var í gær.
Atvinnuleysi jókst um 0,3 pró-
sentustig frá því í september 2012
þegar það var 4,9 prósent. Að jafn-
aði voru 186.700 manns á vinnu-
markaði í september og af þeim
voru 177 þúsund starfandi og 9.700
án vinnu og í atvinnuleit.
Atvinnuleysi var 5,2 prósent
meðal karla og 5,3 prósent meðal
kvenna. - hg
9.700 manns í atvinnuleit:
Atvinnuleysi
eykst lítillega
NÁTTÚRA „Hún er raunhæf að því leyti að þetta
er gerlegt. En það er ekki mitt að tjá mig um
fjármagnið,“ segir Helgi Jensson, ráðgjafi hjá
Umhverfisstofnun, en stofnunin hefur lokið tillögu
um viðbragðsáætlun vegna síldardauða í Kolgrafa-
firði í framtíðinni.
Sú áætlun gerir ráð fyrir því að síldin verði
urðuð á viðurkenndum urðunarstað en sá næsti er
Fíflholt sem er töluvert langt frá.
Reikna má með að heildarkostnaður við flutn-
ing og urðun á tonni sé um nítján þúsund krónur
og samkvæmt því myndi kosta um 19 milljónir að
flytja og urða 1.000 tonn.
Þegar hefur þurft að urða 50 þúsund tonn af síld
sem drapst í firðinum. Samkvæmt þessum kostn-
aðartölum hefði það kostað tæpan milljarð hefði
síldin verið urðuð með þeim hætti.
Í tillögum Umhverfisstofnunar er einnig lagt
til að samráðsnefnd með fulltrúum umhverfis- og
auðlindaráðuneytis, atvinnuvegaráðuneytis og
fjármálaráðuneytis verði stofnuð strax.
Nefndin myndi hafa það hlutverk að taka
ákvarðanir um fjármögnun verkefnisins. - vg
Umhverfisstofnun hefur gert viðbragðsáætlun vegna Kolgrafafjarðar:
Annar síldardauði yrði fokdýr
KOLGRAFAFJÖRÐUR Hreinsunarstarf í Kolgrafafirði þegar 30
þúsund tonn af síld drápust í firðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNSÝSLA Forsætisráðuneytið
segir tímabundnar undanþágur
fyrirtækja ríkisins frá upplýs-
ingalögum hafa verið veittar á
grundvelli tillagna frá viðkomandi
ráðherra, eins og mælt sé fyrir um
í upplýsingalögum. Eins hafi til-
lögurnar allar verið bornar undir
Samkeppniseftirlitið, sem þó hafi
ekki náð að veita þeim umsögn þar
sem þær bárust of seint. Alls fengu
37 opinber fyrirtæki tímabundna
undanþágu. Róbert Marshall, þing-
maður Bjartrar framtíðar, gagn-
rýndi það harðlega í blaðinu í gær.
Undanþágurnar verða endurskoð-
aðar eftir áramót. - vg
Deilt um upplýsingalög:
Segir undan-
þágur löglegar
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður-
nesjum handtók sex meðlimi vél-
hjólagengisins Devil‘s Choice á
Keflavíkurflugvelli í gær. Lög-
reglan segir samtökin tengjast
skipulagðri glæpastarfsemi en
þremur meðlimum samtakanna
var vísað úr landi í fyrradag.
Búist var við talsverðum fjölda
Devil‘s Choice-meðlima frá Norð-
urlöndunum hingað fyrir helgina
og því var lögreglan með tals-
verðan viðbúnað á flugvellinum.
Lögregla hugðist einnig senda
frávísunarbeiðni til Útlendinga-
stofnunar vegna mannanna
þriggja. - hþ/ebg
Djöflagengi á Íslandi:
Sex í viðbót
handteknir