Fréttablaðið - 24.10.2013, Blaðsíða 35
ÚTFARIR
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2013
Kynningarblað
Graníthöllin
Útfararstofa Svafars
og Hermanns
Granítsteinar
Útfararstofa
Kirkjugarðanna
Markmið Graníthallarinnar
Markmið Graníthallarinnar er að
bjóða fallega og vandaða legsteina
og fyrsta flokks þjónustu á sam-
keppnishæfu verði. Graníthöllin
býður upp á fjölbreytt úrval leg-
steina úr graníti, allt frá einföld-
um og klassískum legsteinum og
upp í skrautlega steina með mikl-
um útskurði. „Í verslun okkar að
Bæjarhrauni 26 erum við með
yfir hundrað gerðir af legsteinum
í fjölmörgum litum en steinunum
er stillt upp í rúmgóðum sýning-
arsal. Ef þú finnur ekki það sem
þú leitar að er hægt að sérpanta
legsteina eftir óskum hvers og
eins og er það ekkert dýrara. Það
ættu því allir að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. Granít hentar
sérstaklega vel í legsteina þar sem
það þolir hvað best íslenska veðr-
un,“ segir Heiðar.
Fylgihlutir með legstein
Graníthöllin býður upp á mikið
úrval af fylgihlutum með legstein-
inum, svo sem beðramma framan
við legsteininn, luktir, vasa og ljós-
myndaramma utan um keramik-
myndir, en mjög hefur færst í vöxt
að fólk vilji fegra legsteininn með
fylgihlutum að smekk hvers og
eins. Einnig er hægt að fá kopar-
luktir og vasa, sem hafa notið vin-
sælda í áratugi, en einnig granít-
luktir og granítvasa í stíl við leg-
steininn sem er nýjung hér á landi.
Heiðar segir að fólki líki granít-
fylgihlutirnir mjög vel, enda séu
þeir stílhreinir og fallegir. Kost-
urinn við granítfylgihlutina sé að
þeir séu úr sama efni og legsteinn-
inn og hafi því sambærilegan end-
ingartíma.
Lagfæringar á legsteinum
Graníthöllin tekur að sér viðgerð-
ir og viðhald á eldri legsteinum, þó
þeir séu ekki frá fyrirtækinu sjálfu.
„Það borgar sig að laga legsteina
sem eru farnir að halla eða við það
að falla á hliðina en það hafa orðið
alvarleg slys erlendis af völdum
þess að steinar falla um koll,“ lýsir
Heiðar en slíkt lagar Graníthöllin
Fjölbreytt úrval legsteina
Graníthöllin ehf. Bæjarhrauni 26 í Hafnarfirði var formlega opnuð árið 2012 en eigandi Graníthallarinnar, Heiðar Steinsson,
á að baki 22 ára reynslu í meðhöndlun náttúrusteins og margra ára reynslu í vinnu við legsteina.
Markmið Graníthallarinnar, í Bæjarhrauni 26, er að bjóða fallega og vandaða legsteina og fyrsta flokks þjónustu.
FRAMHALD Á SÍÐU 2
Í rúmgóðum sýningarsal má
sjá úrvalið af legsteinum
Graníthallarinnar.