Fréttablaðið - 24.10.2013, Side 35

Fréttablaðið - 24.10.2013, Side 35
ÚTFARIR FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2013 Kynningarblað Graníthöllin Útfararstofa Svafars og Hermanns Granítsteinar Útfararstofa Kirkjugarðanna Markmið Graníthallarinnar Markmið Graníthallarinnar er að bjóða fallega og vandaða legsteina og fyrsta flokks þjónustu á sam- keppnishæfu verði. Graníthöllin býður upp á fjölbreytt úrval leg- steina úr graníti, allt frá einföld- um og klassískum legsteinum og upp í skrautlega steina með mikl- um útskurði. „Í verslun okkar að Bæjarhrauni 26 erum við með yfir hundrað gerðir af legsteinum í fjölmörgum litum en steinunum er stillt upp í rúmgóðum sýning- arsal. Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að er hægt að sérpanta legsteina eftir óskum hvers og eins og er það ekkert dýrara. Það ættu því allir að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. Granít hentar sérstaklega vel í legsteina þar sem það þolir hvað best íslenska veðr- un,“ segir Heiðar. Fylgihlutir með legstein Graníthöllin býður upp á mikið úrval af fylgihlutum með legstein- inum, svo sem beðramma framan við legsteininn, luktir, vasa og ljós- myndaramma utan um keramik- myndir, en mjög hefur færst í vöxt að fólk vilji fegra legsteininn með fylgihlutum að smekk hvers og eins. Einnig er hægt að fá kopar- luktir og vasa, sem hafa notið vin- sælda í áratugi, en einnig granít- luktir og granítvasa í stíl við leg- steininn sem er nýjung hér á landi. Heiðar segir að fólki líki granít- fylgihlutirnir mjög vel, enda séu þeir stílhreinir og fallegir. Kost- urinn við granítfylgihlutina sé að þeir séu úr sama efni og legsteinn- inn og hafi því sambærilegan end- ingartíma. Lagfæringar á legsteinum Graníthöllin tekur að sér viðgerð- ir og viðhald á eldri legsteinum, þó þeir séu ekki frá fyrirtækinu sjálfu. „Það borgar sig að laga legsteina sem eru farnir að halla eða við það að falla á hliðina en það hafa orðið alvarleg slys erlendis af völdum þess að steinar falla um koll,“ lýsir Heiðar en slíkt lagar Graníthöllin Fjölbreytt úrval legsteina Graníthöllin ehf. Bæjarhrauni 26 í Hafnarfirði var formlega opnuð árið 2012 en eigandi Graníthallarinnar, Heiðar Steinsson, á að baki 22 ára reynslu í meðhöndlun náttúrusteins og margra ára reynslu í vinnu við legsteina. Markmið Graníthallarinnar, í Bæjarhrauni 26, er að bjóða fallega og vandaða legsteina og fyrsta flokks þjónustu. FRAMHALD Á SÍÐU 2 Í rúmgóðum sýningarsal má sjá úrvalið af legsteinum Graníthallarinnar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.