Fréttablaðið - 24.10.2013, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 24.10.2013, Blaðsíða 37
KYNNING − AUGLÝSING Útfarir24. OKTÓBER 2013 FIMMTUDAGUR 3 Þegar andlát ber að hönd-um er algengt að nánasta fjölskylda vilji hafa kistu- skreytingu, krans og altarisvendi við útförina. Einnig er algengt að fleiri taki sig saman og sendi krans eða kross með borða í útför ætt- ingja eða vinar. Við sjáum um að útbúa það og koma því á staðinn fyrir athöfn,“ útskýrir Málfríður Hildur Bjarnadóttir, en hún rekur Blómasmiðjuna í félagi við föður sinn, Bjarna Finnsson, garðyrkju- mann og blómaskreyti. Málfríður segir mikið úrval hlý- legra smágjafa að finna í hillum Blómasmiðjunnar. „Við höfum töluvert úrval af samúðargjöfum, kertum og englum sem fólk færir vinum og vandamönnum gjarnan sem eiga um sárt að binda. Við tökum vel á móti öllum og leggjum okkur fram við að koma til móts við þarf- ir hvers og eins. Fólk getur hringt í okkur eða komið til okkar í búðina, skoðað myndir og fengið hugmyndir um verð, áprentanir á borða og lita- val,“ segir Málfríður. Blómasmiðjan er til húsa í versl- unarmiðstöðinni Grímsbæ við Efstaland 26. Aðkoma að miðstöð- inni er góð og næg bílastæði. Síminn er 5881230 og netfang: blomasmidjan@blomasmidjan.is. Tökum vel á móti öllum Blómasmiðjan hefur í rúma tvo áratugi lagt áherslu á vandaða og faglega þjónustu vegna útfara og kemur til móts við þarfir hvers og eins. Mæðginin Málfríður Hildur Bjarnadóttir og Bjarni Finnsson, garðyrkjumaður og blómaskreytir, reka Blómasmiðjuna. Blómasmiðjan er til húsa í verslunarmiðstöðinni Grímsbæ, Efstalandi 26. Úrval samúðargjafa er að finna í Blómasmiðjunni. Bjarni Finnsson, garðyrkjumaður og blómaskreytir, við vinnu sína en hann rekur Blóma- smiðjuna í samvinnu við dóttur sína, Málfríði Hildi. MYND/GVA Við erum lítil og persónu-leg útfararstofa sem bygg-ir á trausti og virðingu, fyrir látnum og lifandi. Fólk hittir okkur Svafar í aðdraganda útfararinnar, þá sömu og sjá síðan um útförina sjálfa. Við leggjum mikla áherslu á að öll þjónusta sé á persónuleg- um nótum,“ segir Hermann Jónas- son hjá Útfararþjónustu Svafars & Hermanns. Stofan var sett á fót fyrir ári. Báðir búa þó Hermann og Svafar yfir áratuga reynslu í útfararþjón- ustu. Svafar vann hjá Útfararstofu kirkjugarðanna í 17 ár en Hermann við útfararþjónustu á Siglufirði í 30 ár. „Þar er nálægðin mikil milli fólks. Mér finnst skipta miklu máli að þjónustan sé persónuleg,“ segir Hermann. „Hægt er að ná í okkur allan sól- arhringinn. Við komum og sækj- um hinn látna þangað sem hann lést, í heimahús eða á sjúkrastofn- un. Eftir það hefst ferlið í samvinnu við aðstandendur og þá sem fram- kvæma útförina. Við erum með að- stöðu til að taka á móti fólki til að ræða málin en komum einnig heim til fólks ef það vill. Við leggjum mikla áherslu á að öll atriði séu skýr áður en til at- hafnarinnar kemur og ekkert komi fólki á óvart, til dæmis hvað varð- ar kostnað. Við viljum vera heiðar- legir og gegnsæir.“ Hermann segir Íslendinga halda í hefðirnar þegar kemur að útför ást- vina. Hlutirnir séu þó að breytast og hafa til að mynda bálfarir auk- ist. Ferlið sé það sama nema ekki sé farið í kirkjugarð eftir athöfn. „Margir halda að það sé skylda að fara í gegnum ákveðið staðlað form en það er alls ekki tilfellið. Við leggjum áherslu á að fólk hafi sam- band við okkur og leiti sér upplýs- inga. Við sjáum um hvers konar út- farir og leggjum aðaláherslu á að allir séu samstiga.“ Virðing og traust Útfararstofa Svafars & Hermanns tók til starfa fyrir ári en þar innanhúss er margra ára reynsla við skipulagningu útfara. Hermann Jónasson segir gagnkvæmt traust og virðingu grundvallaratriði þegar kemur að skipulagningu útfarar. Hermann Jónasson hjá Útfararþjón- ustu Svafars & Hermanns Kvedja.is segir persónulega þjónustu skipta höfuð- máli. MYND/GVA Á HEIMASÍÐU ÚTFARARÞJÓNUSTU SVAFARS OG HERMANNS, KVEDJA.IS, ER AÐ FINNA GÁTLISTA VIÐ UNDIRBÚNING ÚTFARAR. ● Hafa samband við útfararstofu og gefa þar upp fullt nafn og kenni- tölu hins látna. ● Tilkynna andlát til sýslumanns með afhendingu dánarvottorðs. ● Val á kistu og fatnaði, líkklæði eða eigin föt. ● Skreyting kistu, fáni/blóm. ● Val á legstað. ● Sálmaskrá til afhendingar við athöfn, sé þess óskað. ● Aðstandendur, eða útfararstofa fyrir þeirra hönd, hafa samband við þann sem valinn er til að framkvæma athöfnina, hvort sem það er prestur eða annar sá er til þess er bær. ● Ákveða hvernig auglýsa skal andlát eða/og útför. ● Tónlistarflutningur í útför. Val á organista, kór, einsöngvara eða ein- leikara, eftir því sem við á. ● Tónlist við kistulagningu, ef óskað er. ● Kanna hvort hinn látni hafi ákveðið bálför. ● Velja staðsetningu og tíma kistulagningarbænar sé hennar óskað. ● Val kistubera og fjölda, 6 eða 8.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.