Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.10.2013, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 24.10.2013, Qupperneq 10
24. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 JAFNRÉTTI Jafnlaunavottun VR fer afar vel af stað og hafa ellefu fyr- irtæki og stofnanir þegar fengið slíka vottun. Fimmtán til viðbótar eru í vottunarferlinu og á fimmta tug hafa sótt um að fá vottunina, segir Ólafía B. Rafnsdóttir, for- maður VR. „Þetta er gríðarlega góður árangur sem við höfum náð, en við viljum að sjálfsögðu halda áfram og erum að kynna þetta áfram fyrir fyrirtækjum og stofnunum,“ segir Ólafía. Fyrstu fyrirtækin fengu vottun í apríl síðastliðnum. Öll fyrirtæki og stofnanir geta sótt um að fá jafnlaunavottunina, óháð því hvort einhverjir starfs- menn eru í VR. Standist þau úttekt, sem unnin er af alþjóð- lega vottunarfyrirtækinu British Standard Institution, og staðfesti að greidd séu jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf, fá þau vottunina. Gerður er þriggja ára samning- ur við vottunarfyrirtækið og sér- fræðingar þess heimsækja svo viðkomandi fyrirtæki eða stofnun á sex til tólf mánaða fresti til að fylgjast með. Ólafía segir skýrt að fyrirtæki og stofnanir geti misst jafnlaunavottunina standist þau ekki reglulegar skoðanir vottun- arfyrirtækisins. „Ég held að atvinnulífið hafi verið að bíða eftir þessu stjórntæki til að vinna eftir,“ segir Ólafía. Hún segir að árangurinn muni vonandi koma í ljós í launakönnun VR eftir tvö ár. - bj Ellefu fyrirtæki og stofnanir með jafnlaunavottun VR og fimmtán í ferli: Mikil ásókn í jafnlaunavottun MENNTAMÁL „Ég vil fá að vita hvort það er ekki hægt að byggja upp góða læknadeild fyrir norð- an, það gæti styrkt Háskólann á Akureyri,“ segir Vigdís Hauks- dóttir, þingmaður Framsóknar- flokksins. Hún bætir við að það sé mikill læknaskortur í landinu og fjöldi stúdenta í læknanámi í útlöndum á námslánum frá íslenska ríkinu. „Væri ekki betra ef þetta fólk lyki sínu grunnnámi á Íslandi, annaðhvort á Akureyri eða í Reykjavík, og færi út í sérnám að því loknu?“ segir hún enn fremur. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur tekið fjórða árs læknanema í starfsnám. Bjarni Jónasson, forstjóri FSA, segir að það yrði skoðað með jákvæðum huga að taka við fleiri læknanemum. „Hins vegar er margt sem þarf að skoða í þessu sambandi, til dæmis hvaða kröfur yrðu gerð- ar til sjúkrahússins og hverju þyrfti að breyta svo sjúkrahúsið gæti orðið fullgilt háskólasjúkra- hús,“ segir Bjarni og bætir við að FSA sinni ekki jafnmörgum sér- greinum og Landspítalinn og það kunni að takmarka möguleika þess sem háskólasjúkrahúss. Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri, segist ekki telja forsendur fyrir að koma á laggirnar læknadeild á Akureyri. „Þetta er dýrt nám, það þyrfti aukið fjármagn til skólans. Aðstaðan á sjúkrahúsinu er ekki næg, auk þess sem það er ekki nægur fjöldi sérfræðinga starf- andi á FSA svo það sé hægt að reka læknadeild við Háskólann á Akureyri,“ segir Stefán. Í svipaðan streng tekur Magn- ús Karl Magnússon, forseti læknadeildar Háskóla Íslands. „Ég held að það sé óraunhæft að opna læknadeild við HA. Ísland er lítið land og það ber ekki tvo læknaskóla,“ segir hann. Hvað varðar fjölgun lækna- nema segir Magnús að það sé ef til vill hægt fjölga þeim. Þegar fjöldi læknanema á hverju ári er ákvarðaður sé horft til þess hversu marga nema Landspítal- inn geti menntað á sómasamleg- an hátt. Magnús segir að læknaskort- urinn á Íslandi sé ekki til kominn vegna þess að svo fáir læknar útskrifist heldur vegna þess að þeim bjóðist betri kjör erlendis og því fáist þeir ekki til starfa hér á landi. johanna@frettabladid.is Ekki grundvöllur fyrir tveimur læknaskólum Þingmaður Framsóknarflokksins vill láta kanna hagkvæmni þessa að hefja kennslu í læknisfræði á Akureyri. Rektor HA segir ekki forsendur fyrir læknadeild fyrir norðan. Forseti læknadeildar HÍ segir Ísland ekki bera tvo læknaskóla. Vigdís Hauksdóttir bíður svara við fyrirspurn til heil- brigðisráðherra. Hún spurði hvort hagkvæmni þess hafi verið skoðuð að nýta Sjúkrahúsið á Akureyri til læknis- fræðikennslu. Þá vill hún fá að vita hvort ráðherra telji að Háskólinn á Akureyri og Sjúkrahúsið á Akureyri geti uppfyllt kröfur um læknanám sem yrði sambærilegt því sem er í Háskóla Íslands og á Landspítalanum. Loks spyr Vigdís heilbrigðisráðherra hvort ekki sé rétt að fjölga læknanemum á hverju ári um helming, úr 48 í 96, í ljósi stöðu heilbrigðismála hér á landi. Fyrirspurn Vigdísar SIGLINGAMÁL Áform um að reisa sextán hæða byggingu við Höfða- torg virðast verða til þess að sjó- farendur hætti að styðjast við innsiglingarmerki á gamla Stýri- mannaskólanum. Nýi turninn er á deiliskipulagi frá 2007. Þegar er risinn nítján hæða turn á Höfðatorgi. Eftir ábendingu Faxaflóahafna árið 2009 var sjókortum breytt vegna þess að sá turn skyggði á vitann í Stýrimannaskólanum. „Ef nú stendur til ný turnbygging á svipuðum stað er hætt við því að enn muni þrengja að innsiglingar- merkjum Gömlu hafnarinnar,“ segir í bréfi Faxaflóahafna til umhverfis- og skipulagssviðs sem boðaði hags- munaaðila til samráðsfundar um málið. Í minnisblaði af samráðsfundin- um er haft eftir fulltrúa Faxaflóa- hafna að „til lengri framtíðar væri eina lausnin að byggja vita niður við ströndina“. Jafnframt kom fram að mögulegt sé að hafa vita á þaki hússins við Guðrúnartún 8. - gar Nýr turn á Höfðatorgi gerir út um siglingamerki á Stýrimannaskólanum: Reisa þarf nýja vita í Reykjavík ILLA Í STAKK BÚINN Rektor HA telur að ekki séu forsendur fyrir því að opna læknadeild við Háskólann á Akureyri. Forseti læknadeildar HÍ segir að lækna- skortur á Íslandi sé vegna lélegra kjara lækna, ekki vegna þess hversu fáir séu útskrifaðir. VIGDÍS HAUKSDÓTTIR STEFÁN B. SIGURÐSSON MAGNÚS KARL MAGNÚSSON JAFNRÉTTI Árangurinn gæti komið í ljós eftir tvö ár, segir Ólafía B. Rafns- dóttir, formaður VR. STÝRIMANNASKÓLINN OG HÖFÐA- TORGSTURNINN Núverandi turn við Höfðatorg skyggir á siglingamerki á Stýrimannaskólanum og nýr turn mun ekki bæta úr skák. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON VIKAN 16.10.13 - 22.10.13 1 2Árleysi alda Bjarki Karlsson Vísindabók Vill Vilhelm Anton Jónsson 5 Litgreining og stíll Heiðar Jónsson 6 Amma glæponDavid Walliams 7 Glæpurinn Ástarsaga Árni Þórarinsson 8 Út að hlaupa Elísabet M. / Karen K. 10 Heilsubók JóhönnuJóhanna Vilhjálmsdóttir9 Ég skal gera þig svo hamingju- saman - Anne B. Ragde 4 Höndin Henning Mankell3 Maður sem heitir Ove Frederik Backman
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.