Fréttablaðið - 24.10.2013, Síða 19
FIMMTUDAGUR 24. október 2013 | NEYTENDUR | FRÉTTIR | 19
Frá og með 1. desember öðlast
einstaklingar sjálfkrafa rétt til
fullrar greiðsluþátttöku sjúkra-
trygginga í lyfjakostnaði þegar
þeir hafa náð þakinu sem skil-
greinir hámarkskostnað einstak-
lings. Umsókn læknis sem nú er
krafist verður þar með óþörf.
Í lyfjagreiðslukerfinu sem tók
gildi 4. maí síðastliðinn greiðir
hver einstaklingur hlutfallslega
minna eftir því sem lyfjakostn-
aður hans eykst innan 12 mán-
aða tímabils. Í fyrsta þrepi greið-
ir einstaklingurinn lyf að fullu, í
öðru þrepi greiðir hann fimmtán
prósent af verði lyfja og í þriðja
þrepi greiðir hann 7,5 prósent.
Á vef velferðarráðuneytisins
segir að krafan um að lækn-
ir sæki sérstaklega um fulla
greiðsluþátttöku til sjúkratrygg-
inga hafi verið gagnrýnd frá
upphafi og að bent hafi verið á að
nýta bæri kosti rafræna kerfis-
ins að fullu þannig að þetta gerð-
ist sjálfkrafa.
Tekið er fram að við þetta
sparist vinna lækna við gerð
umsókna auk þess sem einstak-
lingar þurfi hvorki að bíða eftir
útgáfu skírteinis né greiða fyrir
kostnað vegna umsóknar læknis.
- ibs
Umsókn læknis nú óþörf:
Lyfjagreiðslu-
kerfið einfaldað
Lögmannavaktin er rekin af
Lögmannafélagi Íslands. Þar er
hægt að fá ókeypis lögfræðiað-
stoð og ráð á þriðjudagseftirmið-
dögum.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu
hringja og panta tíma en hringt
er í íbúa landsbyggðarinnar.
Síðdegis á miðvikudögum
býður Lögrétta, félag laganema
við Háskólann í Reykjavík, upp
á endurgjaldslausa lögfræðilega
ráðgjöf.
Orator, félag laganema við
Háskóla Íslands veitir ókeypis
lögfræðiaðstoð á fimmtudagseft-
irmiðdögum. - jme
Þjónusta við neytendur:
Veita ókeypis
löfræðiaðstoð
LYF Nú þarf hvorki að bíða eftir útgáfu
skírteinis né greiða kostnað vegna
umsóknar læknis.
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Þau fyrirtæki sem þegar hafa öðlast jafn-
launavottun eru: Íslenska gámafélagið,
IKEA, ISS, Parlogis, Johan Rönning, Land-
mælingar Íslands, Deloitte, KPMG, Logos,
Ölgerðin og Securitas.
Óútskýrður launamunur kynjanna innan
VR er nú 9,4%. Með Jafnlaunavottun VR
geta framsækin fyrirtæki látið gera faglega
úttekt á því hvort innan veggja þeirra séu
greidd mishá laun fyrir jafnverðmæt störf.
jafnlaunavottun.vr.is
Jafnlaunavottun VR er fyrir öll fyrirtæki og opinberar
stofnanir. Hún staðfestir að konur og karlar fái sömu
laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Leiðréttum
launamun kynjanna
„Bestu kaup sem ég hef á ævi minni gert voru þegar ég fjárfesti í flugmiða til
Færeyja í júní árið 2004. Ég hafði séð auglýst námskeið í færeysku og sótti um
að komast á það og fékk. Þar var annar þátttakandi frá Íslandi á námskeiðinu og
með okkur tókust ástir. Ég kynntist sem sagt konunni minni í Færeyjum og við
hófum búskap stuttu eftir að við komum aftur til Íslands. Þetta eru náttúrlega
langbestu kaup sem ég hef gert,“ segir Bjarki Karlsson, ljóðskáld og metsöluhöf-
undur.
„Verstu kaup sem ég hef gert voru að fjárfesta í séreignasparnaði í
Landsbankanum. Sparnaðurinn minn hvarf að hálfu í hruninu og ég
á von á að ef ég fæ eitthvað greitt af því sem eftir stendur verði það
dregið frá greiðslum sem ég fæ frá lífeyrissjóðnum mínum. Það er allt
tekjutengt þegar maður verður gamall,“ segir Bjarki.
NEYTANDINN Bjarki Karlsson
Bestu kaupin voru flugmiði til Færeyja
Lággjaldaflugfélagið Ryanair
hefur athugað flug til Keflavíkur
og Akureyrar, að því er haft er
eftir Elínu Árnadóttur, að-
stoðarforstjóra Isavia, á vefnum
turisti.is. Þar bendir Elín á að
Ryanair sé vant því að fá mikinn
stuðning frá flugvöllum og ferða-
málayfirvöldum en hvorki Isavia
né íslensk ferðamálayfirvöld hafi
getað boðið slíkt. Erfitt aðflug á
Akureyrarflugvelli hafi hins vegar
orðið til þess að sá kostur var ekki talinn álitlegur.
Greint er frá því á vefnum að Ryanair sé eitt stærsta flugfélag Evrópu
og flytji árlega um 80 milljónir farþega. Í flota flugfélagsins séu rúmlega
300 Boeing-flugvélar.
Kostnaður í Kefl avík of hár
fyrir Ryanair