Fréttablaðið - 24.10.2013, Page 36
fyrir sanngjarnt verð. „Við bjóð-
um einnig upp á þá þjónustu að
hreinsa upp eldri legsteina, bæta
við áletrun og hreinsa og endur-
mála þegar farið er að sjá á letri.“
Uppsetning legsteina allt árið
Heiðar bendir á að hægt sé að setja
legsteina niður allt árið um kring.
„Við uppsetningu legsteins skipt-
um við um jarðveg undir steinin-
um, hellusandur er settur í staðinn
fyrir moldina og þjappað og slétt
vel þannig að steinninn standi
beinn og fallegur í kirkjugarð-
inum,“ segir hann. Graníthöllin
tekur ábyrgð á uppsetningu leg-
steins í þrjú ár frá kaupdegi. „Ef
legsteinn fer að halla eða síga er
um að gera að hafa samband við
okkur og við komum og gerum
tilheyrandi ráðstafanir til að laga
undirlag og rétta legsteininn af.
Um Graníthöllina
Graníthöllin er til húsa í Bæjar-
hrauni 26 í Hafnarfirði, á móti
Fjarðarkaupum, en fyrirtækið
þjónustar allt landið. Fyrirtækið
er í rúmgóðu og fallegu húsnæði
með góðu aðgengi og vel er tekið
á móti öllum. Nánari upplýsing-
ar er að finna á granithollin.is og
í síma 555-3888. Alltaf er heitt á
könnunni og bakkelsi í boði.
Graníthöllin er á Facebook
Fram að jólum er leikur í gangi
sem felst í því að þeir sem líka
(like) við síðuna og kvitta fyrir
þátttöku styrkja Barnaspítala
Hringsins um 10 kónur. Leik-
urinn felur einnig í sér gjafir til
þátttakenda en á hverjum föstu-
degi fram til jóla eru dregnir úr
tíu þátttakendur og vinna þeir
heppnu gjafabréf, út að borða
fyrir tvo á veitingastaðnum Saffr-
an við Bæjarhraun í Hafnarfirði.
KYNNING − AUGLÝSINGÚtfarir
FRAMHALD AF FORSÍÐU
2 FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2013
Andrúmsloftið er hátíðlegt í kirkjugörð-um á aðfangadegi jóla og ánægju-legt að upplifa hversu fólki líður vel
að sinna þessum hluta mannlífsins sem er
heimsókn í kirkjugarð um jól og að sýna
látnum ástvinum virðingu,“ segir Þorgeir
Adamsson, garðyrkjustjóri Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma.
Þorgeir segir Íslendinga glysgjarnari en
frændur vora á Norðurlöndunum þegar
kemur að jólaskreytingum á leiði.
„Skreytingar Íslendinga eru upp til hópa
litríkar og íburðarmiklar á sama tíma og
stefna okkar í kirkjugörðunum er að verða
umhverfisvænni. Við mælumst því til að fólk
útbúi jólaskreytingar úr vistvænum og end-
urvinnanlegum efnivið, eins og mismun-
andi tegundum sígrænna greina, könglum,
stráum, þurrkuðum berjum og slaufum úr
niðurbrjótanlegum efnum.“
Förgun á gríðarlegu magni óendurvinn-
anlegra jólaskreytinga er afar kostnaðarsöm
fyrir kirkjugarðana, að sögn Þorgeirs.
„Ákjósanlegast væri að geta fargað öllum
jólaskreytingum í jarðvegsgerð innan garð-
anna. Kertadósir fara beint í endurvinnslu
málma og starfsfólk Bjarkaráss hirðir kertavax
sem fellur til af óbrunnum kertum og notar til
að steypa ný útikerti,“ upplýsir Þorgeir.
Hann segir boðskapinn smám saman vera
að komast til skila.
„Við viljum síður vera með boð og bönn
heldur sjá þetta þróast á réttan hátt. Því erum
við þakklát fyrir viðtökurnar sem komið er en
betur má ef duga skal.“
Í Fossvogs- og Gufuneskirkjugarði gefst
kostur á raflýsingu sem fer fram í gegnum
verktaka. Kveikt er á ljósakrossum fyrsta
sunnudag í aðventu og ljósin látin loga fram
yfir þrettándann.
„Raflýst jólaljós eru sívinsæl og tilkomu-
mikið að horfa á tindrandi jólalýsingu í kirkju-
görðum á aðventunni,“ segir Þorgeir sem
stendur vaktina á aðfangadag sem hann segir
gestkvæmasta dag ársins í kirkjugörðum.
„Þá þjónusta starfsmenn okkar gesti og
stjórna umferð sem er stöðugt frá klukkan
átta að morgni þar til þjónustu okkar lýkur
klukkan 15. Eftir það er umferð frjáls inn í
garðana og sjáum við vel á ummerkjum að
fólk kemur að leiðum fram á jólanótt.“
Þorgeir segir hjartnæmt að sjá hvernig
margar stórfjölskyldur sameinast ár eftir ár
við leiði ömmu, afa eða annarra sem kvatt
hafa jarðvistina á undan.
„Víst koma sumir í sorg og söknuði að leið-
um ástvina sinna á aðfangadag en sorgin er
þó ekki áþreifanleg heldur friður jóla sem
ríkir í hjörtum gesta.“
Sorgin víkur fyrir friði jólanna
Ómissandi hluti af jólahaldi margra Íslendinga er að eiga kyrrðarstund við leiði látinna ástvina á aðfangadag, líta yfir farinn veg og
rifja upp minningar um jólin sem voru. Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma mælast til að jólaskreytingar á leiði séu unnar úr
náttúrulegum, vistvænum og endurvinnanlegum efnivið.
Þorgeir hvetur fólk til að útbúa endurvinnanlegar og náttúru-
legar jólaskreytingar á leiði ástvina fyrir komandi jól. MYND/GVA
Jólaskreytingar setja hátíðlegan blæ á kirkjugarðana en mikilvægt er að hafa þær vistvænar þar sem
förgun á óendurvinnanlegum jólaskreytingum er afar kostnaðarsöm. MYND/VILHELM
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hansen, ivarorn@365.is, s. 512 5429 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.