Fréttablaðið - 24.10.2013, Page 52
24. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
FIMMTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
SIX-12347
17.995.-
SIX-9268
16.995.-
SIX-13279
24.995.-
SIX-12356
19.995.-
SIX-1139
18.995.-
SIX-B831A
22.995.-
Opnanir
18.00 Opnunarhátíð Lygnu,
fjölskyldumiðstöðvar. stendur
á milli klukkan 18 til 20. Lygna
er staðsett við Síðumúla 10.
Allir hjartanlega velkomnir.
Upplestur
18.00 Fyrsta ljóðabók Berg-
rúnar Önnu Hallsteinsdóttur,
Stofumyrkur, kemur út í hjá
forlaginu Meðgönguljóð.
Blásið verður til útgáfuhófs í
Bókabúð Máls og menningar
kl 18. Lestur og veitingar í
boði.
Pub Quiz
21.00 Rokk Quiz á Bar 11.
Húsið er opnað klukkan 21
og keppni hefst stundvíslega
klukkan 22. Allir velkomnir og
það kostar ekkert að taka þátt.
Spyrill að þessu sinni verður
Matti á Rás 2.
Tónlist
22.00 Bítladrengirnir blíðu
halda tónleika á Obladí-
oblada,Frakkastíg 8.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is
Í kvöld klukkan 20.00 verður
„Aumingjakynslóðin“ sýnd í Þjóð-
leikhúskjallaranum.
Ásrún Magnúsdóttir, Kara Her-
gils og Védís Kjartansdóttir eru
danshöfundar. Þær tóku höndum
saman og settu upp verk í sam-
starfi við tíu aðra listamenn.
Sýningin leitast við að svara
áleitnum spurningum höfunda.
„Þegar er búið að finna upp
rokkið, pönkið, hipparnir komnir
og farnir, Ísland orðið sjálfstætt,
rauðsokkur stignar fram, stríðinu
lokið, tyggjó komið til landsins,
knörrinn sigldur úr landi og þotan
flogin inn. Hvað er þá eftir handa
okkur að berjast fyrir? Snúumst
við bara í kringum okkur sjálf?“
- ósk
Aumingjakyn-
slóðin sýnd
HÖFUNDAR AUMINGJAKYN-
SLÓÐARINNAR Höfundar verksins
eru þær Védís Kjartansdóttir, Ásrún
Magnúsdóttir og Kara Hergils, en hana
vantar á mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hið íslenska töframannagildi,
HÍT, stendur fyrir árlegu töfra-
kvöldi í Salnum í Kópavogi í
kvöld. Kvöldin hafa verið haldin
hátíðleg frá því félagið var stofn-
að árið 2007.
Aðalgestur sýningarinnar er
breski töframaðurinn Richard
McDougall, en hann hefur meðal
annars leikið listir sínar fyrir
Elísabetu Bretlandsdrottningu,
Sir Paul McCartney og Ringo
Starr. McDougall er fyrrverandi
heimsmeistari í Close Up Magic
og hefur einnig unnið náið með
töframanninum þekkta, Derren
Brown, Fimm íslenskir töfra-
menn taka þátt í sýningunni,
Skúli Rafn, Kristinn Gauti, Skúli
Páls, Jón Víðis og Einar einstaki.
Eins og undanfarin ár verða sýnd
töfrabrögð í nálægð um allt húsið
í hléi.
Sýningin hefst klukkan 20 og
er miðaverð 2.900 krónur.
Töfrasýning í
Salnum
TÖFRUM LÍKAST Jón Víðis er á meðal
þeirra sem koma fram í Salnum í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Íkorni er aukasjálf tónlistarmannsins
Stefáns Arnar Gunnlaugssonar sem
hefur komið víða við. Auk þess að semja
og flytja tónlist með hljómsveitunum á
borð við Buff, Lights on the Highway,
Jónasi Sig og fleirum hefur hann getið
sér gott orð sem upptökustjóri og útsetj-
ari. Nýja platan, sem gefin er út af
útgáfufyrirtækinu Geimsteini, verður
flutt í heild sinni á útgáfutónleikum í
Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld klukk-
an 20.00.
Einvalalið tónlistarmanna er Íkorna
til halds og trausts við flutning tónlist-
arinnar. - glp
Íkorni gefur út plötu
Tónlistarmaðurinn Stefán Örn gefur út eigið efni
ÍKORNI Er aukasjálf tónlistar-
mannsins Stefáns Arnar Gunn-
laugssonar.