Fréttablaðið - 24.10.2013, Síða 54
24. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING TÓNLIST | 42
TÓNNINN
GEFINN
Kjartan Guðmundsson
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
18.10.2013 ➜ 23.10.2013
1 Lorde Royals
2 Katy Perry Roar
3 Arctic Monkeys Do I Wanna Know?
4 One Republic Counting Stars
5 Baggalútur og Jóhanna Guðrún Mamma þarf að djamma
6 Emiliana Torrini Speed Of Dark
7 Ellie Goulding Burn
8 Steinar Up
9 Egill Ólafsson /
Moses Hightower / Lay Low Ekkert þras
10 Nýdönsk Where Dreams Go To Die
1 Pálmi Gunnarsson Þorparinn
2 Helgi Björnsson Helgi syngur Hauk
3 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
4 Úr söngleik Borgarleikhússins Mary Poppins
5 Ýmsir Pottþétt 60
6 Of Monsters And Men My Head Is An Animal
7 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music
8 Ojba Rasta Friður
9 Emilíana Torrini Tookah
10 Paul McCartney New
Í spilaranum
Ojba Rasta - Friður
Hljómar - Fyrsti kossinn - Hljómar í 50 ár
Dimma - Myrkraverk í Hörpu
Prism er fjórða hljóðversplata
bandarísku tónlistarkonunnar
Katy Perry og kemur hún út á
vegum Capitol Records. Upptök-
ur hófust í fyrra eftir að síðasta
plata hennar, Teenage Dream frá
árinu 2010, hafði verið endur-
útgefin í mars með aukalögum.
Lagasmíðarnar á Prism voru
undir miklum áhrifum frá
sænskum söngkonum á borð við
Robyn og Lykke Li. Samstarfs-
menn hennar til margra ára,
hinn sænski Max Martin og Dr.
Luke, aðstoðuðu hana við upptök-
ur og lagasmíðar, auk þess sem
náungar á borð við Cirkut, Greg
Wells, Benny Blanco og StarGate
lögðu sitt af mörkum.
Fyrsta smáskífulag Prism,
Roar, kom út í ágúst síðastliðn-
um og fór umsvifalaust á toppinn
á bandaríska Billboard-listan-
um. Samanlagt fór það á topp tíu
í 25 löndum. Hér á landi er það
í öðru sæti á Tónlistanum aðra
vikuna í röð á eftir Royals með
Lorde. Þess má geta að annað
lag á plötunni, Ghost, fjallar um
misheppnað hjónaband hennar og
leikarans Russells Brand.
Katy Perry, sem verður 29 ára
á morgun, var skírð Katheryn
Elizabeth Hudson. Hún fæddist
í Santa Barbara í Kaliforníu og
hlaut þar trúarlegt uppeldi. Ung
að aldri söng hún í kirkjukórum
og var fyrsta sólóplatan hennar,
Katy Hudson, einmitt kristileg
rokkplata sem kom út 2001.
Sjö ár liðu þangað til næsta
plata, One Of The Boys, kom út
og í þetta sinn var hún með risa-
útgáfuna Captiol Records á bak
við sig. Trúartónlistin var horfin
á braut og í staðinn komu gríp-
andi popplög með I Kissed a Girl
í fararbroddi sem gerði Perry að
stjörnu um víða veröld.
Platan Teenage Dream sem
kom út 2008 festi hana svo end-
anlega í sessi sem ofurstjörnu
í poppinu. Hún fór beint á topp
Billboard-listans og tryggði
Perry fjölda Grammy-tilnefn-
inga. Hið merkilega er að fyrstu
fimm smáskífulög plötunnar
náðu efsta sætinu á Billboard.
Þar með varð Teenage Dream
aðeins önnur platan í sögunni á
eftir Bad með Michael Jackson
til að innihalda fimm topplög.
Um leið varð Perry fyrsta konan í
sögunni til að ná þessum árangri.
freyr@frettabladid.is
Popp undir áhrifum
frá Robyn og Lykke
Poppsöngkonan Katy Perry hefur sent frá sér sína fj órðu hljóðversplötu, Prism.
Prism hefur fengið góða dóma víðast hvar. Breska blaðið The Telegraph
gefur henni fullt hús stiga og segir Perry hljóma eins og listamaður og
kona sem hefur loksins fundið sjálfa sig. Blöðin LA Times, The Guardian
og Rolling Stone eru einnig sátt og gefa Prism þrjár stjörnur.
Kona sem hefur fundið sjálfa sig
Ég hef aldrei lesið The Great Gatsby. Ekki heldur Þrúgur reiðinnar og
Catch-22, hvað þá 1984 og Sláturhús 5. Mér hefur líka tekist að leiða Thor
Vilhjálmsson, Þórberg Þórðarson og Halldór Laxness hjá mér í gegnum tíð-
ina, að undanskildu Sjálfstæðu fólki sem var á námsskránni í menntaskóla
eins og flestar af þeim „alvöru“ bókmenntum sem ég hef reynt mig við
og langoftast haft gagn og gaman af (mest þó af Lord of the Flies sem er
frábær bók). Ástæðan fyrir vankunnáttu minni varðandi heimsbókmennt-
irnar er því ekki áhugaleysi eða lesblinda heldur miklu fremur tímaskortur,
vegna þess að frá því á unga aldri hefur nær allur minn bóklestur beinst
að ævisögum popptónlistarfólks.
Á þeim bænum hefur löngum verið af
nógu að taka. Í frumbernsku drakk ég í mig
litprentuð rit um Duran Duran, ABBA og fleira.
Fyrsta eiginlega poppævisagan sem ég man
eftir að hafa lesið var Lifað með Lennon eftir
Cynthiu, fyrrverandi eiginkonu Bítilsins sáluga,
í hálfbæklaðri íslenskri þýðingu sem ég tók á
leigu í Borgarbókasafninu við Þingholtsstræti
og uppskar undarlegar augngotur starfsfólks
fyrir vikið. Það var eitthvað gríðarlega heillandi
við að skyggnast bak við tjöldin og kynnast (oft
og tíðum meingölluðum) persónunum á bak
við tónlistina og í kjölfarið komu þær í röðum.
Fyrst um sinn takmarkaðist lesturinn við
popparabækur sem höfðu verið þýddar á ís-
lensku eins og Elvis eftir Albert Goldman, sem
er skelfileg lesning fyrir ungan mann. Eftir því
sem tungumálakunnáttunni fleygði fram varð
mögulegt að kafa ofan í fágætari lystisemdir
og skipti þá engu hvort smekkur fyrir listsköpun viðfangsefnanna var fyrir
hendi eður ei. Þannig lærði ég snemma að fara ekki í manngreinarálit
þegar kom að þessum málum, því óvæntu ánægjurnar eru mest full-
nægjandi. Ég hef aldrei þolað Mötley Crüe, en The Dirt er stórkostleg bók.
Take It Like a Man eftir Boy George kom líka sérstaklega skemmtilega utan
af kanti og eins Freaky Dancin’ hans Bez úr Happy Mondays. Aðrar hafa
staðið fyllilega undir miklum væntingum, til dæmis Just Kids eftir Patti
Smith, Chronicles Bobs Dylan og No Irish, No Blacks, No Dogs eftir Johnny
Rotten.
Í stuttu máli vil ég helst lesa allar ævisögur þar sem popptónlist kemur
við sögu, þrátt fyrir einstaka vonbrigði á borð við Söknuð, um Vilhjálm
Vilhjálmsson, og Clapton: The Autobiography eftir gítarleikarann knáa. Ég
vona því að mínir nánustu sýni því skilning að ég fórni Mánasteini eftir
Sjón fyrir nýútkomna ævisögu Morrissey þessi jólin. Það er erfitt að kenna
gömlum hundi að sitja.
Á bak við tónlistina
PATTI SMITH
Hvers vegna sál okkar lifir
áfram eftir dauðann
Fyrirlestur á ensku / www.lif-eftir-daudann.net
LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS BOÐAR
TIL ÁRSFUNDAR FIMMTUDAGINN
31. OKTÓBER KL. 16:30
Fundurinn verður haldinn í tónlistarsal
skólans við Sölvhólsgötu, gengið inn frá horni
Skúlagötu og Klapparstígs.
Á fundinum kynna stjórnendur skólans starfsemi
hans og rekstur. Fyrirspurnir og umræður.
Fundurinn er öllum opinn.
Stjórn Listaháskóla Íslands
ÁRSFUNDUR
LISTAHÁSKÓLANS
2013
KATY PERRY Fjórða hljóðversplata Katy Perry, Prism, er komin út á vegum Capitol Records. NORDICPHOTOS/GETTY