Fréttablaðið - 24.10.2013, Page 56
24. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 44
Bad Grandpa bandarískt grín
Jackass-hópurinn snýr aftur í
gamanmyndinni Bad Grandpa.
Johnny Knoxville leikur Irving Zisman
sem ætlar að fylgja barnabarni sínu
til föður síns sem býr í öðru fylki. Á
leiðinni taka þeir upp á ýmsu sem
kemur grunlausu fólki í opna skjöldu.
Frances Ha gamansaga
Frances, sem leikin er af Gretu
Gerwig, býr í New York og hefur
sökkt sér í dagdrauma. Myndin er
í leikstjórn Noahs Baumbach, sem
á að baki gamanmyndina Squid
and the Whale. Frances Ha er falleg
gamansaga sem hefur fengið góðar
viðtökur áhorfenda.
Possession hrollvekja
Svartir sunnudagar snúa aftur. Á
sunnudag verður „költ“-myndin Pos-
session með Isabelle Adjani í aðal-
hlutverki sýnd í Bíói Paradís.
Captain Phillips sannsögulegt
drama
Tom Hanks fer með hlutverk
skipstjórans Richards Phillips, en
sjóræningjar réðust á skip hans árið
2009. Handrit
myndarinnar
er byggt á bók
sem Phillips
ritaði um
atburðinn
og kallast
A Captain‘s
Duty: Somali
Pirates, Navy
SEALs, and
Dangerous
Days at Sea. Leik-
stjóri myndar-
innar er Paul
Greeng-
rass, sem
leikstýrði
meðal
annars
Bourne
Ultima-
tum.
Kvikmyndin Disconnect er í
leikstjórn Henry Alex Rubin og
spinnur saman þrjár sögur af ein-
staklingum sem glíma við ólík
vandamál sem rekja má til gegnd-
arlausrar netnotkunar nútíma-
mannsins.
Saga Boyd-fjölskyldunnar er ein
þeirra þriggja sagna sem sagðar
eru. Táningssonur hjónanna er
lagður í einelti á netinu sem hefur
þær afleiðingar að pilturinn reynir
að stytta sér aldur og er fluttur í
dauðadái á sjúkrahús. Fjölskyldu-
faðirinn, Rich Boyd sem leikinn
er af Jason Bateman, hyggst finna
eineltisseggina í fjöru þrátt fyrir
mótbárur eiginkonu sinnar.
Þá er sagt frá föður annars
drengsins sem stendur á bak við
eineltið, en sá er leynilögreglu-
maður sem er fenginn til að kom-
ast að því hver hefur nýtt net-
upplýsingar ungra hjóna í þeim
tilgangi að ræna þau. Loks er
saga fjölmiðlakonunnar Ninu
Dunham, sem leikin er af And-
reu Riseborough, rakin. Dun-
ham hyggst fjalla um strípiþjón-
ustu sem þrífst á netinu og kemst
í samband við ungan mann sem
starfar á síðunni en gerist um leið
sek um lögbrot.
Með helstu hlutverk fara Jason
Bateman, Hope Davis, Frank
Grillo, Andrea Riseborough, Paula
Patton, sem er eiginkona söngv-
arans Robins Thicke, Michael
Ny qvist, sem fór með hlutverk
Mikaels Blomkvist í Millenium-
þríleiknum, Alexander Skars-
gård, Max Thieriot og fatahönn-
uðurinn Marc Jacobs, sem þreytir
hér frumraun sína á hvíta tjaldinu.
Disconnect er fyrsta kvikmynd
Rubins, en hann hefur hingað til
aðallega fengist við auglýsinga-
leikstjórn og er í hópi fimm vin-
sælustu auglýsingaleikstjóra
heims í dag. Rubin hefur unnið
Ljónið í Cannes 22 sinnum og
unnið til fimm Clio-verðlauna á
síðustu fjórum árum.
Kvikmyndin hefur fengið
ágæta dóma og hlýtur meðal ann-
ars 64 stig af hundrað í einkunn
á vefsíðunni Metacritic og 7,5 í á
IMDb. - sm
Skúmaskot netheima
Disconnect er frumsýnd annað kvöld. Myndin tvinnar saman þrjár sögur af
einstaklingum sem glíma við vandamál tengd óhófl egri netnotkun.
Í VANDRÆÐUM Alexander Skarsgård og Paula Patton fara með hlutverk ungra hjóna sem lenda í klóm netsvindlara í kvikmynd-
inni Disconnected.
➜ Þegar leynilögreglumaðurinn Mike Dixon skoðar myndir af
Hull-hjónunum má sjá mynd af Skarsgård í fullum herklæðum.
Myndin var tekin af leikaranum er hann fór með hlutverk í sjón-
varpsþáttunum Generation Kill árið 2008.
Stuttmyndahátíðin Northern
Wave fer fram í Grundarfirði
í sjötta sinn dagana 15. til 17.
nóvember. Undanfarin fimm ár
hefur hátíðin farið fram í mars,
en vegna mikillar aðsóknar
ferðamanna í bæinn á þeim
tíma reyndist nauðsynlegt að
færa hátíðina fram á haust.
„Háhyrningar hafa gert
sig heimakæra í firðinum
á vorin og ferðamönnum
hefur fjölgað mikið vegna
þessa. Ef þetta gengur
vel höldum við hátíðina í
nóvember héðan í frá,“
útskýrir Dögg Mósesdóttir,
framkvæmdastjóri hátíðar-
innar.
Fjöldi verðlaunamynda
er sýndur á hátíðinni og ber þar helst að
nefna íslensku stuttmyndina Hvalfjörð og
írönsku myndina More Than Two Hours.
Að auki keppa tíu íslensk tónlistarmynd-
bönd um titilinn besta íslenska myndband-
ið. Um tuttugu erlendir leikstjórar munu
sækja Northern Wave. „Það er skemmti-
legt að margar af þeim myndum sem
bárust okkur eru að flakka um flottustu
hátíðir heims, fólki þykir greinilega eftir-
sóknarvert að fá að taka þátt í þessari litlu
hátíð í íslensku sjávarplássi,“ segir Dögg.
Margaret Glover, sem starfar við Lond-
on Film School, situr í dómnefnd hátíð-
arinnar ásamt Silju Hauksdóttur og
Hafsteini Gunnari Sigurðssyni. Jim Beck-
mann og Benedikt Reynisson velja besta
tónlistarmyndbandið. - sm
STUTTMYNDA-
HÁTÍÐ FÆRÐ
VEGNA
HÁHYRNINGA
Northern Wave fer fram
í Grundarfi rði í sjötta sinn í
nóvember. Hátíðin var færð
vegna háhyrninga í fi rðinum.
SUTTMYNDAHÁTÍÐ Íranska stuttmyndin More
Than Two Hours verður sýnd á stuttmynda-
hátíðinni Northern Wave. Dögg Mósesdóttir er
framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
stuttmynd verður sýnd á
Northern Wave í ár. Um
200 manns sóttu hátíðina í fyrra,
að heimamönnum frátöldum.
91
FRUMSÝNINGAR
Fjórar kvikmyndir eru
frumsýndar um helgina.
Fjölbreytt bíóhelgi
BÍÓFRÉTTIR
Tvær kvikmyndir sem fjalla um
baráttu manns við Everst, hæsta
fjall veraldar, eru nú í bígerð.
Önnur kvikmyndin er í leikstjórn
Baltasars Kormáks og framleidd
af kvikmyndaverinu Universal,
hin er framleidd af Sony og er
leikstýrt af Doug Liman, leik-
stjóra The Bourne Identity.
Síðarnefnda myndin fjallar um
ævintýri breska fjallgöngumanns-
ins George Mallory, sem lést
árið 1924, og átti breski leikarinn
Tom Hardy að fara með hlutverk
Mallorys. Hardy getur ekki tekið
að sér hlutverkið vegna anna og
þykir líklegt að Benedict Cumber-
batch komi í hans stað. Aðrir sem
koma til greina í hlutverkið eru
Joel Kinnaman, James McAvoy,
Tom Hiddleston, Henry Cavill,
Luke Evans og Jim Sturgess.
Kvikmynd Baltasars segir frá því
þegar átta fjallgöngumenn létust
í byl á fjallinu í maí
árið 2006. Leik-
stjórinn dvaldi
í Nepal í byrjun
mánaðarins í leit
að tökustöðum, en
tökur á myndinni
eiga að hefj-
ast í næsta
mánuði sam-
kvæmt frétt
Deadline.
Everest-mynd
leikaralaus
EKKI MEÐ Tom Hardy er hættur við
að fara með hlutverk í kvikmynd um
fjallgöngumanninn George Mallory.
NORDICPHOTOS/GETTY
BENEDICT
CUMBERBATCH
Bændur og búalið
athugið!
Nú er Bóndabrie kominn
í nýjar umbúðir.
Gríptu hann með þér í
næstu verslun.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA