Fréttablaðið - 24.10.2013, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 24.10.2013, Blaðsíða 60
24. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48 „Við funduðum með yfirmönnum Remo á alþjóðlegu hljóðfærasýn- ingunni í Frankfurt fyrr á árinu. Í framhaldi var skrifað undir samning í gegnum umboðsaðila Remo á Íslandi, Hljóðfærahúsið – Tónabúðina,“ segir Benedikt Brynleifsson trommuleikari, sem skrifaði, ásamt Jóhanni Hjör- leifssyni trommuleikara, undir samstarfssamning við trommu- skinna framleiðandan Remo fyrir skömmu. Benedikt er best þekktur fyrir að spila með hljómsveitunum 200.000 Naglbítar og Todmobile. Jóhann Hjörleifsson er þekktast- ur fyrir að spila með Sálinni hans Jóns míns og Stórsveit Reykja- víkur. Remo er einn virtasti fram- leiðandi trommuskinna í heimin- um og hefur verið leiðandi í gerð trommuskinna síðastliðin 50 ár. Þeir voru fyrstir að setja á mark- að trommuskinn úr Mylar-gervi- efni í stað nautshúða. „Það er mikill fengur í því fyrir okkur í Hljóðfærahúsinu – Tóna- búðinni að fá þá Jóhann og Bene- dikt í raðir Remo-listamanna, en í röðum Remo-listamanna eru flest stærstu nöfn heims í trommu- leik,“ segir Sindri Heimisson, framkvæmdastjóri Hljóðfæra- hússins – Tónabúðarinnar. Þekktir trommuleikarar sem leika á Remo skinn og búnað eru trommugoðsögnin Steve Gadd sem hefur meðal annars leikið með Eric Clapton, Ringo Starr úr Bítlunum, Larry Mullen Jr. úr U2 og Taylor Hawkins úr Foo Fight- ers, ásamt mörgum öðrum. -glp Íslenskir trommuleikarar gera stóran samstarfssamning Jóhann Hjörleifsson og Benedikt Brynleifsson gerðu samning við einn stærsta trommuskinnaframleiðanda heims, Remo. MIKILL FENGUR Jóhann Hjörleifsson, Sindri Heimisson og Benedikt Brynleifsson sáttir við samninginn. Áætlað er að Anchorman 2: The Legend Continues, framhald kvikmyndarinnar Anchorman: The Legend of Ron Burgundy frá árinu 2004, komi í kvikmyndahús vestanhafs 20. desember næst- komandi. Myndinni er leikstýrt af Adam McKay sem leikstýrði einnig fyrri myndinni. Í myndinni leika Will Ferrell, Steve Carell, Paul Rudd, Kristen Wiig og Megan Good, og sam- kvæmt slúðurmiðlum vestanhafs koma margir frægir til með að sjást í mynd. Fyrri myndin naut gríðarlegra vinsælda og talsverð eftirvænt- ing ríkir eftir framhaldinu. - ósk Anchorman 2 kemur fyrir jól Í HLUTVERKI RONS BURGUNDY Will Ferrell leikur fréttaþulinn Ron Burgundy í kvikmyndinni The Anchorman AFP/NORDICPHOTOS Breski leikarinn Charlie Hunnam hætti fyrir stuttu við að taka að sér aðalhlutverk kvikmyndar- innar Fifty Shades of Grey. Mikið hefur verið fjallað um málið í erlendum fjölmiðlum og útskýrði Hunnam ákvörðun sína fyrir sjónvarpsstöðinni E!. „Ég þarf að sinna persónuleg- um málum. Þegar ég hef lokið við tökur á sjónvarpsþáttunum [Sons of Anarchy] ætla ég til Englands að hitta fólkið mitt. Síðan mun ég taka að mér að leika í nýrri kvik- mynd eftir Guillermo [del Toro]. Ég hyggst einbeita mér að þessu í bili,“ sagði leikarinn. Hann missti föður sinn í maí. Líklegt þykir að Jamie Dornan, Billy Magnussen eða Luke Bracey taki við hlutverki Christians Grey í stað Hunnams. Leikstjóri myndarinnar, Sam Taylor-Johnson, hyggst hefja tökur á myndinni í nóvember og er áætlaður frumsýn- ingardagur hennar 14. ágúst á næsta ári. Hyggst sinna fj ölskyldunni SINNIR FJÖL- SKYLDUNNI Charlie Hunnam hætti við Fifty Shades of Grey til að sinna fjöl- skyldu sinni. NORDICPHOTOS/GETTY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.