Fréttablaðið - 07.11.2013, Side 2

Fréttablaðið - 07.11.2013, Side 2
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 NÁTTÚRUVERND „Einn hraunavinur kom með þessa fána og okkur fannst við hæfi að stinga þeim niður til að reyna að bæta ásýnd svæð- isins aðeins,“ segir Reynir Ingibjartsson hraunavinur og segir svæðið stórskemmt eftir að 40 tonna ýta ruddist yfir það. „Annars köllum við þessa daga Kjarvalsdaga. Við höfum óskað eftir því við myndlistarfólk að það leggi okkur lið við verndun hraunsins. Það mættu hins vegar fáir myndlistarmenn í gær enda viðraði ekki til að standa úti og mála. Það var rok og á tímabili gekk á með éljum,“ segir Reynir og bætir við að spáð sé betra veðri þegar líður að helgi. Hann segir að nokkrir myndlistarmenn hafi boðið hraunavinum myndir sem þeir geti selt til að fjármagna starfsemi sína. Fyrir það séu hraunavinir afar þakklátir. -jme Hraunavinir halda áfram baráttu fyrir vernd Gálgahrauns: Kjarvalsdagar standa yfir ÁSÝNDIN BÆTT Hraunavinir stungu niður fánum í gær til að bæta ásýnd hrauns- ins. Reynir Ingibjartsson hraunavinur stingur niður fána í hraunið skammt frá Kjarvalsklettunum svokölluðu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SAMGÖNGUR „Norræna hefur verið þungamiðja í atvinnulífi bæjar ins,“ segir Vilhjálmur Jóns- son, bæjarstjóri Seyðisfjarðar. Rekstraraðili Norrænu, Smyril Line, hefur til athugunar að sigla ferjunni til Fjarðabyggðar í stað Seyðisfjarðar. Forsvarsmenn Smyril Line hafa sent bæjar- og hafnarstjórn Fjarðabyggðar erindi vegna þessa og verður það skoðað á næstu dögum. Valdimar Hermannsson, for- maður stjórnar Sambands sveitar- félaga á Austurlandi, segir að erindið hafi komið á óvart. Hann segir að stjórnendur Fjarða- byggðar vilji styðja við bakið á nágrönnum sínum á Seyðisfirði. „En ef stjórnendur Smyril Line eru búnir að taka ákvörðun um að fara frá Seyðisfirði, þá verðum við að ræða við þá.“ Tvær hafnir þykja koma til greina i Fjarða- byggð, Reyðarfjöður og Eski- fjörður. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, forsætisráðherra og fyrsti þingmaður kjördæmisins, hitti bæjarstjóra Seyðisfjarðar á fundi í gær og á fundinum voru þessi mál rædd. - jme,bl Eigendur farþegaferjunnar Norrænu íhuga að hætta að sigla til Seyðisfjarðar Skoða Eskifjörð og Reyðarfjörð SMYRIL LINE Eigendur Norrænu hafa sent bæjaryfirvöldum í Fjarðabyggð erindi og óskað eftir viðræðum um að Norræna hefji siglingar annaðhvort til Eskifjaðar eða Reyðarfjarðar. SAMFÉLAG „Það eru endalausir nýir fletir til að upplifa og sjá,“ segir Gunnar Þór Jónsson sem starfar sem sjálfboðaliði á leikskólanum Tjarnarseli í Reykjanesbæ. Hann fór á eftirlaun síðasta vor eftir fjörutíu ára starf sem kenn- ari og skóla- stjóri, nú síðast sem skólastjóri Heiðarskóla í Reykjanesbæ. „Þetta á sér langan aðdrag- anda. Konan m í n h e f u r verið leikskóla- stjóri á Tjarnarseli í 18 ár. Þetta var einn af fyrstu leikskólunum sem fór markvisst í lestrar- og skriftar kennslu og ég hef fylgst með starfi þeirra lengi, bæði hjá konunni og svo barnabörnunum sem hafa komið nánast læs upp úr leikskólanum.“ Gunnar langaði að sjá hvernig unnið er með lestur, skrift og íslenskukennslu í leikskólanum og hjálpar til með lestrarkennslu fyrir elstu börn leikskólans fyrir hádegi alla virka daga. „Það er frábært að fylgjast með þeim og fá að taka þátt af fullum krafti. Svo get ég líka kannski lagt eitthvað til málanna. Það er líka alltaf gaman að vinna með börnum og fá að kenna þeim. Mín reynsla og áhugi liggur fyrst og fremst á sviði skólamála,“ segir Gunnar. Hann segir lítið mál fyrir þau hjónin að starfa saman. „Við höfum unnið mikið saman í gegn- um tíðina en ég veit svo sem ekki hvernig það er fyrir hitt starfs- fólkið að kallinn sé kominn í starfsmannahópinn.“ Gunnar þvertekur fyrir að hann hafi tekið að sér starfið af því að honum leiddist eftir að hann fór á eftirlaun. „Alls ekki. En mig hefur lengi langað til að taka þátt í verk- efninu og loksins fékk ég tíma fyrir það.“ Ragnhildur Sigurðardóttir, aðstoðarleikstjóri Tjarnarsels, hefur stýrt lestrarkennslunni í leikskólanum og fagnar framlagi Gunnars. „Það er alveg yndislegt að fá hann hérna inn. Hann kennir okkur nýjar leiðir og hann kynn- ist leiðum leikskólans. Svo finnst börnunum óskaplega gaman að hafa hann með,“ segir Ragnhildur. Tjarnarsel hefur í tíu ár lagt áherslu á lestrarnám. Markmiðið er að styrkja sjálfstraust barnanna og sporna við sérkennslu í grunn- skólum. Það er gert með því að kynna börnin fyrir lestri í gegnum leik og vekja forvitni þeirra. erlabjorg@frettabladid.is Skólastjóri er sjálf- boðaliði á leikskóla Gunnar Þór Jónsson hafði lengi langað til að kynna sér og aðstoða við lestrar- kennslu í leikskóla. Hann lét verða af því þegar hann fór á eftirlaun síðastliðið vor. RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR LESTUR Í GEGNUM LEIK Gunnar aðstoðar leikskólakennara við að kenna börnun- um lestur í gegnum alls kyns leiki SAMFÉLAGSMÁL „Jólapakkarnir fara til Úkraínu á svæði þar sem er mikil fátækt og mikið atvinnu- leysi. Pakkarnir fara til munaðar- lausra barna og til barna sem eiga fátæka að,“ segir Salvar Geir Guðgeirsson, verkefnis- stjóri fyrir Jól í skókassa, sem er á vegum KFUM. Nokkur hundruð gjafir hafa borist en söfnuninni lýkur á laugardag. „Við biðjum fólk um að láta svo- lítinn pening fylgja með gjöfinni, 500 til 1.000 krónur. Peningarnir fer upp í sendingarkostnað,“ segir Salvar. - jme Söfnun KFUM lýkur brátt: Börn í Úkraínu fá jólagjafir SPURNING DAGSINS Það er frábært að fylgjast með þeim og fá að taka þátt af fullum krafti. Svo get ég líka kannski lagt eitthvað til málanna. Gunnar Þór Jónsson, fyrrverandi skóla- stjóri og sjálfboðaliði á Tjarnarseli. Björgólfur, eruð þið ekki í skýjunum? „Jú, við erum í sjöunda himni.“ Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, býst við áframhaldandi vexti félagsins en það skilaði nýverið hagnaði upp á rúma átta milljarða króna. DÓMSMÁL Wojciech Marcin Sadowski var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu. Wojciech, sem er pólskur ríkisborgari, var ákærður fyrir að hafa í apríl á þessu ári haldið ástralskri konu nauðugri í iðnaðarhús- næði í 30 til 40 mínútur og beitt hana ofbeldi. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa, meðan á frelsissviptingu stóð, krafið konuna um kynlíf, ítrekað slegið og sparkað í höfuð hennar og líkama, þröngvað hana til munn- maka og haldið áfram árás sinni eftir það. Wojciech neitaði sök í málinu en dómarar í málinu telja að framburður konunnar sé trú- verðugur. Hún gaf skýra og greinargóða lýs- ingu á atvikum við aðalmeðferð málsins, sem var í öllum meginatriðum í samræmi við frá- sögn hennar við skýrslutöku hjá lögreglu og við réttarlæknisfræðilega skoðun á Neyðar- móttöku í kjölfar atburðarins. Wojciech var dæmdur fyrir alla þá liði sem hann var ákærður fyrir og segir í dómnum að árás hans hafi verið mjög alvarleg og til þess fallin að valda konunni miklum ótta og van- líðan. Þá beitti hann stórfelldu ofbeldi. Hann þarf að greiða konunni rúmlega 3 milljónir króna í miskabætur. - ebg Maður sem hélt ástralskri konu nauðugri í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík dæmdur í héraðsdómi: Fimm ára fangelsi fyrir árás og nauðgun HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Wojciech Marcin Sadowski var í gær dæmdur fyrir frelsissviptingu, sér- staklega hættulega líkamsárás og nauðgun. FRÉTTABLAÐIÐ / PJETUR SIGURÐSSON STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra skipaði í gær nýja stjórnarskrár- nefnd í samræmi við samkomu- lag allra þingflokka frá því í sumar. „Í nefndinni sitja fulltrúar tilnefndir af þeim stjórnmála- flokkum sem sæti eiga á Alþingi, nánar tiltekið fjórir fulltrúar til- nefndir af ríkisstjórnarflokk- unum og fjórir af stjórnarand- stöðu,“ segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Sigurður Líndal, prófessor emeritus, er formaður nefndarinnar. - gar Endurskoðun heldur áfram: Ný nefnd um stjórnarskrána

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.