Fréttablaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 4
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 22,3% heimila fengu netið í gegnum ljósleiðara á síðasta ári en 70,8% í gegnum ADSL eða sambærilega tengingu. Ljósleiðaravæðingin hefur gengið hratt, því árið 2009 voru aðeins 3,7% heimila með ljósleiðaratengingu. VEIÐI Enginn virðisaukaskattur er innheimtur af sölu stangveiðileyfa þar sem sala á veiðileyfum flokk- ast undir fasteignaleigu. Þetta kemur fram í svari Frosta Sigur- jónssonar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, við fyrirspurn á vefnum spyr.is. Stangveiði á Íslandi veltir um 20 milljörðum króna á ári, að því er fram kemur í ársskýrslu Veiði- málastofnunar fyrir síðasta ár. Fasteignaleiga er undanþegin virðisaukaskatti og þar með útleiga á fasteignatengdum rétt- indum eins og veiðirétti. - bj Enginn VSK af stangveiðum: Veiðileyfi teljast fasteignaleiga VEIÐI Stangveiði hér á landi veltir um 20 milljörðum króna á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SKIPULAGSMÁL Flennistór auglýs- ing fyrir Coca-Cola á húsi Hótels Borgar við Pósthússtræti vakti athygli vegfarenda á þriðjudag en í gær var auglýsingin á bak og burt. „Það voru bara ekki öll tilskilin leyfi komin í hús hjá þeim sem seldi okkur auglýsingasvæðið, Hótel Borg,“ segir Jón Viðar Stef- ánsson, markaðsstjóri hjá Vífilfelli. Hann segir að auglýsingin hafi hangið uppi í sólarhring en síðan verið fjarlægð. Hann vonist til að auglýsingin verði sett upp aftur. - hva Vífilfell hljóp á sig: Risaauglýsing án heimildar GÓÐGERÐARMÁL Fréttavefurinn Vísir stefnir að því að gefa Barnaspítala Hringsins veglega peningagjöf rétt fyrir jól. Hversu há upphæðin verður veltur á Facebook-vinum Vísis því að við hvert „like“ sem Vísir fær renna 25 krónur til spítalans. „Leikurinn hefur farið afar vel af stað og í raun og veru hraðar en við hefðum þorað að vona,“ segir Tinni Sveinsson, vefstjóri Vísis. „Nú þegar hafa nokkur þús- und manns bæst í vinahóp okkar á Facebook og þar með bæst í hóp þeirra sem styrkja Barnaspítalann án þess þó að borga krónu.“ Í upphafi átti að fara af stað með leik þar sem fólk gæti unnið vinn- inga eins og vinsælt er á Facebook. Niðurstaðan varð hins vegar sú að verja peningunum í gott málefni. „Við fylgjumst spennt með þróun mála en leikurinn verður í gangi þangað til líða fer að jólum. Þannig að vonandi getum við gefið Barnaspítalanum mjög veglega jólagjöf,“ segir Tinni. - ebg Góðgerðarleikur á Facebook vekur jákvæð viðbrögð: Vinir Vísis styrkja Barnaspítala Leikur- inn fer mjög vel af stað og í raun og veru hraðar en við hefðum þorað að vona. Tinni Sveinsson vefstjóri Vísis AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ FÉLAGSMÁL Ekkert mál hefur borist nefnd sem ætlað er að úrskurða um hvort beita megi fatlað fólk nauðung á því ári sem liðið er frá því henni var komið á laggirnar. Ástæðan er fjárskortur sérfræðinga sem fjalla um málin. Um 80 mál eru í vinnslu hjá hópi sérfræðinga sem undirbýr mál sem berast til nefndarinnar, skoðar til- lögur og kemur með ábendingar um mögulegar leiðir aðrar en vald- beitingu, segir Felix Högnason, for- maður hópsins. Sérfræðingarnir sinna verkinu í hlutastarfi og fá aðeins laun í sex klukkustundir í mánuði til að vinna að málunum. Það er allt of lítill tími til að þoka þessum mikla fjölda mála áfram, segir Felix. Lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk var breytt um mitt síðasta ár með það að markmiði að draga úr nauðung í þjónustu við fatlað fólk, til dæmis á sambýlum, í dagvistun og skammtímavistun. Undir nauðung fellur til dæmis að loka hluta íbúð- ar fyrir íbúa hennar, geyma mat eða aðrar eigur í læstum hirslum, skammta peninga, halda manneskju eða flytja hana nauðuga milli staða. Eftir lagabreytinguna er starfs- mönnum sambýla, þroskaþjálfum og öðrum sem vinna með fólki með fötl- un gert að sækja um undanþágu telji þeir nauðsynlegt að beita manneskju með fötlun einhvers konar nauðung. Þar sem engin undanþága hefur verið veitt frá þeirri meginreglu að ekki skuli beita fólk með fötlun nauðung eru allar líkur á því að starfsmenn sem telja sig þurfa að beita nauðung geri það áfram þrátt fyrir að lögin banni það, segir Felix. „Það er auðvitað óheppilegt og óeðlilegt að það sé niðurstaðan,“ segir Felix. Hann segir þó engan afslátt gefinn af faglegum kröfum sem gerðar eru til sérfræðingahóps- ins. Betra sé að taka lengri tíma til að afgreiða mál en að slaka á kröfum um faglega meðferð. Á því ári sem liðið er frá því sér- fræðihópurinn var skipaður hafa um 80 mál borist, en í greinargerð með lögunum segir að búast megi við um 200 málum fyrsta árið. Felix reikn- ar með að mun fleiri umsóknir séu væntanlegar og mikilvægt að auka verulega við starfsemi sérfræði- hópsins til að losa um flöskuhálsinn. brjann@frettabladid.is Nefnd sem vernda á fatlaða gegn nauðung er í fjársvelti Allar líkur eru á að fatlaðir séu enn beittir nauðung þótt nýleg lög banni það. Engar undanþágur hafa verið veittar frá því lögin tóku gildi fyrir ári. Sérfræðingar fjalla um undanþágubeiðnir í aðeins sex tíma í mánuði. „Það er almennt mikil nauðung og mikil þvingun í þjónustu við fatlað fólk,“ segir Freyja Haraldsdóttir hjá NPA-miðstöðinni. Hún segir að leggja eigi aukna áherslu á að skoða hvers vegna þurfi að beita nauðung. „Það eru mörg dæmi um fólk sem hefur fengið við- eigandi aðstoð og í kjölfarið hefur dregið úr því að það missi stjórn á hegðun sinni og þar með því að það sé beitt nauðung,“ segir Freyja. Hún segir augljóst að það hafi áhrif á hegðun fólks sem eigi erfitt með að tjá sig hversu litlu það ráði um eigin aðstæður, til dæmis búsetu og starfsfólk sem aðstoði það. Mikil nauðung í þjónustu við fatlað fólk Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur Hæg breytileg átt í fyrstu. SLYDDA EÐA ÉL Dregur úr vindi á landinu á morgun og léttir til um vestanvert landið en má búast við lítils háttar éljum við norður- og austurströndina. -1° 13 m/s 2° 13 m/s 3° 8 m/s 5° 9 m/s Á morgun 8-15 m/s, hvassast A-til. Gildistími korta er um hádegi -2° -4° -5° -6° -8° Alicante Basel Berlín 26° 19° 13° Billund Frankfurt Friedrichshafen 9° 15° 16° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 9° 9° 23° London Mallorca New York 15° 26° 16° Orlando Ósló París 28° 4° 17° San Francisco Stokkhólmur 15° 6° 2° 6 m/s 2° 13 m/s 0° 7 m/s 1° 11 m/s -1° 7 m/s 0° 11 m/s -7° 8 m/s -1° -2° -1° -2° -3° NAUÐUNG Fatlað fólk er beitt ýmiss konar nauðung, og af ýmsum ástæðum. Í sumum tilvikum er eigum haldið frá einstaklingum, hluti íbúða þeirra lokaður af eða þeir færðir milli staða gegn eigin vilja. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu KKKKK „Meistaralega fléttuð ... Lestrarupplifun ársins.“ F R I Ð R I K A B E N Ó N Ý S D Ó T T I R / F R É T T A B L A Ð I Ð SAMFÉLAG Dagur gegn einelti er á morgun. Eru landsmenn hvattir til að standa saman gegn einelti í samfélaginu, ekki síst í skólum og á vinnustöðum. Allir eru hvattir til að leggja sitt af mörkum til að einelti fái ekki þrifist í samfélaginu og að beina sjónum að jákvæðum sam- skiptum, jákvæðum skólabrag og starfsanda. Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti stendur að hátíðar- dagskrá í Verzlunarskóla Íslands á morgun í tilefni dagsins. - ebg Allir leggja sitt af mörkum: Standi saman gegn einelti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.