Fréttablaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 30
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 30TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA MAGNÚSDÓTTIR Hvanneyrarbraut 44, Siglufirði, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 9. nóvember kl. 14.00. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar fyrir hlýtt viðmót og góða umönnun. Magnús B. Jónasson Margrét Maronsdóttir Ævar B. Jónasson Guðlaug Friðriksdóttir Sigrún J. Jónasdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, KRISTINS NILS ÞÓRHALLSSONAR Löngumýri 20, Garðabæ. Jórunn Jóna Óskarsdóttir Örn Kristinsson Geirlaug Ingibergsdóttir Elín Ýr Arnardóttir Hlynur Arnarson Snorri Freyr Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, HELGI BJÖRNSSON áður til heimilis í Ásgarði 5, Garðabæ, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 30. október. Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 8. nóvember kl. 13.00. Alda K. Helgadóttir Sigurður Ottósson barnabörn, barnabarnabörn og bróðir. Ástkær systir okkar, VALBORG ÞORGRÍMSDÓTTIR frá Selnesi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi þriðjudaginn 5. nóvember. Systkini hinnar látnu. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGIMUNDUR ÓSKARSSON Fróðengi 3, Reykjavík, lést á heimili sínu 2. nóvember sl. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju, Kirkjustétt 8, Grafarholti, þriðjudaginn 12. nóvember kl. 13. Margrét Ingimundardóttir Óskar Sigþór Ingimundarson Jón Þór Ingimundarson Ingi Pétur Ingimundarson Unnar Smári Ingimundarson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRMANN JÓNSSON Kópavogsbraut 1A, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi, fimmtudaginn 31. október, verður jarðsettur föstudaginn 8. nóvember 2013 kl. 11.00 frá Fossvogskapellu. Haukur Ármannsson Þórey Aðalsteinsdóttir Valgarð Ármannsson Guðbjörn Ármannsson Stefanía Ástvaldsdóttir Barnabörn. „Á þessari nýju plötu er ég að vinna úr því sem hefur mótað mig frá barn- æsku, öllum þeim áhrifum, til dæmis klassískum og djassískum, sem ég hef orðið fyrir innanlands og utan,“ segir djasspíanóleikarinn Árni Heiðar Karlsson sem sendir frá sér plötuna Mold í dag. Af því tilefni heldur Árni Heiðar útgáfutónleika ásamt tríói sínu á Óðinsgötu 7 klukkan 20.30 í kvöld. Árni Heiðar segir titil nýju plötunnar, sem er hans þriðja í röðinni, vísa í persónulega reynslu sína. „Orðið Mold vísar í raun til þeirrar uppeldis- legu og tónlistarlegu moldar sem ég sprett úr og svo er þetta enska orðið „mold“ sem er í raun mótunin. Hvort tveggja sameinast í titlinum og hefur skírskotun til þess sem ég er að vinna úr,“ útskýrir Árni Heiðar, en áður hefur hann sent frá sér sólóplöturnar Q árið 2001 og Mæri, sem kom út fyrir fjórum árum. „Q var líklega nokkuð dæmigerð fyrsta plata, bland í poka af lögum sem ég samdi í námi og hér og þar, og Mæri eins konar framhald af henni. Það er alltaf erfitt að lýsa verk- um sem maður er á kafi í sjálfur en ég myndi telja að þessi nýja plata sé lág- stemmdari en hinar tvær og ég horfi meira inn á við.“ Píanóleikarinn tekur einnig fram að félagar hans í tríóinu, þeir Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott Mc- Lemore á trommur, setji líka sinn svip á plötuna enda hafi þeir spilað saman í á þriðja ár. „Þótt ég semji lögin, sjái um útsetningar og hafi endanleg áhrif á lokaniðurstöðuna gerist þetta allt í mikilli samvinnu hjá okkur. Þetta er eins og að vera á leiksviði þar sem hluti verksins er spunninn, þá er best að þekkja samstarfsfólk sitt vel og geta leikið sér að hlutum. Þannig koma hæfileikar allra best í ljós.“ Útgáfutónleikana heldur Árni Heiðar á heimili vinafólks síns á Óðinsgötunni. „Þau hafa lánað mér heimilið sitt fjórum sinnum fyrir tón- leika, fyrst á Smáragötunni en sú íbúð var aðeins of lítil svo þau ákváðu að flytja í betra tónleikahúsnæði,“ segir píanistinn og hlær. „Þarna er forláta Steinway-flygill í stofunni, frábært útsýni frá suðri til austurs og fallegar svalir sem hýsa kolagrill, þannig að við bjóðum upp á hamborgara og bjór að tónleikunum loknum. Þetta verður grand,“ segir Árni Heiðar að lokum. kjartan@frettabladid.is Horfi r meira inn á við á nýrri sólóplötu sinni Djasspíanóleikarinn Árni Heiðar Karlsson sendir í dag frá sér sína þriðju plötu, Mold. Af því tilefni heldur hann útgáfutónleika á heimili vinafólks síns á Óðinsgötunni. ÓÐINSGATA Þetta er í fjórða sinn sem Árni Heiðar heldur tónleika á Óðinsgötu 7, enda rúmar heimilið ágætis fjölda gesta sem geta gætt sér á hamborgurum og bjór að tónleikum loknum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL MERKISATBURÐIR 1550 Jón Arason, biskup á Hólum, og synir hans eru teknir af lífi. 1917 Októberbyltingin í Rússlandi (samkvæmt gregoríska tíma- talinu). 1987 Ólafur Ragnar Grímsson verður formaður Alþýðubanda- lagsins og tekur við af Svavari Gestssyni. 2007 Ungur námsmaður gerir skotárás í skóla í Jokela í Finn- landi. Hann skýtur átta manns til bana, særir tólf og fremur síðan sjálfsmorð. Sameinuðu þjóðirnar samþykktu 7. nóvember 1956 að krefjast þess að Bretar, Frakkar og Ísraelsmenn kölluðu hersveitir sínar í Egyptalandi heim án tafar. Bandaríkin studdu SÞ í þessari kröfu og heimflutningar hersveitanna við Súez- skurðinn hófust viku síðar. Forsaga málsins var sú að í júlí 1956 hafði Nasser Egyptalandsforseti tilkynnt í ræðu að dagar vestrænna ítaka í araba- löndum væru taldir og Súezskurðurinn væri hér með þjóðnýttur. Þetta var þvert á þá samninga sem höfðu verið gerðir um skurðinn á árinu 1954 og Bretar, Frakkar og Ísraelsmenn brugðust hart við. Ísraelskar hersveitir komu til Egypta- lands 29. október og hersveitir Breta og Frakka fylgdu á eftir. Harðir bardagar fylgdu í kjölfarið og sáu Sameinuðu þjóð- irnar sér ekki annað fært en að skerast í leikinn til að koma í veg fyrir frekara blóð- bað. Um miðnætti 22. desember 1956 fóru síðustu hersveitir árásaraðilanna frá Egyptalandi. ÞETTA GERÐIST: 7. NÓVEMBER 1956 Gert að kalla hersveitir heim
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.