Fréttablaðið - 07.11.2013, Side 31

Fréttablaðið - 07.11.2013, Side 31
ENGIN TÍSKUFRÍK „Ég er agalega léleg í því að til- einka mér ríkjandi tíksustrauma og er lengi að taka eitt- hvað sem er öðru- vísi í sátt.” FJÓRÐA BARNIÐ Á LEIÐINNI Rússneska fyrirsætan Natalia Vodianova (31) á von á sínu fjórða barni. Þetta er fyrsta barn hennar með kærastanum Antoine Arnault en fyrir á hún tvo syni og eina dóttur. Veðurfræðingurinn og flug-maðurinn Birta Líf Kristinsdóttir birtist landsmönnum í fyrsta sinn á sjónvarpsskjánum í vikunni þegar hún flutti veðurfréttir í Ríkissjónvarpinu. Hún vakti strax mikla athygli og virðist starfið liggja vel fyrir henni. „Já þetta hefur bara gengið ágætlega hingað til,“ segir Birta og neitar því ekki að hafa orðið vör við aukna athygli. „Það hefur verið aðeins meira að gera í símanum,“ segir hún og hlær. Birta féllst á að láta smella af sér mynd í uppáhaldsflíkinni og var ekki lengi að velja hana. „Það er hnausþykk rúllukragapeysa sem ég erfði eftir föður- ömmu mína, Bjarndísi Friðriksdóttur. Hún var gjarnan í henni í sumarbústað sínum í Grímsnesi á þessum tíma árs og ég man vel eftir henni í henni. Afi minn, Karl Kristinsson, gaf mér hana þegar hún féll frá og mér finnst voðalega gott að vera í henni á köldum vetrardögum og ylja mér um leið við góðar minningar.“ Aðspurð segist Birta ekki velta sér mikið upp úr fötum og tísku. „Ég er aga- lega léleg í því að tileinka mér ríkjandi tískustrauma og er lengi að taka eitthvað sem er öðruvísi í sátt. Ég er með mjög einfaldan stíl og heillast aðallega af ein- litum flíkum. Peysan hennar ömmu er ein af fáum undantekningum.“ Birta segist þó hafa nokkuð gaman af því að kaupa kjóla. „Þegar ég tók að mér nýja starfið fékk ég góða afsökun fyrir því að fara í búðir og bæta í kjólasafnið.“ Birta lauk atvinnuflugmannsprófi árið 2006. Eftir það fór hún í veðurfræði. Hún hefur starfað á Veðurstofu Íslands síðastliðin tvö ár en vann auk þess sem aðstoðarflugmaður hjá Icelandair í sumar. Að sögn Birtu tvinnast störfin vel saman og lítur hún á sjónvarpið sem ánægjulega viðbót. ■ vera@365.is VEKUR UPP GÓÐAR MINNINGAR BESTA VETRARFLÍKIN Veðurfræðingurinn Birta Líf Kristinsdóttir er með ein- faldan smekk og er ekki mjög upptekin af tískunni. Hnausþykk vetrarpeysa af föðurömmu hennar er í uppáhaldi en auk þess er hún veik fyrir kjólum. HLÝ OG GÓÐ Birta hrífst mest af ein- litum fötum. Peysan af föðurömmu hennar er ein af fáum undan- tekningum. MYND/GVA TÆKIFÆRISGJAFIR TILBOÐ Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 pHnífa aratöskur – 12 manna 14 tegundir Verð frá kr. 24.990 Léttir og hollir réttir Morgunmatur Kaffitárs-kaffi Happy Hour Úrvals aðstaða fyrir mannfagnaði og kynningar Volcano House I Tryggvagata 11 I Tel. 555 1900 www.volcanohouse.is I info@volcanohouse.is DY N A M O R EY KJ AV ÍK ELDSTÖÐINOpið 9.00 – 22.00 alla daga. Eldstöðin Kraumandi kaffihús Tryggvagötuvið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.