Fréttablaðið - 07.11.2013, Side 38
FÓLK|TÍSKA
Útvarpsmaðurinn og gleði pinninn Siggi Hlö er einn þeirra sem finnast gaman að klæðast sér-
stökum jólapeysum. Hann hefur um
nokkurra ára skeið frumsýnt nýja
jólapeysu fyrir jólin og er árið í ár engin
undantekning auk þess sem hann tekur
þátt í keppni Barnaheilla um jólapeysu
ársins. „Fjölskylda, vinir og vinnufélagar
líta á jólapeysuna mína sem fastan lið
fyrir jólin. Í ár prýðir jólapeysuna mína
drukkinn ísbjörn sem slapp blessunar-
lega við að synda til Íslands til þess eins
að verða skotinn. Peysan er fagurblá og
vel til þess fallin að styðja við bakið á
Barnaheillum.“
Siggi kaupir allar jólapeysurnar sínar í
Englandi en að hans sögn hafa vinsældir
jólapeysunnar aukist mikið þar í landi
undanfarin ár og eru þær seldar víða.
„Ég held að kvikmyndin Bridget Jones‘s
Diary hafi haft mikið um það að segja en
í kvikmyndinni klæðist leikarinn Colin
Firth einstaklega ljótri jólapeysu. Þetta
byrjaði nú hjá mér eins og hvert annað
flipp og ekki skemmir fyrir að finna veru-
lega ljótar jólapeysur. Eiginlega má segja
að því ljótari sem þær eru því fallegri
séu þær.“
KEMUR FÁUM Á ÓVART
Litir og mynstur jólapeysa síðustu ára
hafa verið með ýmsu móti. „Ég hef átt
hvítar, rauðar og bláar jólapeysur og
með ýmsu mynstri, svo sem jólasveinum
og hreindýrunum sívinsælu. Ísbjörninn
sem prýðir peysu ársins er búinn að
drekka yfir sig og er með jólasveina-
húfu á hausnum.“
Siggi er þekktur fyrir léttleika
og skemmtilegheit og því kom
það fáum á óvart þegar hann hóf
að klæðast litfögrum jólapeysum.
„Það er svo gaman að því að
standa í þessu. Þeir sem hafa spilað
golf með mér vita að ég er þekktur
fyrir að spila í skrítnum golfbuxum.
Sama má segja um vinnufélaga og við-
skiptavini, maður reynir að birtast
í henni sem víðast. Það er líka
oft gott að hefja samræður við
ókunnugt fólk þegar maður klæð-
ist peysunni. Allir vilja forvitnast
um hana og hvert tilefni hennar
er. Mér sýnist bara vera almenn
ánægja með þessar peysur mínar
og þær þykja skemmtilegar.“
Spurður hvað fjölskyldunni þótti
um áhugamálið segir Siggi hana vera
öllu vana hvað ný uppátæki hans varðar.
„Fjölskylda mín er öllu vön þegar kemur
að karlinum og uppátækjum hans. Maður
er stöðugt að fara fram úr sér í flippinu
en þetta er auðvitað bara fyrir menn með
mikið sjálfstraust að standa í þessu. Það
eru ekki margir sem hafa tekið þennan
sið upp eftir mér sem er fínt. Mér finnst
gaman að standa einn í þessu enda þarf
ég mína athygli.“
PEYSAN SELD FYRIR RÉTT VERÐ
Inni á síðu Barnaheilla, www.barnaheill.
is, má heita á Sigga Hlö og fleiri ein-
staklinga og lið sem keppa um jólapeysu
ársins. Sá sem safnar hæstu fjárhæð-
inni vinnur en einnig verða veitt ýmis
verðlaun í nokkrum flokkum, til dæmis
nördapeysan, frumlegasta peysan
og ljótasta peysan. „Ég tek þátt til að
styrkja gott málefni. Svo má vel vera
að ég sé tilbúinn til að selja einhverjum
jólapeysuna til styrktar Barnaheillum en
það þarf þá að vera alvöru upphæð.“
DRUKKINN ÍSBJÖRN VEKUR
MIKLA ATHYGLI
BARNAHEILL KYNNIR Frumsýning nýrrar jólapeysu er fastur liður fyrir jólin hjá Sigga Hlö. Fjölskylda og vinir eru öllu vön þegar
kemur að uppátækjum kappans en í ár keppir hann um jólapeysu ársins.
JÓLAPEYSAN Drukkinn ísbjörn prýðir jólapeysu ársins hjá
Sigga Hlö. MYND/DANÍEL
Siggi Hlö hefur
átt skrautlegar
jólapeysur
undanfarin ár.
Ragnheiður Eiríksdóttir prjónameistari hannaði jóla-peysuna 2013 sem Jón Gnarr,
borgarstjóri Reykvíkinga, klæddist
í auglýsingum Jólapeysuátaksins.
Í myndatökunni fyrir auglýsinguna
fitjaði borgarstjóri upp á nýrri
peysu og byrjaði sjálfur að prjóna.
Þetta var upphaf farandpeysunnar.
Jólafarandpeysan verður
prjónuð af fjölda einstaklinga og
boðin upp við lok jólapeysuátaks
Barnaheilla þann 13. desember.
Með peysunni mun fylgja einhvers
konar dagbók þar sem fram koma
nöfn þeirra sem hafa prjónað peys-
una en myndir af þeim verða einnig
birtar á Facebook.com/jolapeysan
og á Instagram. Útvarpsmennirnir
Guðfinnur Sigurvinsson og Margrét
Blöndal úr Síðdegisútvarpi Rásar
2 prjónuðu sig svo áfram í beinni
útsendingu og nú er komið að Unni
Steinsson, vörustjóra hjá Lyfju.
STEFNIR Á AÐ PRJÓNA EINA
JÓLAPEYSU Á ÁRI
Unnur lætur ekki sitt eftir liggja
þegar kemur að prjónaskap enda
hefur hún verið mikil prjónakona
um áraraðir. Hún greip í prjónana
þar sem hún var stödd við mynda-
töku fyrir Lyfju og prjónaði nokkrar
umferðir af farandpeysunni. Unnur
hefur prjónað fimm peysur á
þessu ári en þetta er í fyrsta sinn
sem hún prjónar jólapeysu. Hún
stefnir hins vegar á að prjóna
heila jólapeysu fyrir eiginmanninn
fyrir þessi jól. „Þetta er bara algjör
snilld,“ segir hún en viðurkennir að
jólapeysur séu nýjar fyrir sér. „Mér
finnst hins vegar algjört „möst“ að
fólk sé í jólapeysum þessi jól og
styðji gott málefni. Ég ætla að gera
það og héðan í frá stefni ég á að
prjóna eina jólapeysu á ári.“
Á áheitasíðunni jolapeysan.is
getur fólk skráð sig og látið heita á
sína eigin jólapeysu. Þar er einnig
að finna ýmsar hugmyndir að því
hvernig hægt er að hanna eigin
jólapeysur. „Ég held að það séu
tækifæri í þessu fyrir fólk með gott
ímyndunarafl og það verður fróð-
legt að sjá útkomuna,“ segir Unnur
að lokum.
Keppt verður á Facebook í
nokkrum flokkum, svo sem um
bestu nördapeysuna, mestu
glamúrpeysuna, frumlegustu
peysuna, ljótustu peysuna og svo
fallegustu jólapeysuna 2013.
Keppt verður um bestu
peysuna í nokkrum flokkum; um
nördapeysuna, mestu glamúr-
peysuna, frumlegustu peysuna,
ljótustu peysuna og svo falleg-
ustu jólapeysuna 2013. Keppnin
fer fram á facebook.com/jola-
peysan og á Instagram merkt
#jolapeysan.
Uppskriftina að Jólapeysunni
2013 má finna í öllum helstu versl-
unum sem selja lopa og í verslun-
um Hagkaups sem selja garn.
FARANDPEYSAN BOÐIN UPP
BARNAHEILL KYNNIR Margir þekktir einstaklingar koma að gerð farandpeysunnar hjá Barnaheillum. Borgarstjórinn Jón Gnarr
byrjaði á henni og nú er komið að Unni Steinsson. Hún ætlar að prjóna jólapeysu fyrir eiginmanninn fyrir þessi jól og eina jóla-
peysu á ári hér eftir. Sjálf farandpeysan verður boðin upp 13. desember við lok jólapeysuátaksins.
FARANDPEYSAN Margir þekktir einstaklingar koma að gerð farandpeysunnar og er Unnur Steinsson ein þeirra.
MYND/VILHELM