Fréttablaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 48
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | BÆKUR ★★★★ ★ Skuggasund Arnaldur Indriðason VAKA-HELGAFELL Aðdáendur Arnaldar, sem eru ósáttir við brotthvarf Erlendar sviðahausamanns úr sviðsljósi bóka hans, ættu að geta tekið gleði sína á ný við lestur Skugga- sunds. Hér er mættur glænýr lögreglumaður, reyndar kom- inn á eftirlaun, Konráð að nafni og eftir öllum sólarmerkjum að dæma eiga lesendur eftir að kynn- ast honum nánar í næstu bókum. Hann á líka erfiða barnæsku að baki og einhver ævintýri sem ýjað er að en ekki farið nánar út í. Við bíðum spennt. Raunar eru lögreglumennirnir í forgrunninum þrír því hér fer fram tveimur sögum; morðum bæði árið 1944 og í nútímanum, og þeir Flóvent og Thorson sem rannsaka fyrra morðið eru sömu- leiðis vel dregnar og áhugaverðar persónur sem við því miður fáum sennilega ekki að kynnast betur. Og þó, hver veit? Aðalsmerki Arnaldar sem glæpasagnahöfundar er hversu vænt honum þykir um persónur sínar. Bæði rannsakendur og fórnarlömb verða ljóslifandi í huga lesandans og glæponar og grunaðir sömuleiðis. Á því verð- ur ekki breyting í Skuggasundi og þrátt fyrir ljótleika glæpanna eru ólánsmennirnir sem fremja þá dregnir mannelskum dráttum sem gera lesandanum ómögulegt að hata þá, alla nema einn. Sagan frá 1944 er aðalgáta rannsóknarinnar enda kemur á daginn að samtímamorðið teng- ist því máli beint. Arnaldur lýsir aldar fari og aðstæðum fólks á stríðsárunum óhemju vel og með því að hafa annan rannsóknar- manninn kanadískan Vestur- Íslending sem takmarkað þekkir til staðhátta tekst honum að lauma inn alls kyns vangaveltum um þau mál sem efst eru á baugi árið 1944 í formi samtala þeirra Fló- vents án þess að það verði þvingað og á skjön við söguna. Öll fram- vinda málanna er líka trúverðug í gegn, öfugt við það sem oft vill verða í glæpasögum, og lesand- inn lifir sig inn í rannsóknirnar af áður óþekktri innlifun. Hver morðinginn er er hálfgert auka- atriði, það er líf þess fólks sem við sögu kemur sem skapar áhugann og spennuna. Bygging sögunnar er með ein- dæmum faglega unnin. Sögusvið- in tvö flæða hvort inn í annað algjörlega áreynslulaust og flétt- unin er hnökralaus. Stíllinn er árgangs Arnaldur, ekkert flúr eða stælar og samtölin eru betur unnin en oft áður, vottar ekki fyrir bókmáli eða uppskafningi og maður trúir hverju orði. Skuggasund markar engin skil á ferli Arnaldar, hann hefur undan farin ár verið að þróa bæði stíl og byggingu í þessa átt, en þetta er vel unnin og þrauthugsuð saga sem hreyfir við lesandanum á margan hátt og vekur hann til umhugsunar um þá gömlu spurn- ingu hvort við höfum í raun geng- ið til góðs þessi ár sem Ísland hefur verið lýðveldi. Friðrika Benónýsdóttir NIÐURSTAÐA: Vel unnin og þraut- hugsuð saga á tveimur tímaplönum. Sögusvið, persónusköpun og bygging haldast í hendur við að gera Skugga- sund að einni bestu bók Arnaldar. Harmleikur í þátíð og nútíð Við erum alltaf með sviðsett atriði á tónleikum okkar,“ segir Rósa- lind Gísladóttir, einn söngvaranna sem stíga á svið í veislunni, spurð hvort það sé vaninn hjá hópnum að vera með leikstjóra á tónleikum hjá sér. „Í þetta sinn er um alveg samhangandi sýningu að ræða. Við erum í búningum og með ljósameistara og Sveinn Einarsson, leikstjórinn okkar, samdi handrit sem tengir atriðin saman þar sem farið er yfir sögu Verdis.“ Í kynningu á tónleikunum vekur það sérstaka athygli að Verdi sjálfur hyggist vera við- staddur veisluna, hvernig gengur það upp? „Hann mætir að sjálf- sögðu í eigin afmælisveislu,“ segir Rósalind og hlær. „Það kemur í hlut Randvers Þorláks- sonar að ljá honum líkama og rödd, en þetta er vissulega Verdi.“ Auk Rósalindar koma fram söngvararnir Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Egill Árni Páls- son, Erla Björg Káradóttir, Hörn Hrafnsdóttir, Jóhanna Héðins- dóttir og Valdimar Hilmars- son. Meðleikari og æfingastjóri er Antonia Hevesi, sem er einn af stofnendum hópsins og hefur fylgt honum á þeim rúmlega 30 sýningum, tónleikum og upp- ákomum, sem hópurinn hefur staðið fyrir. Rósalind segir kven- hluta hópsins hafa verið hinn sama alveg frá upphafi en „strák- arnir“ hafi komið og farið. „Svo fáum við líka leynigest í eitt atriðið,“ segir hún leyndardóms- full og neitar að segja meira um það mál. En er það vaninn að svona mikill viðbúnaður sé hafður á tónleikum hópsins? „Já,“ segir Rósalind. „Við höfum undanfarin ár unnið með leikstjórum og verið með svið- settar senur. Auk þess settum við upp óperu Puccini, Suor Angelica í fyrra og Svar Maríu nú fyrr á þessu ári, þannig að við erum vax- andi hópur. Í vor ætlum við að setja upp barnaóperuna „Hans og Grétu“ eftir Engilbert Humperdinck.“ Leikstjóri í Salnum annað kvöld verður Sveinn Einarsson, en Páll Ragnarsson, fyrrverandi ljósameistari Þjóðleikhússins og Íslensku óperunnar, hannar lýsinguna. Samkvæmið hefst klukkan 20. fridrikab@frettabladid.is Halda upp á 200 ára afmæli Verdis Óp-hópurinn og Vonarstrætisleikhúsið efna til söngveislu í Salnum annað kvöld í tilefni af 200 ára afmæli Verdis. Þrátt fyrir að hafa látist árið 1901 mun afmælis- barnið sjálft verða viðstatt veisluna þar sem fl utt verða atriði úr óperum hans. METNAÐARFULL Óp-hópurinn leggur mikinn metnað í sýningar sínar og nýtur í þetta sinn leiðsagnar Sveins Einarssonar leik- stjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.