Fréttablaðið - 07.11.2013, Qupperneq 58
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
NAFNAR Í ANDSTÆÐUM HEIMUM
Skilin milla lista og stjórnmála verða sífellt óljósari. Þessum pólitíkusum og listamönnum hefur efl aust oft verið ruglað saman í
símaskránni þó þeir eigi fátt annað sameiginlegt en nöfnin sem binda þá saman sterkum böndum.
GOTT DNA
Halldór Halldórsson vill leiða Sjálfstæðis-
menn í borginni en nafni hans, oftast
kallaður Dóri DNA, lætur sér nægja að
gera góðlátlegt grín að stjórnmálum.
ÞORBJÖRG OG
ÞUNGAROKKIÐ
Hin skelegga Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir er nafna Þorbjargar Helgu,
aðalleikkonunnar í Málmhausi.
SÍÐHÆRÐIR
NAFNAR
Stjörnuljósmyndarinn Björn Blöndal
á nafna í Besta flokkinum. Sá er líka
hárprúður. Skemmtileg tilviljun.
HUGSJÓNAMENN
Helgi Hrafn Jónsson er einn okkar
færasti tónlistarmaður og nafni hans
Helgi Hrafn Gunnarsson lætur til sín
taka á Alþingi fyrir Pírata.
NONNI OG NONNI
Píratinn Jón Ólafsson liggur ekki á
skoðunum sínum á meðan tón-
listarmaðurinn Jón Ólafsson semur
undurfagra tóna.
„Jón Gnarr var til í að vera aftur
framan á spilinu, það kemur alveg
ótrúlega vel út og hefur vakið
töluverða athygli erlendis,“ segir
Eldar Ástþórsson, upplýsinga-
fulltrúi CCP, sem hefur endurút-
gefið Hættuspilið sem naut mik-
illa vinsælda hér á landi rétt fyrir
aldamót. „Hættuspilið kom út árið
1998 og það má segja að þetta hafi
verið fyrsti leikurinn sem CCP
gaf út. Vinsældir hans hjálpuðu til
við að fjármagna framleiðslu EVE
Online,“ bætir Eldar við.
Hættuspilið kemur út sem hluti
af viðhafnarútgáfu vegna 10 ára
afmælis EVE Online. Viðhafnar-
útgáfan hefur nú farið á alþjóð-
legan markað og var Hættuspilið
þýtt yfir á ensku og nefnt Dan-
ger Game. Má því segja að spilið
sé komið á alþjóðamarkað. „Spilið
er auðvitað hluti af stærri pakka
sem inniheldur jafnframt 190 blað-
síðna bók um EVE-heiminn, USB-
vöggu sem er í formi geimskips
og geisladisks með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands að flytja lög úr leikn-
um,“ segir Eldar.
Hættuspilið hefur verið upp-
fært að fullu. „Við tókum til dæmis
nýjar myndir af öllum karakterun-
um aftur. Í síðasta spili voru Sig-
urjón Kjartansson og Jón Gnarr í
öllum hlutverkunum í spilinu. En
nú höfum við fengið aðra til þess,
að stórum hluta starfsmenn CCP.
Jón Gnarr var til í að vera aftur
á framhlið spilsins, en við höfum
skipt Sigurjóni Kjartanssyni út
fyrir yngra og fallegra módel,
Svein Kjarval, sem gegnir stöðu
samfélagsstjóra hjá CCP og er í
miklum metum hjá spilurum EVE
Online. Forstjórinn, Hilmar Veig-
ar Pétursson, er einnig með hlut-
verk í nýjum spilastokki. Auk þess
hefur viðskiptaumhverfi spilsins
verið uppfært, þannig að þetta er
mjög veglegt,“ segir Eldar. Við-
hafnarútgáfan er farin í sölu um
gjörvallan heim, þar með talið á
Íslandi, og segir Eldar viðtökurn-
ar hafa verið ákaflega góðar.
kjartanatli@frettabladid.is
Borgarstjóri andlit
Hættuspilsins
Hættuspilið er nú komið út á alheimsvísu og heitir Danger Game á ensku. Jón
Gnarr prýðir umbúðir spilsins. Spilið er hluti af viðhafnarútgáfu vegna 10 ára
afmælis tölvuleiksins Eve Online.
JÓN GNARR Í fullum skrúða í myndatökum fyrir hættuspilið.
MYND/RAGNAR ÁGÚST EÐVALDSSON
„Við ætlum að bjóða upp á ýmis-
legt, allt frá barnaboxi og yfir í
Freestyle Wrestling,“ segir Kjart-
an Valur Guðmundsson, formað-
ur Hnefaleikafélags Kópavogs, en
félagið flutti fyrir skömmu í nýtt
og betra húsnæði. Hnefaleika-
félagið býður meðal annars upp
á boxnámskeið fyrir börn frá sjö
ára aldri.
„Sjálfsvarnaríþróttir geta haft
mjög góð áhrif á börn sem hafa lent
í stríðni eða einelti því þetta eykur
sjálfstraust þeirra. Einnig getur
agi íþróttarinnar hjálpað til við að
halda einstaklingnum frá slæmum
félagsskap,“ segir Kjartan.
Þá hefur Hnefaleikafélag-
ið sameinast bardagaklúbbnum
VBC Reykjavík í nýju húsnæði
við Smiðjuveg 28, en þó er um að
ræða tvö ólík félög. VBC Reykja-
vík á rætur að rekja til Svíþjóðar
og stendur fyrir Vallentuna Box-
ing Camp.
„Aðstaðan var svo lítil en nú
erum við komin í stærra hús-
næði og getum sinnt starfseminni
mun betur,“ segir Einar Tryggvi
Ingimundarson, formaður VBC
Reykjavík.
VBC er stærsta Muay Thai-félag
Norðurlandanna en VBC Reykja-
vík býður meðal annars upp á
Muay Thai, Kick Box, Jiu Jitsu og
Freestyle Wrestling. -glp
Barnabox og Wrestling
Hnefaleikafélag Kópavogs hefur fl utt starfsemi sína
og býður upp á barnabox og Freestyle Wrestling.
BOX FYRIR ALLA Kjartan Valur Guðmundsson, formaður Hnefaleikafélags Kópa-
vogs, ásamt dóttur sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL