Fréttablaðið - 07.11.2013, Page 60
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48
Ég er algjörlega andlaus og hef
ekkert til að tjá mig um. Dag-
arnir líða áfram í brjóstagjöf á
tveggja klukkustunda fresti, tíma-
töku á lúrum, bleiuskiptum og
almennu heimilishaldi. Ég er ekki
viss hvort ég hef farið í sturtu í
morgun, eða kannski var það í
gær? Mér líður stundum eins og
heilasellurnar hóti sjálfseyðingu
ef þær heyra aðra vögguvísu. Þá
er það í raun afrek útaf fyrir sig að
ég skuli klæða mig úr náttbuxun-
um á morgnana, sérstaklega þegar
ég veit að deginum verður eytt
heima fyrir í fyrrgreindri rútínu.
Þó koma dagar þar sem rútínan er
brotin upp og ég flyt fyrirlestra.
Nýlega var ég með hóp af þrettán
ára drengjum í kynfræðslu. Að
loknum fyrir lestrinum þá skrifa
þeir nafnlausar spurningar á
miða sem ég svo les og svara fyrir
framan allan hópinn. Um daginn
kom ein spurning sem gat aðeins
komið frá grunlausum unglingi
sem þekkir ekki brjálæðið sem
fylgir uppeldi barna og rútínu
hjónabands. „Hversu oft sefuru
hjá í viku?“ Ég gat ekki annað en
brosað útí annað og sagt á inn-
soginu „í viku segirðu …“. Sá var
snöggur að bæta við hvort það væri
svona oft daglega. Æ þið vitið, því
ég er svona kynfræðingur og tala
um kynlíf þá hlýt ég að stunda það
öllum stundum alltaf. Hið barns-
lega sakleysi unglingahormóna,
sífelldrar greddu, smáskota og
ótakmarkaðs frítíma.
Það ber ekki að skilja sem svo að
ég geri lítið úr upplifun unglings-
ins, ég man vel hversu erfitt tak-
markað sjálfræði var og sorgina
yfir óendurgoldinni ást. Þetta er
kannski ekki ósvipað, þetta með
takmarkað sjálfræði. Flestir for-
eldrar vita að maður á ekki börnin
sín, þau eiga mann. Það getur því
verið svolítið snúið að ætla að
finna tíma fyrir mann sjálfan og
svo tíma fyrir makann. Sérstak-
lega þegar maður veit af klístr-
uðum blettum á stofugólfinu og
troðnum þvottakörfum af óhrein-
um leikskólafötum. Þó heimilið
væri hreint þá væri þetta spurning
um tíma.
Ef þú nærð smátíma í
rólegheitum, langar þig þá að
„eyða“ honum í kynlíf en ekki í
dýrmætan órofinn lúr? Þetta eru
vangaveltur kynfræðings sem les,
skrifar, og talar um kynlíf. Ég veit
hversu mikilvægt það er að reyna
að búa til tíma fyrir kelerí. Fyrir
mig, hann, okkur, og börnin (full-
nægðir foreldrar eru þolinmóðari
einstaklingar og þar með betri for-
eldrar). Það má kannski sleppa því
að horfa á einn þátt fyrir svefninn
og nýta þessar fáu mínútur áður
en rúmið fyllist af börnum til að
tengja ykkur saman?
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Verð: 29,9 millj.
Réttarháls 12
Nesjaskógi Grafningshreppi
Fallegur bústaður
einstök staðsetning
Nánari upplýsingar veitir
Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi
jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958
• Fallegur bústaður 83 fm
• Sólskáli 17 fm af heildar stærð
• Einstök staðsetning
• Kjarri vaxið land
• Mikið útsýni
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
„Hversu oft sefuru hjá í viku?“
SNÚIÐ AÐ FINNA TÍMA „Ef þú nærð smátíma í rólegheitum, langar þig þá að
„eyða“ honum í kynlíf en ekki í dýrmætan órofinn lúr?“ NORDICPHOTOS/GETTY
Kristín Gunnlaugsdóttir opnar
sýninguna Sköpunarverk á föstu-
daginn í Listasafni Íslands. Kristín
segir umfjöllunarefnið vera sköp-
unarkraftinn sem býr í mannlegri
náttúru og innri heim konunnar.
„Þegar þú gengur inn á Lista-
safnið blasa við þér sköp formóður-
innar, fjögurra og hálfs metra löng,
ómeðhöndluð af lýtalækningum,“
segir Kristín Gunnlaugsdóttir,
myndlistarkona, en hún opnar
sýninguna Sköpunarverk í Lista-
safni Íslands á föstudaginn næst-
komandi.
„Það er fátt jafn ofnotað, varnar-
laust, misnotað og útjaskað í gegn-
um tíðina eins og sköpunarfæri
kvenna í veröld karlmanna gegnum
tíðina,“ segir Kristín jafnframt.
Kristín fæst við raunveruleika
og veröld kvenna og er óhrædd að
nálgast andstæður eins og heilag-
leika og tabú tengd kynhvötinni.
„Ég er kona og geng því út frá veru-
leika kvenna og mér þykir mikil-
vægt að fjalla um og opna á þessi
mál. Þetta er ekki nýtt í mynd-
list en brýnt í samtímanum að við
göngumst við hlutunum eins og
þeir eru.“ segir Kristín.
Sköpunarverk er sýning í
tveimur sölum. „Í öðrum salnum
verða stór veggteppi þar sem ég
sauma með ull í grófan striga, svo
verða þarna lítil tréverk máluð
samkvæmt gamalli hefð mið-
alda – en myndefnið er áfram það
sama,“ segir Kristín. „Í rauninni
er umfjöllunarefni sýningarinnar
bara lífið sjálft. Það má eldast,
það má vera eins og maður er – án
þess að þurfa að beygja sig undir
staðalímyndir æskudýrkunar, full-
komnunaráráttu og endalausrar
sjálfsgagnrýni,“ segir Kristín.
Í nóvember og desember verður
Kristín með leiðsögn um sýninguna
og á undan því verður sýnd heim-
ildarmynd sem Guðbergur Davíðs-
son og Hákon Már Oddsson hafa
gert um Kristínu og listheim
hennar. Myndin, sem sýnd verður
í ríkissjónvarpinu í janúar, er ein
af fjórum um íslenska myndlista-
menn. Í tilefni sýningarinnar hefur
Eyja gefið út veglega bók.
Sýningin Sköpunarverk stendur
til 19. janúar 2014.
olof@frettabladid.is
Risasköp það
fyrsta sem blasir við
Kristín Gunnlaugsdóttir opnar sýninguna Sköpunarverk á föstudaginn í Lista-
safni Íslands. Kristín segir umfj öllunarefnið vera umheim og veröld kvenna.
SKÖP FORMÓÐURINNAR Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona segir fátt jafn
ofnotað, varnarlaust og útjaskað og sköpunarfæri kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is