Fréttablaðið - 14.11.2013, Blaðsíða 8
14. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
EGYPTALAND, AP Múhamed Morsi
segir enga von til þess að stöðug-
leiki komist á í Egyptalandi nema
hann fái forsetaembættið aftur
og herforingjarnir, sem steyptu
honum af stóli í júlí, verði dregnir
fyrir dóm.
Útgöngubanni hefur ekki verið
aflétt í Egyptalandi, þrátt fyrir að
dómstóll í landinu hafi á þriðju-
dag kveðið upp þann úrskurð að
það væri útrunnið. - gb
Morsi ávarpar Egypta:
Vill réttarhöld
yfir stjórninni
HERINN Á VAKT Útgöngubanni hefur
enn ekki verið aflétt. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
HAVAÍ, AP Samkynhneigðir hafa
nú fengið leyfi til þess að ganga
í hjónaband á Havaí frá og með
desemberbyrjun. Stjórnvöld
vonast til þess að eyjarnar verði
í kjölfarið vinsæll áfangastaður
samkynhneigðra.
Havaí varð þar með fimm-
tánda ríki Bandaríkjanna, auk
höfuðborgarinnar Washington,
sem heimilar samkynhneigðum
að giftast. Þingið í Illinois hefur
einnig samþykkt slík lög, en þau
bíða staðfestingar ríkisstjóra. - gb
Havaí bætist í hópinn:
Samkynhneigð
pör fá að giftast
NÝSKÖPUN Ísfirska fyrirtækið Kerecis hefur tryggt sér
markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir lækninga vörur úr
þorskroði. Um risaskref er að ræða fyrir fyrir tækið,
en Bandaríkin eru stærsti markaður heims fyrir vörur
Kerecis, sem ekki síst nýtast sí vaxandi hópi fólks með
sykursýki og fylgikvilla hennar, þrálát sár sem valda
þúsundum aflimana á ári hverju.
Guðmundur F. Sigurjónsson, stjórnarformaður
Kerecis, segir það í sjálfu sér stóran áfanga og
viður kenningu fyrir fyrirtækið að fá grænt ljós hjá
Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu (FDA), enda
kröfurnar gríðarmiklar til nýrra lækningavara þar í
landi.
„FDA hefur aldrei áður gefið markaðsleyfi fyrir
lækningavöru sem byggir á notkun á fiski sem hrá-
efni í Bandaríkjunum. Að baki markaðsleyfinu liggur
margra ára vinna íslenskra lækna, vísindamanna og
skráningarsérfræðinga,“ segir Guðmundur.
Spurður um vaxtarmöguleika Kerecis, í ljósi þess
að leyfið er fengið, segir Guðmundur að með því
sé fenginn aðgöngumiði að markaði sem veltir 900
milljónum dala á ári – og er í örum vexti.
„Nú er næsta verkefni að vanda vel til vals á sam-
starfsaðila sem getur tekið að sér dreifingu á þessum
geysistóra markaði sem er í miklum vexti vegna mik-
illar aukningar á sykursýki í Bandaríkjunum. Um
10% bandarísku þjóðarinnar eru með sykursýki og
spár gera ráð fyrir að eftir nokkur ár verði það 20%
þjóðarinnar. Sex prósent af öllum sykursýkissjúk-
lingum fá þrálát sár og þar kemur tæknin okkar til
sögunnar,“ segir Guðmundur.
Kerecis fékk fyrr á árinu markaðsleyfi í Evrópu,
og er sala þegar hafin á Íslandi og Bretlandi í kjölfar
þess leyfis. Sala í öðrum Evrópulöndum er í burðar-
liðunum auk þess sem Kerecis vinnur að öflun mark-
aðsleyfa annars staðar í heiminum, til dæmis í Kína
og á Indlandi. svavar@frettabladid.is
Kerecis landaði leyfi vestan
hafs fyrir nýja sárameðferð
Lækningafyrirtækið Kerecis hefur tryggt sér markaðsleyfi í Bandaríkjunum eftir áralanga vinnu lækna,
vísindamanna og sérfræðinga. Varan er úr þorskroði og er til að meðhöndla þrálát sár – ekki síst sykursjúkra.
PRÓFANIR
Eitt af skil-
yrðum FDA
voru ofnæm-
is- og ónæm-
isprófanir á
fjölda fólks
af ólíkum
kynþáttum.
MYND/KERECIS
■ Tæknin sem um ræðir, MariGen Omega3,
er stoðefni til meðhöndlunar á þrálátum
sárum sem eru alvarlegt heilbrigðisvanda-
mál um allan heim. MariGen Omega3 er
þorskroð sem fellur til hjá sjávarútvegs-
fyrirtækjum á Vestfjörðum og með-
höndlað hefur verið þannig að allar
frumur og ofnæmisvaldandi efni hafa
verið fjarlægð úr roðinu.
■ Fyrir á markaðnum eru stoðefni sem
unnin eru úr húð, þvagblöðrum, þörmum
og gollurshúsum svína, manna og naut-
gripa. Stoðefni úr fiski gefur því ákveðið
forskot þar sem ekkert er um trúarlegar
hindranir, eins og þegar um vörur úr
svínavef er að ræða. Þá smitast ekki
sjúkdómar úr fiskum í menn, ólíkt vefjum
manna og dýra.
Engin sjúkdómahætta af þorskroðinu
NISSAN
QASHQAI
NISSAN QASHQAI DÍSIL 4WD
VERÐ FRÁ 4.990 ÞÚS. KR.
KAUPAUKI AÐ ANDVIRÐI
500 ÞÚS. KR.
· Vetrardekk
· Dráttarbeisli
· iPad 32 GB
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ
500 ÞÚS. KR. KAUPAUKI FYLGIR QASHQAI
Þeir sem kaupa Qashqai eru að leita að fallegum fjórhjóla-
drifnum bíl sem er hagkvæmur í rekstri og góður í endursölu.
Qashqai eyðir einungis frá 4,6 l/100 km
Qashqai 1,6 dCi beinsk.
Verð: 4.990 þús. kr.
Qashqai+2 1,6 dCi beinsk. 7 manna
Verð: 5.390 þús. kr.
Qashqai 2,0 bensín, sjálfsk.
Verð: 5.790 þús. kr.
Qashqai 2,0 dCi sjálfsk.
Verð: 6.090 þús. kr.
iPad 32GBfylgir með ásamt veglegri hlífðartösku
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
8
9
14