Fréttablaðið - 14.11.2013, Blaðsíða 64
14. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 52
„Við höfum mikið pælt í þessu.
Það væri áhugavert að taka það
upp að Bechdel-meta allar mynd-
irnar okkar, en það myndi seint
stjórna dagskránni,“ segir Hrönn
Sveinsdóttir, framkvæmdastýra
Bíó Paradísar, um að taka upp
Bechdel-mat á nýjum myndum á
dagskrá kvikmyndahússins.
Mikil umræða hefur spunnist í
kringum Bechdel-prófið eftir að
fjögur kvikmyndahús í Svíþjóð
tóku sig saman um að innleiða
Bechdel-prófið svo nefnda í kynn-
ingu nýrra mynda nú á dögunum.
„Við erum svo undirmönnuð í
Bíó Paradís og þetta myndi fela í
sér mikla vinnu, en við tökum því
fagnandi ef einhver gæti aðstoð-
að okkur. Við tökum eftir því ef
hallar hræðilega á annað kynið í
myndum sem við erum að sýna,“
segir Hrönn jafnframt.
„Þetta skiptir auðvitað mestu
máli í sýningum fyrir börn, en
þar höfum við skýra stefnu í
þessum efnum,“ bætir Hrönn við.
„Við höfum síðastliðin þrjú ár haft
skólasýningar, bæði fyrir grunn-
og framhaldsskóla. Þar er mark-
miðið að kenna kvikmyndalæsi og
að þekkja staðalímyndir í kvik-
myndum,“ segir Hrönn.
„Það er farið að skipta jafn
miklu máli að geta lesið mynd-
mál og að lesa. Til dæmis sýnum
við unglingum heimildarmyndina
um Pussy Riot og tölum um tján-
ingarfrelsi, félagslega samstöðu,
mannréttindi og kynjahlutverk
um víða veröld. Að sama skapi
sýnum við börnum Blancanieves,
sem er spænsk útgáfa af Mjall-
hvíti þar sem hún slæst í för með
sjö dvergum sem allir eru nauta-
banar og gerist nautabani sjálf,“
segir Hrönn og imprar á mikil-
vægi kvikmyndalæsis. „Það þarf
að geta gert greinarmun á morði í
kvikmynd og morði í fréttunum,“
útskýrir Hrönn.
Stór hluti kvikmynda fellur á
hinu einfalda Bechdel-prófi. Má
þar nefna margar vinsælustu
myndir síðustu ára, til að mynda
Avatar, Stjörnustríðsmyndirnar
og Hringadróttinssögu.
olof@frettabladid.is
Taka eft ir því ef
hallar á annað kynið
Hrönn Sveinsdóttir segir Bechdel-prófi ð seint geta stjórnað dagskrá Bíó Paradísar.
Bechdel-prófið er notað til
þess að greina kynjahalla í
skáldverkum.
Til þess að standast prófið
þurfa að minnsta kosti tvær
kvenpersónur að vera í verkinu
og þær þurfa að eiga samræður
um eitthvað annað en karlvið-
fangsefni. Prófið er nefnt eftir
teiknimyndahöfundinum Alison
Bechdel.
Bechdel-prófið er því ekki
gagnrýni á myndirnar sem
slíkar, en í sögu Alison Bechdel
er reglan sett fram sem grín á
augljósa fyrirferð karla innan
söguheims kvikmyndanna.
Bechdel-prófið
„Við förum í tökur í vor,“ segir
Anna María Karlsdóttir, fram-
leiðandi hjá Ljósbandi sem fram-
leiðir kvikmyndina Staying Alive.
Aðspurð um söguþráð myndar-
innar dregur Anna María hann
saman í þremur orðum: „Lesbíur
og jarðar farir.“ Myndin fjallar
um Magdalenu sem er enn inni í
skápnum og byrjar að fara í jarðar-
farir ókunnugs fólks til að drepa
tímann. Loks kemur að því að Mag-
dalena hittir Grétu, sína fyrstu og
forboðnu ást, og þá kemur í ljós að
lengi lifir í gömlum glæðum.
Handrit myndarinnar skrifar
leikarinn, kvikmyndaskólaneminn
og flugþjónninn Barði Guðmunds-
son, en þetta er hans fyrsta kvik-
mynd í fullri lengd. Hann gerði
meðal annars stuttmyndina Bóbó
sem hefur verið sýnd á hátíðum
um allan heim og vakið mikla
lukku. Leikstjórn Staying Alive er
í höndum Friðriks Þórs Friðriks-
sonar. - lkg
Lesbía í jarðarförum ókunnugra
Tökur bíómyndarinnar Staying Alive hefj ast á næsta ári. Leikstjóri er Friðrik Þór.
FJÖLHÆFUR Barði Guðmundsson
skrifar handrit myndarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Það þarf að geta
gert greinarmun á morði
í kvikmynd og morði
í fréttunum
Ævintýra- og vísindamyndin
Ender‘s Game er frumsýnd
í Sambíóunum á föstudag en
myndin er byggð á samnefndri
metsölu- og verðlaunabók rithöf-
undarins Orsons Scotts Card.
Myndin fjallar um Ender
Wiggin, ungan dreng sem er
gæddur óvenjulegum hæfileik-
um sem yfirmenn heraflans
vilja að hann nýti til að hjálpa
í baráttunni við ófrýnilegar
geimverur sem kallaðar eru
pöddurnar.
Aðalhlutverk eru í höndum
Harrison Ford, Asa Butterfield
og Ben Kingsley. - lkg
Pödduinnrás út í geim
Harrison Ford leikur aðalhlutverkið í Ender’s Game.
SPEISAÐ Myndin er frumsýnd á
föstudag.
SEGIR JAFNMIKIL-
VÆGT AÐ LÆRA AÐ
LESA MYNDMÁL
OG TEXTA Hrönn
Sveinsdóttir segir það
mikilvægt að horfa
á myndefni á gagn-
rýninn hátt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Paramount ætlar að endurgera
kvikmyndina Ghost frá árinu
1990 sem sjónvarpsseríu. Myndin
fjallar, eins og margir vita, um
mann sem er myrtur og konu
hans sem nær sambandi við hann
í gegnum miðil.
Akiva Goldsman og Jeff Pink-
ner skrifa handritið fyrir „pilot“-
þáttinn en Goldsman vann Óskar-
inn og Golden Globe fyrir handrit
kvikmyndarinnar A Beautiful
Mind.
- lkg
Endurgera Ghost
Goðsagnakennd mynd verður sjónvarpssería.
Anchorman 2: The Legend
Continues er væntanleg í kvik-
myndahús vestanhafs 20.
desember. Með hlutverk Rons fer
Will Ferrell eins og í fyrri mynd-
inni en hann skrifar handritið
ásamt Adam McKay.
Will vill ekki gefa mikið upp
um handritið en segir það hafa
verið gaman að vinna aftur með
Steve Carell, Paul Rudd og David
Koechner sem mynda frétta-
teymið hans.
„Eftir nokkrar vikur var eins
og við værum aftur að leika í
fyrstu myndinni. Það var mjög
gaman á setti,“ segir Will en
bætir við að fyrstu tvær vikurnar
hafi tekið á.
„Fyrstu tvær vikurnar voru
erfiðar. Ég upplifði þetta öðru
vísi en þeir því ég skrifaði hand-
ritið og ég hef stundum komið
fram sem Ron Burgundy. Þeir
hafa ekki gert mikið af því
þannig að fyrstu dagana fannst
þeim eins og þeir væru að ganga
á tunglinu.“ - lkg
Eins og að ganga á tunglinu
Fyrstu vikurnar voru erfi ðar á setti Anchorman 2: The Legend Continues.
MÆTTUR AFTUR Margir hlakka til að
sjá Will Ferrell leika Ron á ný.
AFTUR-
GANGA
Ghost
verður
endur-
gerð sem
sjón-
varps-
sería.
Austurstræti 14, 101 Reykjavík, sími 551 1020
*Frítt fyrir 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum sem
panta rétt af matseðli. Hámarksfjöldi barna eru fimm.
Jólaplatti
verður í boði frá 22. nóvember. Á plattanum er hangikjöt,
jólaskinka, dönsk lifrarkæfa, síld, reyktur lax, hreindýrapaté,
kalkúnabringa, eplasalat, laufabrauð, rúgbrauð, flatbrauð,
smjör, Cumberland sósa og súkkulaði marquise.
af barnamatseðli og drykk úr vél
frá 15. nóvember til 15. desember og því tilvalið
að koma með börnin og gæða sér á dýrindis
mat eða jólaplatta í jólastemningu
FRITT FYRIR BORN*
FERSKLEIKI • GÆÐI • ÞJÓNUSTA