Fréttablaðið - 14.11.2013, Page 29
FIMMTUDAGUR 14. nóvember 2013 | SKOÐUN | 29
Stóriðjunefnd var skipuð
1961, hún átti að kanna
möguleika á að reisa
virkjanir sem gætu séð
nýjum útflutningsiðnaði
og vaxandi þéttbýli á
Suður landi fyrir raforku.
Orkukaupandi fannst
1965, Alusuisse, og Lands-
virkjun var stofnuð til að
virkja við Búrfell. Álver
var reist í Straumsvík og
tekið í notkun 1969. Hagkvæmni
réð staðarvali, ekki byggðapólitík,
þar var hentugt byggingarland
og hafnar aðstaða nálægt stórum
vinnu- og raforkumarkaði. Alþjóða-
bankinn lánaði til byggingar Búr-
fellsvirkjunar og veitti, að sögn,
umtalsvert aðhald að verkefninu.
Tveimur árum eftir að álverið
var tekið í notkun framleiddi Intel
fyrsta örgjörvann. Fyrsti tölvu-
pósturinn var sendur sama ár.
Fyrsta Apple-tölvan kom á markað
1976, fyrsti PC-inn 1981, veraldar-
vefurinn var fundinn upp á rann-
sóknarstöð Evrópu í kjarneðlis-
fræði, CERN, 1990.
Álbræðsla barn síns tíma
Álbræðsla var barn síns tíma, hún
er fimmtíu ára gömul viðskipta-
hugmynd sem hentaði fábreyttu,
fátæku og lítt menntuðu eylandi í
lok iðnbyltingar. Álver létti kostn-
aðinn við Búrfellsvirkjun almenn-
ingi til góðs, verk- og tækniþekking
byggðist upp í landinu, „Við hittum
á réttu stundina“ sagði formaður
stóriðjunefndar, Jóhannes Nordal.
Stundin kom og fór, nú er álbræðsla
á fallanda fæti deyjandi, mengandi,
fjárfrek og arðlítil starfsemi. Upp-
lýsingaöldin hefur tekið við.
Kerskálar framtíðar eru ekki í
Straumsvík. Hagvöxturinn liggur
ekki í að bræða jarðefni
og málma við hátt hita-
stig heldur í að skrifa
notendavæn og skilvirk
forrit sem miðla upplýs-
ingum og birta þær. Ker-
skálar framtíðar eru í net-
heimum og heita Github,
Google Play og iTunes.
Úr því umhverfi spretta
fyrirtæki eins og Clara
og Quiz Up, starfsmenn
þeirra bræða sínar hugmyndir
í huganum í skrifstofum við
Laugaveg. Þar er vöxtur inn, líka
í gagnaverum sem þjónusta upp-
lýsingatækni, til dæmis Advania
og Datacell. Og hugverkum alls
konar, kvikmyndum, bókum, mynd-
list og tónlist, líka vistvænni ferða-
mennsku og matvælum. Ekkert
þessara fyrirtækja eitt og sér, eng-
inn einstakur hönnuður, höfundur,
bóndi, trillukarl eða leiðsögukona
notar jafn mikla orku og heilt álver
en margt smátt gerir eitt stórt.
Sem leiðir hugann að mark-
miðum Landsvirkjunar. Upphaf-
lega voru þau að styðja við nýja
útflutningsgrein og sjá almenn-
ingi fyrir raforku. Löngu er tíma-
bært að endur skoða markmiðin í
ljósi nýrra aðstæðna. Upphaflegur
markaður fyrir stóriðju er úreltur,
almenningur líður engan orku-
skort, framleiðslugeta í landinu er
langt umfram eftirspurn. Eigandi
Landsvirkjunnar er fólkið í land-
inu, þar á meðal þú. Hvað vilt þú
að Landsvirkjun geri í framtíðinni?
Valið tvíþætt
Valið er í stórum dráttum tvíþætt.
Að leggja sæstreng sem tengir
Ísland við erlenda markaði þar sem
orkuverð er hærra. Líkt og í Noregi
gæti tenging við erlendan markað
hækkað orkuverð innanlands.
Hærra orkuverð myndi hækka
tekjur Lands virkjunar, ef afgangur
yrði umfram aukinn kostnað mætti
greiða út arð til eigenda. Kostn-
aður er áætlaður á bilinu 288 til
550 milljarðar, heildar tekjur 40
milljarðar á ári, eða svo segir í
skýrslum ráðgjafa. Áhættan af
framkvæmdinni er mikil, tækni-
leg, lagaleg og fjárhagsleg. Og póli-
tísk, strengurinn er til Bretlands,
ef áhöld yrðu um afhendingu á orku
gætu bresk stjórnvöld hugsanlega
sett á Íslendinga hryðjuverkalög
þótt kröfur um afhendingu ættu
enga lagastoð. Annað eins hefur
gerst.
Hitt er að halda orkunni innan-
lands og taka arðinn út í ódýrri
orku til neytenda og fyrirtækja.
Lítil og meðalstór fyrirtæki nytu
góðs af, þau eru stærsti vinnu-
staður landsins, þar verða til flest
störf. Lágt raforkuverð bætir sam-
keppnisstöðu íslensks útflutnings
sem er að mörgu öðru leyti ansi
skökk. Arðurinn er lágt orkuverð,
áhættan er öðruvísi og einfaldari,
snýst fyrst og fremst um að halda í
núverandi viðskiptavini eða fá nýja
í þeirra stað.
Hvort vilt þú lesandi góður? Þú
ert eigandinn.
Kerskálar framtíðar
HAGVÖXTUR
Sveinn Valfells
eðlisfræðingur
➜ Löngu er tímabært að
endurskoða markmiðin í
ljósi nýrra aðstæðna. Upp-
hafl egur markaður fyrir
stóriðju er úreltur, almenn-
ingur líður engan orkuskort,
framleiðslugeta í landinu er
langt umfram eftirspurn.
Þegar verst stóð á eftir
bankahrunið fengu
Íslendingar einstæðan
happafeng. Ný verðmæt
fiskitegund, makríllinn,
tók að veiðast í miklu
magni. Frá 2010 hafa
veiðst 550-600 þúsund
tonn og útflutnings-
verðmætið er um 70
milljarðar króna. Þetta
bætist við góða afkomu
sjávar útvegsins síðan
2008 af hefðbundnum
veiðum vegna lágs gengis
krónunnar.
Ekki hefur þurft að leggja út í
neina fjárfestingu til þess að ná
í þessa 70 milljarða króna. Skip,
veiðarfæri og annar búnaður er
þegar til staðar og greiddur af
öðrum veiðum og vinnslu. Einu
útgjöldin vegna makrílsins eru
breytilegur kostnaður, einkum
laun og olía. Fái útgerð tekjur
sem greiða breytilega kostnað-
inn, er hver króna umfram það
ávinningur og það borgar sig að
stunda veiðarnar.
Samkvæmt ákvæðum kjara-
samninga og opinberum gögnum
Hagstofunnar má ætla að breyti-
legi kostnaðurinn sé um 37% af
útflutningsverðmæti makríls.
Hagnaðurinn frá 2010 hefur því
orðið samtals um 45 milljarðar
króna. Greiðslur fyrir veiðirétt-
inn urðu hins vegar aðeins um 2,4
milljarðar króna. Skipting ágóð-
ans milli ríkis og útgerðarinnar
var 95%:5%, útgerðinni í vil.
Makríllinn er ekki í kvóta,
enginn kostnaður hefur fallið
til. Makríllinn er alger
viðbót utan við kerfið.
Verðið sem útgerðin
hefði séð sér hag í að
greiða fyrir veiðiréttinn á mark-
aði hefði verið allt að öllum
tekjum umfram breytilegan
kostnað. Veiðiréttinn er hægt
að verðleggja á markaði eins og
útgerðarmenn gera fyrir kvóta-
bundnar tegundir.
Gefum okkur að niðurstaðan
hefði orðið að greiða 80% af
hagnaðinum fyrir veiðiréttinn.
Þegar makríllinn verður kominn
inn í kvótakerfið mun þetta verða
a.m.k. verðið fyrir veiðiréttinn.
Þá hefði ríkið fengið 34 milljarða
króna í stað 2,4 milljarða kr. og
hagnaður af makrílveiðunum og
-vinnslunni samt orðið um 8.5
milljarðar króna. Síðasta ríkis-
stjórn hefði hæglega getað sótt
þessar tekjur, en ákvað að skilja
þær eftir í vösum eigenda sjávar-
útvegsfyrirtækjanna. Ávinn-
ingurinn af makrílnum hefði
getað hlíft heilbrigðiskerfinu og
almannatryggingum við niður-
skurði síðustu ár. Tækifærið var
ekki nýtt. Það er sár niðurstaða
fyrir almenning.
Makríll: 45 millj-
arða kr. vinningur
SJÁVAR-
ÚTVEGUR
Kristinn H.
Gunnarsson
fv. alþingismaður
➜ Hagnaðurinn
frá 2010 hefur því
orðið samtals um
45 milljarðar króna.
Greiðslur fyrir veiði-
réttinn urðu hins
vegar aðeins um 2,4
milljarðar króna.
WWW.I-T.IS
FJÖLDI ANNARRA INNRÉTTINGA
Á TILBOÐSVERÐI
ÝMSAR AÐRAR VÖRUR, STURTUKLEFAR,
STURTUHURÐIR, BLÖNDUNARTÆKI, BAÐKÖR,
SPEGLAR OG FLEIRI FYLGIHLUTIR
MEÐ VERULEGUM AFSLÆTTI
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9 – 18
LAUGARDÖGUM FRÁ KL. 11 - 15
Postulíns
handlaug
Postulíns
handlaug
Postulíns
handlaug
Postulíns
handlaug
Postulíns
handlaug
Postulíns
handlaug
ELDHÚS, hvítt háglans,
bökuð duftlökkun
ELDHÚS, hvítt háglans,
höldulaus, bökuð duftlökkun
ELDHÚS, eik eða hvítt
háglans, duftlökkun
BAÐ, 110x48 cm, askur BAÐ 47x47 cm, hvítt háglansBAÐ, 80x46 cm, heil handlaug BAÐ, 60x46 cm
Spegilskápur fylgir
BAÐ, 100x46 cm
Spegilskápur fylgir
BAÐ, 53x31 cm
Spegill fylgir
BAÐ, 160x56 cm,
hvítt háglans
BAÐ, 80x36 cm, heil handlaug
Postulíns
handlaug
Postulíns
handlaug
NÝTT ELDHÚS OG BAÐ FYRIR JÓLIN
Ármúla 31 Sími: 588 7332