Fréttablaðið - 14.11.2013, Qupperneq 48
14. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 36TÍMAMÓT
„Aðsóknin hefur farið eftir ýmsu
síðustu ár, en við hvetjum að sjálf-
sögðu fólk til að nýta tækifærið og
skella sér í menninguna í Breiðholt-
inu,“ segir Margrét Valdimarsdóttir,
verkefnastjóri í listadeild Menn-
ingarmiðstöðvarinnar Gerðubergs í
Breiðholti. Um helgina fer fram lífleg
dagskrá í Gerðubergi í tilefni hverfis-
hátíðarinnar Breiðholtsdaga, sem er
þátttökuhátíð íbúa hverfisins, en þeir
hefjast í dag.
„Þessi hefð hefur gefist vel í þessi
ár sem Breiðholtsdagar hafa verið
haldnir og við notum auðvitað tæki-
færið til að vekja athygli á okkur og
starfsemi hússins með því að taka
virkan þátt,“ segir Margrét og bætir
við að uppistaða dagskrárinnar í
Gerðubergi um helgina séu annars
vegar viðburðir sem eru á viðburða-
dagskrá miðstöðvarinnar og hins
vegar viðburðir sem eru sérstaklega
hugsaðir fyrir Breiðholtsdaga.
Meðal þess sem finna má á dagskrá
Gerðubergs um helgina er fjölskyldu-
dagskráin Vertu með!, þar sem börn
troða upp og syngja lög á hinum ýmsu
tungumálum. Sú dagskrá er unnin í
samstarfi við Móðurmál, samtök tví-
tyngdra barna, og verður sett upp
tombóla í anddyri Gerðubergs til
styrktar samtökunum. Þá verður sett-
ur upp flóamarkaður með vörur af
ýmsum toga, meðal annars handverk,
notuð föt, nytjahluti, listmuni, ýmis-
legt matarkyns og fleira, og er tekið
við skráningum á meðan húsrúm
leyfir. „Við auglýsum eftir viðburðum
til að halda meðan á Breiðholtsdögum
stendur og Flóamarkaðurinn er dæmi
um það að íbúar sendi inn hugmyndir
sem við hjálpum þeim svo til að fram-
kvæma,“ segir Margrét.
Fleiri viðburðir sem tengjast Breið-
holtinu beint í Gerðubergi um helgina
eru til að mynda hönnunarsýning
nemenda fata- og textílbrautar Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti, sem lásu
skáldverk og kynntu sér söguheim
og tíðaranda þess tíma er sagan
gerist á. Svo hönnuðu nemendurnir
og saumuðu búninga er hæfðu aðal-
persónum sögunnar og sýna afrakst-
urinn í Gerðubergi. Þá verður Net-
samfélag Flensborgarskóla með
fréttastofu í Gerðubergi á Breiðholts-
dögum, þar sem tekin verða viðtöl við
gesti og gangandi og fréttum útvarp-
að um það sem hæst ber hverju sinni.
Margt fleira áhugavert á sér stað í
Gerðubergi um helgina og má finna
nánari upplýsingar um dagskrána á
heimasíðunni Gerðuberg.is.
kjartan@frettabladid.is
Vilja fá fólk til að mæta í
Breiðholts-menninguna
Um helgina fer fram lífl eg dagskrá í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í tilefni af
hverfi s hátíðinni Breiðholtsdögum sem hefj ast í dag. Meðal viðburða eru börn sem troða
upp og syngja lög á hinum ýmsu tungumálum og hönnunarsýning nemenda í FB.
MENNINGARMIÐSTÖÐ Margrét Valdimarsdóttir, verkefnastjóri í listadeild Gerðubergs, segir dagskrá Gerðubergs í tengslum við Breiðholts-
daga hafa gefist vel síðustu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MERKISATBURÐIR
1665 Konungslögin um einveldið í Danmörku undirrituð af Friðriki 3.
1894 Sjómannafélagið Báran stofnað í Reykjavík.
1917 Staðfest lög um sjálfræði og fjárræði manna. Samkvæmt
þeim verða menn sjálfráða 16 ára og fjárráða 21 árs. Síðar
lækkar fjárræðisaldur í 20 ár hinn 19. desember 1967 og í 18 ár
hinn 1. október 1979.
1930 Hitaveita Reykjavíkur tekin í notkun með 2.800 metra
langri heitavatnslögn frá þvottalaugunum í Laugardal. Þetta var
fyrsta hitaveita á Íslandi og tengdust henni 70 - 80 hús, þar á
meðal Sundhöllin og Landspítalinn.
1956 Togarinn Fylkir siglir á tundurdufl norður af Straumnesi og
sekkur. Öll áhöfnin bjargast um borð í togarann Hafliða.
1963 Ríkisstjórn undir forsæti Bjarna Benediktssonar tekur við
völdum og situr í tæplega sjö ár.
1970 Bílgreinasambandið er stofnað á Íslandi.
1985 Hólmfríður Karlsdóttir er kjörin Ungfrú heimur.
2007 Jarðskjálfti upp á 7,7 á Richter skekur Chile.
2009 Haldinn er um 1.500 manna þjóðfundur í Laugardalshöll í
Reykjavík um framtíðarstefnu Íslands.
Surtsey er syðsta eyjan í Vestmannaeyja-
klasanum. Hún er eina eyjan sem myndast
hefur í neðansjávareldgosi á sögulegum tíma.
Menn urðu gossins fyrst varir klukkan
7.15 að morgni 14. nóvember 1963,
þegar það braust upp úr yfirborði sjávar
skammt frá fiskibátnum Ísleifi II frá
Vestmannaeyjum. Skipverjar mældu
sjávarhita í hálfrar mílu fjarlægð og var
hitastigið nálægt 10°C.
Gosið magnaðist hratt og varð gos-
mökkurinn hár. Morguninn eftir sást að
eyja hafði myndast í gosmekkinum og
hefur gosið því hafist nokkrum dögum
áður en þess varð vart.
Surtseyjargosið stóð fram til 5. júní
1967, eða í um það bil þrjú og hálft
ár. Síðan þá hefur flatarmál eyjarinnar
minnkað úr 2,7 km2 í 1,4 km2 sökum
rofs sjávar og vinda.
ÞETTA GERÐIST: 14. NÓVEMBER 1963
Surtseyjargossins varð fyrst vart
Við auglýsum eftir
viðburðum til að halda
meðan á Breiðholtsdögum
stendur og Flóamarkaðurinn
er dæmi um það að íbúar
sendi inn hugmyndir sem
við hjálpum þeim svo til að
framkvæma.
Margrét Valdimarsdóttir
Sveinn Einarsson leikstjóri mun ræða um ævi og störf leik- og
skáldsagnahöfundarins Guðmundar Kambans í Gunnarshúsi á
Dyngjuvegi í kvöld klukkan átta, undir heitinu Hver drap Kamb-
an? Hann mun líka sitja fyrir svörum að erindi loknu enda hefur
hann ritað fyrstu ævisögu Kambans sem kemur út þessa dagana.
Rithöfundarnir Pétur Gunnarsson, Hjörtur Pálsson og Ragnheiður
Tryggvadóttir leikkona lesa úr verkum skáldsins.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. - gg
Kambanskvöld
Rithöfundasamband Íslands minnist Guðmundar
Kambans í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, í kvöld.
SVEINN EINARSSON Hver drap Kamban? nefnist fyrir-
lestur Sveins í Gunnarshúsi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, lang- og langalangamma,
HALLA SÆMUNDSDÓTTIR
lést föstudaginn 18. október. Útför hennar
fór fram í kyrrþey. Innilegar þakkir til allra
þeirra sem auðsýndu samúð og vinarhug við andlát hennar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Boðaþings 7-2,
Hrafnistu í Kópavogi, fyrir góða umönnun og hlýhug.
Hilmar S. Guðjónsson
Bettý Jóhannsdóttir Snæfeld
Kolbrún Jóhannsdóttir Snæfeld Bjarni J. Bogason
Bára Snæfeld Guðjón Ingi Eggertsson
barnabörn, barnabarna- og barnabarnabarnabörn.
Alúðarþakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, hlýju og vinarhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, bróður,
fósturföður, afa og langafa,
SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR
fyrrverandi starfsmanns Flugleiða,
Brávallagötu 50, Reykjavík.
Hrefna Björnsdóttir
Guðmundur Sigurðsson Kolbrún Sigurðardóttir
Hjördís Sigurðardóttir Sigurður Blöndal
Edda S. Strange Grétar Strange
Birna Sigurðardóttir Einar Hjaltason
Guðný María Sigurðardóttir Gilbert Ó. Guðjónsson
Haraldur Sigurðsson
Hrafn Sigurðsson Ingigerður Skúladóttir
afabörn og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
INGIMUNDUR ÁRNASON
frá Kópaskeri,
sem lést föstudaginn 1. nóvember, verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn
15. nóvember kl. 15.00.
Árni Ingimundarson Stefanía Björnsdóttir
Gunnlaugur Ingimundarson Rakel Guðný Pálsdóttir
Ari Ingimundarson Hildur Traustadóttir
Sigurveig Ingimundardóttir Stefán Friðgeirsson
Sólrún Ingimundardóttir Skúli Arnfinnsson
barnabörn og langafabörn.