Fréttablaðið - 14.11.2013, Page 54
Auglýsing
eftir umsóknum um aflaheimildir fyrir
opinber sjóstangaveiðimót, skv. 2.
mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn
fiskveiða m.s.br.
Auglýst er eftir umsóknum um vilyrði vegna afla-
skráningar vegna opinberra sjóstangaveiðimóta sem
áætlað er að halda á yfirstandandi fiskveiðiári, sbr.
reglugerð nr. 969/2013, um skráningu afla á opin-
berum sjóstangaveiðimótum.
Skilyrði þess að afli sem veiðist á sjóstangaveiði-
móti skráist ekki til aflaheimilda skips er að vilyrði
Fiskistofu vegna aflaskráningar hafi verið aflað.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember nk. og
skulu umsóknir sendar Fiskistofu, Dalshrauni 1, 220
Hafnarfirði á sérstöku eyðublaði sem finna má á
heimasíðu stofnunarinnar, http://www.fiskistofa.is/.
Með umsókn skal fylgja kostnaðaráætlun fyrir móts-
haldið, samþykktir félagsins, upplýsingar um reglur
um félagsaðild og ársreikningar.
MENNING 14. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR
Guðlaugur er að sviðsetja heilt
bókaherbergi með örsmáum
bókum í sal inn af Bókasafni Sel-
tjarnarness að morgni dags. Hann
kveðst yfirleitt byrjaður að vinna
um fimm leytið. „Það er arfur frá
því ég var á sjónum í gamla daga,“
segir hann. Þá tegund myndlistar
sem álfabókagerðin er hefur hann
fengist við í þrjú ár og kveðst hafa
orðið heltekinn af henni þegar
hann byrjaði. Hafði hann ein-
hverja fyrirmynd? „Nei, ég hef
aldrei séð neitt líkt en um leið
og ég fékk hugmyndina
hefur örugglega ein-
hver fengið sams
konar hugmynd
í Japan eða
annars staðar
í heiminum,“
svarar hann.
„Aðferðin er
sa msafn af
því sem ég hef
sankað að sér í
reynslu gegnum
árin. Ég hef alltaf
verið að fást við
bækur í einhverju
formi, skera út bækur,
smíða bækur, mála
bækur, teikna bækur, binda
inn bækur og skrifa bækur.
Það tók mig langan tíma að finna
aðferð til að gera þessi verk, við-
eigandi efni og rétt hlutföll og ég
er búinn að fara í marga hringi.
Þetta er smíði, málun og útskurður
og mikil nákvæmnisvinna. Brot úr
millimetra er býsna stór eining. En
ég hefði ekki getað gert þetta fyrir
tuttugu árum, þegar tölvurnar
voru frumstæðari en í dag.“
Guðlaugur er fæddur og upp-
alinn á Dalvík og er nýlega sestur
að á höfuðborgarsvæðinu eftir
um hálfrar aldar búsetu í Dan-
mörku, Sviss og Finnlandi. Hvað
Brot úr millimetra
er býsna stór eining
Guðlaugur Arason rithöfundur einbeitir sér að gerð agnarsmárra bóka, álfabóka,
og opnar í dag sýningu á þeirri list í Eiðisskeri á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi.
„Við munum flytja prógrammið
okkar en flutningurinn verður
dýpri vegna andláts okkar kæra
Johns Tavener,“ segir Hilmar Örn
Agnarsson, stjórnandi Kammer-
kórs Suðurlands, um tónleika
kórsins í dómkirkjunni í South-
wark í London á föstudag. Þar
frumflytur kórinn meðal annars
Three Shakespeare Sonnets eftir
sir John Tavener, eitt fremsta tón-
skáld Breta sem lést í fyrradag 69
ára að aldri.
„Við Tavener vorum miklir
vinir og hann samdi fyrir okkur
sérstaklega,“ heldur Hilmar Örn
áfram. „Við buðumst til að fresta
tónleikunum en vorum hvött til
að halda áfram með þá og fengum
bréf í kjölfarið þess efnis að fjöl-
skyldan ætlaði öll að mæta. Þetta
verður helg stund og það er svo
merkilegt að allt sem valið var
fyrir þessa tónleika er líkast sálu-
messu.“
Samstarf Tavener við Kammer-
kór Suðurlands hefur staðið í um
áratug eða frá 2004. Verkið Three
Shakespeare Sonnets samdi hann
þegar hann dvaldi hér á landi í
kjölfar veikinda. Fleiri verk eftir
hann verða flutt á tónleikunum í
London.
Nokkur íslensk verk verða á
tónleikunum, þar á meðal kórverk
eftir Kjartan Sveinsson, kenndan
við Sigur Rós, einnig Báru Gríms-
dóttur, Völu Gestsdóttur og Örlyg
Benediktsson. Einnig er á efnis-
skránni nýtt lag eftir Jack White,
eitt efnilegasta ungtónskáld Breta
í dag. Hluti textans er byggður á
ljóði eftir Sjón.
Það er viðeigandi að frumflytja
Three Shakespeare Sonnets í
sóknar kirkju Shakespears í South-
wark sem skartar kirkjuglugga
eftir Leif Breiðfjörð, sá gluggi var
vígður á 50 ára krýningarafmæli
Elísabetar drottningar á síðasta
ári. gun@frettabladid.is
Þetta verður helg stund
Kammerkór Suðurlands frumfl ytur verk eft ir John Tavener í dómkirkjunni í
Southwark í London á föstudag, þrátt fyrir sviplegt andlát tónskáldsins.
KAMMER-
KÓR
SUÐUR-
LANDS
Fjölskylda
tónskáldsins
John Tavener
ætlar öll að
mæta á tón-
leika kórsins
í Southwark.
NÝ LIST Guðlaugur er kunnari sem rithöfundur
en myndlistarmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
John Tavener var vinsælasta klassíska tónskáld Breta síðustu árin sem
hann lifði og hafa mörg verka hans unnið sér tryggan sess í þjóðarsálinni
ytra. Til dæmis var verk hans, Song for Athene, sungið við útför Díönu
prinsessu af Wales árið 1997, en Tavener er einnig þekktur fyrir fjölda
trúarlegra verka á borð við The Whale og The Protecting Vail.
Á síðari hluta sjöunda áratugarins var Tavener meðal annars á samningi
hjá Apple-plötufyrirtækinu sem Bítlarnir ráku og var eina klassíska tón-
skáldið af sinni kynslóð sem komst nærri þeirri frægð sem einungis popp-
stjörnur öðlast oftast.
John Tavener
HEIMILISLEGT Í þessari smágerðu hillu er margt kunnuglegra bóka.
kom til að hann flutti á Frónið
aftur? „Nú, heldurðu það sé ekki
fyrir kvenfólkið? Málið er að
kona mín vann hjá Sameinuðu
þjóðunum í Genf en var kölluð
heim og ég fylgdi með. Nú er ég
orðinn „vitavörður á Dalatanga“ í
Mosfellsbæ og kann ljómandi vel
við mig.“
Sýningin í Eiðisskeri verður
opnuð í dag klukkan fimm, boðið
er upp á kaffi og álfakleinur að
norðan.
gun@frettabladid.is
HARPA SILFURBERG
Sunnudag 1.des kl. 17:00
Miðaverð kr. 1.500 / 3.500
STÓRSVEIT
REYKJAVÍKUR
BOGOMIL FONT
&
Styrkt af
Miðar á midi.is harpa.is í miðasölu Hörpu
Jólastuð fyrir alla fjölskylduna
Flutt verður öll tónlistin af hinum vinsæla geisladiski Majonesjól
sem kom út 2006. Tónlistin er í léttum dúr, full af glettni og jólahúmor.
Stjórnandi: Samúel J. Samúelsson