Fréttablaðið - 16.12.2013, Page 2
16. desember 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SVEITARSTJÓRNIR „Mér finnst þetta
mjög ósanngjarnt þar sem ekkert
er við póstþjónustuna að sakast,“
segir Eva Dögg Þorsteinsdóttir
sem situr ein í minnihluta í sveit-
arstjórn Mýrdalshrepps.
Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu á föstudag sat Eva hjá
þegar sveitarstjórn afgreiddi fjár-
hagsáætlun næsta árs þriðjudag-
inn 10. desember. Sagði hún fund-
argögn hafa borist henni aðeins
sólarhring fyrir fund og að hún
hefði ekki verið boðuð á vinnu-
fundi við gerð fjárhagsáætlunar-
innar.
Ásgeir Magnússon sveitar-
stjóri bókaði á fundinum að fund-
argögnin hefðu verið sett í póst á
Vík fimmtudaginn 5. desember.
Óásættanlegt væri að Eva hefði
ekki fengið gögnin fyrr.
„Sveitarstjóri og oddviti sáu um
að koma fundargögnum í póst og
þetta var sent með B-pósti þannig
að það var aldrei möguleiki fyrir
mig að fá gögnin fyrr en á mánu-
deginum því B-póstur fer allur til
Reykjavíkur í flokkun og póstur
sem er sendur á fimmtudegi með
B-pósti kemur aftur til Víkur á
mánudegi,“ útskýrir Eva.
„Ég tel markmið bókunarinnar
hafi fyrst og fremst verið að beina
athyglinni frá því að mér var hald-
ið frá umræðu um fjárhagsáætl-
un,“ segir Eva. „Ég sit ein í minni-
hluta, svo valdið er algerlega hjá
þeim ef þau vilja, en að halda mér
frá umræðu er ólíðandi.“
Ásgeir Magnússon sveitarstjóri
segir Evu hafa verið frjálst eins
og öðrum að leggja eittvað til við
fjárhagsáætlun.
„En ég held að hún hafi ekki lagt
fram neina tillögu. Þetta er bara
nöldur, það er ekki hægt að orða
það öðruvísi,“ segir sveitarstjór-
inn sem kveður það hafa verið
oddvitann sem skaust með fund-
argögnin í póst. Það hljóti að vera
mistök póstsins að gögnin fóru í
B-póst.
„Og eins furðulegt og það nú
er sendir pósthúsið í Vík B-póst
fyrst til Reykjavíkur áður en
hann kemur til Víkur. Þetta er
bara fíflagangur,“ segir sveitar-
stjórinn.
Brynjar Smári Rúnarsson,
markaðsstjóri Íslandspósts, segir
í yfirlýsingu að valinn hafi verið
B-póstur þegar bréfið var póst-
lagt. „Sveitarstjórinn á Vík hefði
því þurft að senda bréfið í A-pósti
til þess að tryggja það að viðtak-
andi fengi umrætt bréf á réttum
tíma,“ segir markaðsstjórinn.
gar@frettabladid.is
Sendu fundargögnin
fyrst til Reykjavíkur
Sveitarstjórinn í Mýrdalshreppi er sakaður um ósanngirni með því að kenna Póst-
inum um að fundargögn hafi borist seint. Pósturinn segir sveitarstjórann hafa átt
að kaupa A-póst. Sveitarstjórinn segir Póstinn sjálfan hafa valið B-póstsendingu.
EVA DÖGG ÞORSTEINSDÓTTIR Skoðaði umslagið frá hreppnum eftir bókun sveit-
arstjórans og sá að það var merkt sem B-póstur.
A-póstur 120 krónur
B-póstur 103 krónur
Heimild: Íslandspóstur.
Póstkostnaður
ÚTFÖR MANDELA Joyce Banda, forseti Malaví, hélt ræðu við útför Nelsons Man-
dela í gær. NORDICPHOTOS/AFP
SUÐUR-AFRÍKA, AP Útför Nelsons Mandela fór fram á æskuslóðum hans
í Qunu í Suður-Afríku í gær. Um 4.500 manns voru viðstaddir.
Við jarðarförina var hans minnst með helgisiðum að hætti Xhosa-
ættbálksins. Kveikt var á 95 kertum, einu fyrir hvert aldursár Man-
dela. Meðal viðstaddra voru fyrrverandi samviskufangar aðskilnaðar-
stefnunnar, fjölskyldumeðlimir Mandela, þjóðarleiðtogar og
frægðarfólk.
Minningabók um Mandela mun liggja frammi hjá Verslunarráði
Íslands, Kringlunni 7, í dag og á morgun frá klukkan 10 til 16. Þeir
sem vilja minnast látna leiðtogans geta skráð nöfnin sín í bókina. - ue
Margir viðstaddir jarðarför fyrsta svarta þjóðarleiðtogans:
Útför Mandela fór fram í gær
JEMEN, AP Japanskur embættis-
maður var stunginn í höfuðborg
Jemen, þegar hann barðist gegn
mönnum sem reyndu að ræna
honum. Hann varð fyrir nokkrum
stungusárum þegar hann reyndi
að komast inn í bíl sinn og var
lagður inn á spítala.
Talsmaður japanska utanríkis-
ráðuneytisins segir að enn sé verið
að safna upplýsingum um árásina.
Ástandið í Jemen hefur verið
óstöðugt síðan Ali Abdullah Saleh
lét af völdum árið 2011, eftir fjöl-
men mótmæli. Á undanförnum
mánuðum hefur árásum á erlenda
borgara fjölgað.
Fyrr í þessum mánuði féllu 52 í
árás sem gerð var á varnarmála-
ráðuneyti landsins, sem Al-Kaída
lýsti ábyrgð sinni á. Var ástæða
árásarinnar sögð vera að banda-
rískum ómönnuðum flugvélum
væri stýrt úr ráðuneytinu.
Þjóðfundur hefur verið haldinn í
Jemen, þar sem unnið var að gerð
nýrrar stjórnarskrár og undirbún-
ingi kosninga á næsta ári. - skó
Japanskur embættismaður stunginn í Jemen þegar hann varðist mannráni:
Árásum fjölgar á erlenda íbúa
LEITAÐ VOPNA Öryggissveitir leita
vopna á manni fyrir utan spítala þar
sem maðurinn liggur. Ástand hans er
sagt vera stöðugt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Herbert, ertu að svara kalli
aðdáenda þinna?
„Já, ef menn hringja.“
Herbert Guðmundsson tónlistarmaður hélt
tónleika á Kex Hostel á sunnudag í tilefni af
sextugsafmæli sínu. Hann er einnig að senda
frá sér nýjan tvöfaldan safndisk.
SLYS Landhelgisgæslunni (LHG)
barst í gærkvöldi aðstoðarbeiðni
frá flutningaskipinu Alexía vegna
skipverja sem var saknað. Talið
var að hann hefði fallið fyrir borð
þegar skipið var að koma inn til
hafnar á Reyðarfirði.
Slæmt veður var á svæðinu og
leitarsvæðið stórt, að því er fram
kom í tilkynningu LHG. Leitin
bar ekki árangur og var ákveðið
í samráði við lögreglu og bakvakt
Slysavarnafélagsins Landsbjarg-
ar að fresta henni til morguns. - hg
Leitinni frestað til morguns:
Árangurslaus
leit að skipverja
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Vest-
fjörðum hefur farið fram á að tveir
mannanna fimm sem voru hand-
teknir á Ísafirði á laugardagsmorg-
un verði settir í farbann. Þeir eru
grunaðir um kynferðisbrot gagn-
vart ungri konu á Ísafirði.
Mönnunum var sleppt að lokn-
um yfirheyrslum í gær. Tveir hafa
réttarstöðu sakborninga og hafa
verið úrskurðaðir í farbann til 17.
febrúar.
Ung kona var flutt til skoðunar á
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða eftir
að tilkynnt var um brotið en hún
var útskrifuð þaðan á laugardag.
Mennirnir eru allir af erlendu
bergi brotnir en samkvæmt upp-
lýsingum Fréttablaðsins er stúlk-
an íslensk og um tvítugt. Lögregl-
an verst allra frétta um málið. Eftir
því sem næst verður komist voru
mennirnir stöðvaðir í miðjum klíð-
um við brot sitt þegar vinkona kon-
unnar kom á vettvang.
Harpa Oddbjörnsdóttir, starfs-
kona Sólstafa, sem eru eins konar
systursamtök Stígamóta á Ísafirði,
segir árásina mikið áfall. „Þetta
er rosalegt brot, eins og öll brot en
þetta er áfall, fólk er í áfalli hérna,“
segir Harpa.
Hún segir tíðindi dagsins setja
óhug að bæjarbúum. „Það er nátt-
úrlega alltaf erfitt að hugsa til þess
að svona menn gangi lausir. Ég veit
að tveir þeirra hafa verið settir í
farbann en það er auðvitað óþægi-
leg tilhugsun að vita af þeim hérna
í bænum.“
Hún segir hug bæjarbúa hjá kon-
unni sem brotið hafi verið gegn.
Hún veit ekki til þess að haft hafi
verið samband við Sólstafi vegna
málsins. „En ég vona að það kom-
ist til hennar einhvern veginn, að
ég held, að allir bæjarbúar séu að
hugsa til hennar. Að það sé fólk sem
standi á bak við hana.“ - hþ
Tveir menn í farbanni grunaðir um kynferðisbrot gegn ungri konu á Ísafirði:
Fólk á Ísafirði í áfalli eftir árás
ÍSAFJÖRÐUR Lögreglan á Vestfjörðum
verst allra frétta af málinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
ORKUMÁL Engin ummerki fund-
ust um olíu né jarðgas í bor-
kjarnasýnum sem tekin voru á
Skjálfandaflóa í haust, aðeins
metangas.
Rannsóknaskip var í haust
notað til að ná tuttugu borkjarna-
sýnum af hafsbotni á þremur
svæðum á Skjálfanda. Um var að
ræða samstarfsverkefni Orku-
stofnunar, ÍSOR og Háskóla
Íslands.
Ekki er öll von úti enn og nú er
stefnt á að skoða betur hvort eitt-
hvað leynist undir Öxarfirði.
- kmu
Fundu aðeins metangas:
Engin olía á
Skjálfandaflóa
BRUNI Eldur kom upp í íbúðar-
húsi rétt vestan við Vík í Mýrdal
um miðjan dag í gær. Húsið var
mannlaust þegar eldurinn kom
upp og gekk slökkvistarf hratt
fyrir fyrir sig að sögn Guðmund-
ar Inga Ingasonar, varðstjóra lög-
reglunnar á Hvolsvelli.
Talið er að eldsupptökin hafi
orðið í rafmagnsofni í kjallara
hússins en nánari rannsókn fer
fram á næstu dögum. Húsið, sem
var í góðu ástandi, hafði verið
nýtt sem sumarhús og mikil
vinna verið lögð í viðhald síðustu
ár. - eb
Kviknaði í mannlausu húsi:
Eldsupptök lík-
lega í ofninum
SPURNING DAGSINS
Kringlunni
heyrnarstodin.is
HEYRNARSTÖ‹IN
Þetta er bara nöldur,
það er ekki hægt að orða
það öðruvísi.
Ásgeir Magnússson
sveitarstjóri Mýrdalshrepps.