Fréttablaðið - 16.12.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 16.12.2013, Blaðsíða 12
| FRÉTTASKÝRING | 16. desember 2013 MÁNUDAGUR12 21 3 4 5NAUÐUNGARVISTANIR GEÐSJÚKRA Ábyrgðin sem fellur á hendur aðstandendum þegar nauðung-arvista á geðsjúkt fólk er gagn-rýnd af fagfólki og aðstand-endum sjálfum. Vandinn felst í því að þegar sækja á um nauð- ungarvistun til innanríkisráðuneytisins þarf undirskrift ættingja, lögráðamanns eða sveitarfélags. Í flestum tilfellum á Landspítalanum skrifa ættingjar undir beiðnina og veldur það oft sárindum og illdeilum innan fjölskyldna. „Við vitum að þetta er vandamál og það gerist of oft að aðstandendur eru beðnir um að skrifa undir. Það er samt orðið betra samstarf núna við velferðarsvið borgarinnar og við stefnum að breytingu,“ segir Halldóra Jónsdóttir, yfirlæknir bráða- og mótttöku- sviðs geðdeildar Landspítalans. Sömu reglur– annað verklag Á Akureyri hefur verið unnið með öðrum hætti undanfarin fimmtán ár, þar sem aðstandendur koma aldrei að nauðungar- vistunum nema þeir óski sérstaklega eftir því. Á heimasíðu spítalans segir að yfir- lýst stefna deildarinnar sé að vera í nánu samstarfi við heilsugæsluna og aðra vel- ferðarþjónustu sem sinnir málefnum geð- sjúkra. „Það eru alveg sömu reglur hér og í Reykjavík en það er kannski útfærslan sem er ólík,“ segir Guðrún Geirsdóttir, yfirlæknir bráðaþjónustu geðlækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Á Akureyri var gert samkomulag við félagsþjónustu bæjarins um að hún hefði umsjón með umsóknum um nauðungarvistanir í stað aðstandenda. „Þar kemur smæðin inn,“ segir Guðrún en á Akureyri eru um fimm til tólf einstaklingar nauðungarvistaðir ár hvert. Samstarf við félagsþjónustu „Ef okkur sýnist heppilegt að sveitar- félagið létti þessu af fjölskyldunni er engin tregða hjá félagsþjónustunni hér norðan- og austanlands,” staðfestir Sig- mundur Sigfússon, forstöðulæknir geð- deildar Sjúkrahússins á Akureyri. Hann segir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð- inu síður hafa viljað að taka að sér þetta hlutverk. “Ég veit ekki af hverju. Þetta er svo viðkvæmt að svipta einhvern í fjöl- skyldunni frelsi, að það kemur sér vel ef sveitarfélögin vilja taka það að sér,” segir hann. Sækja fyrst um leyfi Það hefur einnig áhrif á verklagið á Akur- eyri að reynt er komast hjá því að nauð- ungarvista fólk án leyfis frá innanríkis- ráðuneytinu. Meiri tími er því tekinn í undirbúning mála. Samkvæmt lögunum má vista fólk í allt að 48 klukkustundir, sem krefst hvorki samþykkis aðstandenda, sveitarfélaga né ráðuneytis. „Við viljum að málið sé rannsakað svo vel að pappír- arnir frá innanríkisráðuneytinu um tutt- ugu og eins dags nauðungarvistun séu tilbúnir þegar leggja á sjúklinginn inn,“ segir Sigmundur, en ítrekar að ef hætta sé á ferð sé fólk lagt inn strax og umsóknin afgreidd eftir á. Hann segir málin oftast eiga sér nægan aðdraganda og því auðsótt að ganga frá öllum lausum endum áður en kemur að innlögn. „Smæðin, fámenn- ið og persónuleg tengsl hér fyrir norðan hafa því mikil áhrif á verklagið,“ segir Sigmundur, en bendir jafnframt á að hlut- fall nauðungarvistana, miðað við allar innlagnir, sé samt sem áður svipað milli landshluta. Aðstandendur vita best „Rökin um að ættingjar taki þátt í að nauðungarvista fólkið sitt eru að þeir standa þeim næst og vita best hvað þarf, en það eru mýmörg dæmi um að það skapi vandamál,“ segir Sigurður Páll Sigurðs- son, yfirlæknir öryggis- og réttargeðþjón- ustu Landspítalans. Brynjólfur Ingvars- son, geðlæknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri og forsvarsmaður Geðverndarfélags Akureyrar, tekur í sama streng. „Þar sem ég þekki til á Norðurlönd- um eru það gjarnan aðstand- endur sem skrifa undir til að gæta mannréttinda þeirra sem skal nauðungarvista.“ Gengur ekki fyrir Reykjavík Tómas Zoëga, yfirlæknir á geðsviði Landspítalans, segir erf- itt að sjá að fækkun 48 klukku- stunda nauðungavistana gæti gengið upp í Reykjavík. „Yfirsýnin er meiri í minni sveitarfélögum. Hér getur fólk komið inn fárveikt og án þess að hafa fengið þjónustu áður. Þá höfum við 48 klukkustundir til að meta stöðuna, sem er helm- ingi lengri tími heldur en lögreglan fær þegar hún handtekur fólk,“ segir hann. „Í minni sveitarfélögum hefur einhver yfirsýn yfir feril fólksins, en hér getum við ekki beðið,“ bendir Tómas á, en hann segir erfitt að meta fárveikt fólk utan stofnana. Persónulegra kerfi Þegar Sigmundur er spurður að því hvers vegna verklagið hafi þróast með svo ólík- um hætti milli landshluta virðist skýr- ingin liggja í ólíkri menntun yfirmanna, „Verklagið hefur mikið farið eftir yfir- mönnunum og það hefur áhrif hvar þeir eru menntaðir og hverju þeir eiga að venjast. Ég þekkti til dæmis lögræðis- lögin mjög vel og var álitsgjafi við gerð þeirra á sínum tíma,“ segir Sigmundur sem hóf störf við Sjúkrahúsið á Akureyri árið 1985. Hann segir engar reglugerðir vera til um verklag nauðungarvistana eða aðbúnað á deildum sem taka við sjúkling- unum, sem útskýri einnig ólík vinnubrögð og áhrif yfirmanna. Smæðin hjálpar „Á Íslandi reynum við frekar að telja fólk á að leggjast inn og tökum okkur meiri tíma, og hér fyrir norðan er þetta býsna persónulegt, en kerfið er auðvitað stærra í Reykjavík,“ segir Sigmundur, en smæð samfélaga og almenn viðhorf til nauðung- arvistana á Íslandi virðast einnig hafa jákvæð áhrif. „Hér á Íslandi lítum við á nauðungarvistanir sem mannréttindamál og þess vegna setjum við þær undir hatt lögræðislaganna en ekki í sérlög um geð- sjúka. Það er nokkuð sérstakt í saman- burði við löggjöf í nágrannalöndunum,“ útskýrir Sigmundur. Hann telur að þessi tilhögun hafi meðal annars átt þátt í að Ísland er með lægsta hlutfall nauðungar- vistana á Norðurlöndunum. Aðstandendur bera of mikla ábyrgð Verklag við nauðungarvistanir á Landspítalanum þvingar aðstandendur geðsjúks fólk til að skrifa undir beiðni um nauðung- arvistun, sem skilur margar fjölskyldur eftir í sárum. Á Akureyri er annað verklag og sér félagsþjónustan um umsóknirnar. „Það átta sig ekki allir á afleiðingunum af nauðungarvistun, en hún setur mark sitt á framtíðina. Sjúklingurinn á oft erfitt með að sætta sig við það að hafa verið nauðungarvistaður og það ríkir oft vantraust. Samskiptin innan fjölskyldunnar eru slök til framtíðar, því nauðungarvistun brýtur sjálfsmynd fólk í klessu,“ segir Knútur Birgisson, MA í fötlunarfræði, en í rannsókn hans á alvarlegum geðsjúk- dómum í fjölskyldum kom í ljós að leiðin inn á sjúkrahúsið með náinn ættingja reyndist fjölskyldunum torveld. Í rannsókn Knúts kemur fram að þegar upp komi geðræn veikindi grípi um sig mikil skelfing innan fjölskyldna. „Það lýsir sér í því að fólk leitar ekki oft til heilsugæslunnar, heldur fer beint á geðdeildina í staðinn.“ Hann segir fjölskyldurn- ar hafa upplifað viðtökurnar á spítalanum sem mjög kerfisbundnar og of bundnar við lyfjameðferð, „Og ef lyfin virka, þá er útskrifað,“ segir Knútur. „Það vantar fleiri leiðir, til dæmis fjölskyldumeðferð. Þetta er fjölskyldusjúkdómur en ekki einstaklingssjúkdómur,“ vill Knútur meina. Hefur áhrif á samskipti innan fjölskyldna KNÚTUR BIRGISSON „Lítið eða ekkert sjúkdómsinnsæi er algengt einkenni alvarlegra geðsjúkdóma og þess vegna getur reynst vandkvæðum bundið að telja viðkomandi fjölskyldumeðlim á að leita sér læknishjálpar. Oft er ástandið orðið svo alvarlegt að því má líkja við neyðarástand sem endar með því að aðstandendur neyðast til að fara fram á sjálfræðissviptingu. Í fyrstu er því hlutverk aðstandenda að leysa bráðavanda.“ „Gagnrýni Guðrúnar á sjálfræðissviptingu beinist í fyrsta lagi að þeirri litlu opinberu að- stoð sem fólki er veitt í slíkum aðstæðum og í öðru lagi að því hvernig sviptingin er fram- kvæmd. Hún tekur sem dæmi að aðstæður séu oft þess eðlis að eðlilegra og mannúðlegra væri að senda sjúkrabíl á staðinn frekar en lögreglubíl. Með öðrum orðum að gera vald- beitinguna síður sýnilega.“ Brot úr meistararitgerð Knúts Birgissonar um alvarlega geðsjúkdóma í fjölskyldum– nöfnum viðmælenda var breytt. ➜ Reynsla aðstandenda Auður Axelsdóttir, forstöðukona Geðheilsu– eftirfylgdar, geðheilbrigðisþjónustu á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að þegar kemur að því að taka ákvörðun um nauðungarvistun sé aðstandendum gjarnan sagt að þeir þurfi að skrifa undir því það sé fljótlegast. „Fólki er ekki sagt frá því að velferðarsvið eða sveitarfélag geti séð um eða óskað eftir nauðungarvistun. Þar er í raun brotið á aðstandendum og sjúklingum,“ segir Auður, sem segir að þeir sem vinni áfram með fjölskyldunum sjái hvað gerist eftir á þegar verða særindi og sam- skiptin erfið. „Staðan sem kemur upp þegar nauðungarvista á fólk er erfið fyrir aðstand- endur og þeir þurfa á stuðningi að halda til að taka þessa ákvörðun. Það ríkir yfirleitt mikill ótti við veikindin og við sjálfsvígshættuna. Þetta er í raun ákvörðun sem er ómögulegt fyrir fólk að taka,“ segir Auður, en í starfi sínu aðstoðar hún fjölmargar fjölskyldur í þessum aðstæðum. Auður segist hafa lært að mikilvægt sé að hlúa að aðstandendum eftir að nauðungarvistunin er úr garði gengin og í sumum tilfellum sé prestur kallaður til. „Það er líka mjög mikilvægt að tala við börn ef þau eru á staðnum og fylgja þeim eftir í einhvern tíma, því áfallið getur verið mikið,“ útskýrir hún, en Geðheilsa– eftirfylgd hefur litið til finnskrar aðferðar, opins samtals, þar sem rík áhersla hefur verið lögð á samstarf fagfólks, sjúklings og aðstandenda þegar upp koma bráð veikindi. Brotið á aðstandendum og sjúklingum AUÐUR AXELSDÓTTIR Eva Bjarnadóttir eva@frettabladid.is BEIÐNI UM NAUÐUNGARVISTUN FJÖLSKYLDUR Nauðungarvist- anir geðsjúkra hafa mikil áhrif á aðstandendur þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.