Fréttablaðið - 16.12.2013, Qupperneq 12
| FRÉTTASKÝRING | 16. desember 2013 MÁNUDAGUR12
21 3 4 5NAUÐUNGARVISTANIR GEÐSJÚKRA
Ábyrgðin sem fellur á hendur aðstandendum þegar nauðung-arvista á geðsjúkt fólk er gagn-rýnd af fagfólki og aðstand-endum sjálfum. Vandinn felst í því að þegar sækja á um nauð-
ungarvistun til innanríkisráðuneytisins
þarf undirskrift ættingja, lögráðamanns
eða sveitarfélags. Í flestum tilfellum á
Landspítalanum skrifa ættingjar undir
beiðnina og veldur það oft sárindum og
illdeilum innan fjölskyldna. „Við vitum
að þetta er vandamál og það gerist of oft
að aðstandendur eru beðnir um að skrifa
undir. Það er samt orðið betra samstarf
núna við velferðarsvið borgarinnar og
við stefnum að breytingu,“ segir Halldóra
Jónsdóttir, yfirlæknir bráða- og mótttöku-
sviðs geðdeildar Landspítalans.
Sömu reglur– annað verklag
Á Akureyri hefur verið unnið með öðrum
hætti undanfarin fimmtán ár, þar sem
aðstandendur koma aldrei að nauðungar-
vistunum nema þeir óski sérstaklega eftir
því. Á heimasíðu spítalans segir að yfir-
lýst stefna deildarinnar sé að vera í nánu
samstarfi við heilsugæsluna og aðra vel-
ferðarþjónustu sem sinnir málefnum geð-
sjúkra.
„Það eru alveg sömu reglur hér og í
Reykjavík en það er kannski útfærslan
sem er ólík,“ segir Guðrún Geirsdóttir,
yfirlæknir bráðaþjónustu geðlækninga
á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Á Akureyri
var gert samkomulag við félagsþjónustu
bæjarins um að hún hefði umsjón með
umsóknum um nauðungarvistanir í stað
aðstandenda. „Þar kemur smæðin inn,“
segir Guðrún en á Akureyri eru um fimm
til tólf einstaklingar nauðungarvistaðir ár
hvert.
Samstarf við félagsþjónustu
„Ef okkur sýnist heppilegt að sveitar-
félagið létti þessu af fjölskyldunni er
engin tregða hjá félagsþjónustunni hér
norðan- og austanlands,” staðfestir Sig-
mundur Sigfússon, forstöðulæknir geð-
deildar Sjúkrahússins á Akureyri. Hann
segir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu síður hafa viljað að taka að sér þetta
hlutverk. “Ég veit ekki af hverju. Þetta
er svo viðkvæmt að svipta einhvern í fjöl-
skyldunni frelsi, að það kemur sér vel ef
sveitarfélögin vilja taka það að sér,” segir
hann.
Sækja fyrst um leyfi
Það hefur einnig áhrif á verklagið á Akur-
eyri að reynt er komast hjá því að nauð-
ungarvista fólk án leyfis frá innanríkis-
ráðuneytinu. Meiri tími er því tekinn í
undirbúning mála. Samkvæmt lögunum
má vista fólk í allt að 48 klukkustundir,
sem krefst hvorki samþykkis aðstandenda,
sveitarfélaga né ráðuneytis. „Við viljum
að málið sé rannsakað svo vel að pappír-
arnir frá innanríkisráðuneytinu um tutt-
ugu og eins dags nauðungarvistun séu
tilbúnir þegar leggja á sjúklinginn inn,“
segir Sigmundur, en ítrekar að ef hætta sé
á ferð sé fólk lagt inn strax og umsóknin
afgreidd eftir á. Hann segir málin oftast
eiga sér nægan aðdraganda og því auðsótt
að ganga frá öllum lausum endum áður
en kemur að innlögn. „Smæðin, fámenn-
ið og persónuleg tengsl hér fyrir norðan
hafa því mikil áhrif á verklagið,“ segir
Sigmundur, en bendir jafnframt á að hlut-
fall nauðungarvistana, miðað við allar
innlagnir, sé samt sem áður svipað milli
landshluta.
Aðstandendur vita best
„Rökin um að ættingjar taki þátt í að
nauðungarvista fólkið sitt eru að þeir
standa þeim næst og vita best hvað þarf,
en það eru mýmörg dæmi um að það skapi
vandamál,“ segir Sigurður Páll Sigurðs-
son, yfirlæknir öryggis- og réttargeðþjón-
ustu Landspítalans. Brynjólfur Ingvars-
son, geðlæknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri
og forsvarsmaður Geðverndarfélags
Akureyrar, tekur í sama streng. „Þar sem
ég þekki til á Norðurlönd-
um eru það gjarnan aðstand-
endur sem skrifa undir til að
gæta mannréttinda þeirra sem
skal nauðungarvista.“
Gengur ekki fyrir Reykjavík
Tómas Zoëga, yfirlæknir á
geðsviði Landspítalans, segir erf-
itt að sjá að fækkun 48 klukku-
stunda nauðungavistana gæti
gengið upp í Reykjavík. „Yfirsýnin
er meiri í minni sveitarfélögum.
Hér getur fólk komið inn fárveikt
og án þess að hafa fengið þjónustu
áður. Þá höfum við 48 klukkustundir
til að meta stöðuna, sem er helm-
ingi lengri tími heldur en lögreglan
fær þegar hún handtekur fólk,“ segir
hann. „Í minni sveitarfélögum hefur
einhver yfirsýn yfir feril fólksins,
en hér getum við ekki beðið,“ bendir
Tómas á, en hann segir erfitt að meta
fárveikt fólk utan stofnana.
Persónulegra kerfi
Þegar Sigmundur er spurður að því hvers
vegna verklagið hafi þróast með svo ólík-
um hætti milli landshluta virðist skýr-
ingin liggja í ólíkri menntun yfirmanna,
„Verklagið hefur mikið farið eftir yfir-
mönnunum og það hefur áhrif hvar þeir
eru menntaðir og hverju þeir eiga að
venjast. Ég þekkti til dæmis lögræðis-
lögin mjög vel og var álitsgjafi við gerð
þeirra á sínum tíma,“ segir Sigmundur
sem hóf störf við Sjúkrahúsið á Akureyri
árið 1985. Hann segir engar reglugerðir
vera til um verklag nauðungarvistana eða
aðbúnað á deildum sem taka við sjúkling-
unum, sem útskýri einnig ólík vinnubrögð
og áhrif yfirmanna.
Smæðin hjálpar
„Á Íslandi reynum við frekar að telja fólk
á að leggjast inn og tökum okkur meiri
tíma, og hér fyrir norðan er þetta býsna
persónulegt, en kerfið er auðvitað stærra
í Reykjavík,“ segir Sigmundur, en smæð
samfélaga og almenn viðhorf til nauðung-
arvistana á Íslandi virðast einnig hafa
jákvæð áhrif. „Hér á Íslandi lítum við á
nauðungarvistanir sem mannréttindamál
og þess vegna setjum við þær undir hatt
lögræðislaganna en ekki í sérlög um geð-
sjúka. Það er nokkuð sérstakt í saman-
burði við löggjöf í nágrannalöndunum,“
útskýrir Sigmundur. Hann telur að þessi
tilhögun hafi meðal annars átt þátt í að
Ísland er með lægsta hlutfall nauðungar-
vistana á Norðurlöndunum.
Aðstandendur bera of mikla ábyrgð
Verklag við nauðungarvistanir á Landspítalanum þvingar aðstandendur geðsjúks fólk til að skrifa undir beiðni um nauðung-
arvistun, sem skilur margar fjölskyldur eftir í sárum. Á Akureyri er annað verklag og sér félagsþjónustan um umsóknirnar.
„Það átta sig ekki allir á afleiðingunum af nauðungarvistun, en hún setur mark
sitt á framtíðina. Sjúklingurinn á oft erfitt með að sætta sig við það að hafa verið
nauðungarvistaður og það ríkir oft vantraust. Samskiptin innan fjölskyldunnar
eru slök til framtíðar, því nauðungarvistun brýtur sjálfsmynd fólk í klessu,“ segir
Knútur Birgisson, MA í fötlunarfræði, en í rannsókn hans á alvarlegum geðsjúk-
dómum í fjölskyldum kom í ljós að leiðin inn á sjúkrahúsið með náinn ættingja
reyndist fjölskyldunum torveld.
Í rannsókn Knúts kemur fram að þegar upp komi geðræn veikindi grípi um
sig mikil skelfing innan fjölskyldna. „Það lýsir sér í því að fólk leitar ekki oft til
heilsugæslunnar, heldur fer beint á geðdeildina í staðinn.“ Hann segir fjölskyldurn-
ar hafa upplifað viðtökurnar á spítalanum sem mjög kerfisbundnar og of bundnar
við lyfjameðferð, „Og ef lyfin virka, þá er útskrifað,“ segir Knútur. „Það vantar fleiri leiðir, til dæmis
fjölskyldumeðferð. Þetta er fjölskyldusjúkdómur en ekki einstaklingssjúkdómur,“ vill Knútur meina.
Hefur áhrif á samskipti innan fjölskyldna
KNÚTUR
BIRGISSON
„Lítið eða ekkert sjúkdómsinnsæi er algengt
einkenni alvarlegra geðsjúkdóma og þess
vegna getur reynst vandkvæðum bundið að
telja viðkomandi fjölskyldumeðlim á að leita
sér læknishjálpar. Oft er ástandið orðið svo
alvarlegt að því má líkja við neyðarástand sem
endar með því að aðstandendur neyðast til að
fara fram á sjálfræðissviptingu. Í fyrstu er því
hlutverk aðstandenda að leysa bráðavanda.“
„Gagnrýni Guðrúnar á sjálfræðissviptingu
beinist í fyrsta lagi að þeirri litlu opinberu að-
stoð sem fólki er veitt í slíkum aðstæðum og
í öðru lagi að því hvernig sviptingin er fram-
kvæmd. Hún tekur sem dæmi að aðstæður
séu oft þess eðlis að eðlilegra og mannúðlegra
væri að senda sjúkrabíl á staðinn frekar en
lögreglubíl. Með öðrum orðum að gera vald-
beitinguna síður sýnilega.“
Brot úr meistararitgerð Knúts Birgissonar um
alvarlega geðsjúkdóma í fjölskyldum– nöfnum
viðmælenda var breytt.
➜ Reynsla aðstandenda
Auður Axelsdóttir, forstöðukona Geðheilsu– eftirfylgdar, geðheilbrigðisþjónustu
á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að þegar kemur að því að
taka ákvörðun um nauðungarvistun sé aðstandendum gjarnan sagt að þeir þurfi
að skrifa undir því það sé fljótlegast. „Fólki er ekki sagt frá því að velferðarsvið
eða sveitarfélag geti séð um eða óskað eftir nauðungarvistun. Þar er í raun
brotið á aðstandendum og sjúklingum,“ segir Auður, sem segir að þeir sem vinni
áfram með fjölskyldunum sjái hvað gerist eftir á þegar verða særindi og sam-
skiptin erfið.
„Staðan sem kemur upp þegar nauðungarvista á fólk er erfið fyrir aðstand-
endur og þeir þurfa á stuðningi að halda til að taka þessa ákvörðun. Það
ríkir yfirleitt mikill ótti við veikindin og við sjálfsvígshættuna. Þetta er í raun
ákvörðun sem er ómögulegt fyrir fólk að taka,“ segir Auður, en í starfi sínu aðstoðar hún fjölmargar
fjölskyldur í þessum aðstæðum.
Auður segist hafa lært að mikilvægt sé að hlúa að aðstandendum eftir að nauðungarvistunin
er úr garði gengin og í sumum tilfellum sé prestur kallaður til. „Það er líka mjög mikilvægt að tala
við börn ef þau eru á staðnum og fylgja þeim eftir í einhvern tíma, því áfallið getur verið mikið,“
útskýrir hún, en Geðheilsa– eftirfylgd hefur litið til finnskrar aðferðar, opins samtals, þar sem rík
áhersla hefur verið lögð á samstarf fagfólks, sjúklings og aðstandenda þegar upp koma bráð veikindi.
Brotið á aðstandendum og sjúklingum
AUÐUR
AXELSDÓTTIR
Eva
Bjarnadóttir
eva@frettabladid.is
BEIÐNI UM NAUÐUNGARVISTUN
FJÖLSKYLDUR
Nauðungarvist-
anir geðsjúkra
hafa mikil áhrif
á aðstandendur
þeirra.