Fréttablaðið - 16.12.2013, Page 4
16. desember 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Ef þú ert
að fá greitt
fyrir hvert
læknisverk þá
gætirðu haft
hvata til að
toga í fleiri
læknisheimsóknir eða
sinna fleiri sjúklingum en
þörf er á.
Una Jónsdóttir hagfræðingur
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Veðurspá
Miðvikudagur
8-18 m/s.
JÓLALEGT VEÐUR Veður verður svipað þar til seinnipartinn á morgun en þá gengur
í hvassa austanátt með mikilli úrkomu síðdegis og annað kvöld. Yfirleitt snjókoma en
slydda syðst þar sem hlýnar aðeins um tíma.
-3°
3
m/s
-1°
3
m/s
-2°
4
m/s
2°
6
m/s
Á morgun
Hæg suðlæg en hvöss A-átt síðdegis.
Gildistími korta er um hádegi
0°
-2°
-1°
-2°
-3°
Alicante
Basel
Berlín
17°
9°
6°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
10°
6°
9°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
6°
6°
21°
London
Mallorca
New York
13°
17°
-2°
Orlando
Ósló
París
19°
6°
9°
San Francisco
Stokkhólmur
19°
7°
-2°
4
m/s
0°
6
m/s
-2°
3
m/s
-1°
5
m/s
-3°
2
m/s
-2°
2
m/s
-7°
4
m/s
0°
-2°
-2°
-3°
-2°
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
721 leigusamningi um íbúðarhúsnæði var
þinglýst í nóvember síðastliðnum.
Samningunum fækkaði þá um 24,2
prósent frá október 2013 en fjölgaði
um 4,5 prósent frá nóvember 2012.
STJÓRNMÁL Samfylkingin vill
hækka mörk millitekjuskattþreps
úr 250 þúsund krónum í 350 þús-
und. Flokkurinn vill einnig falla frá
öllum gjaldskrárhækkunum, hækka
útgjöld til húsaleigubóta um millj-
arð og verja fjórum milljörðum í að
styðja hópa í lægsta tekjuþrepinu.
Þetta kemur fram í breytingatil-
lögum flokksins við fjárlagafrum-
varp og tekjuöflunarfrumvarp rík-
isstjórnarinnar sem voru kynntar á
blaðamannafundi á laugardag.
Þar kynntu þingmenn flokksins
að þeir vildu setja sókn í velferðar-
og atvinnumálin og verja fé í verk-
efni sem tryggt geti vöxt og arð á
næstu áratugum, svo sem með því
að leggja fimm milljarða í heilbrigð-
iskerfið og hafna sjúklingasköttum.
Helstu nýju tekjuliðir sem Sam-
fylkingin leggur til eru 3,3 millj-
arðar vegna útboðs á leiguheim-
ildum til makrílveiða, tekjur vegna
hækkunar sérstaks veiðigjalds,
virðisaukaskatts á gistinætur og
sex milljarða hærri í bankaskatt en
ríkisstjórnin hyggst gera. - fbj
Samfylkingin kynnti breytingatillögur við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar:
Vill styðja tekjulægstu hópana
Á BLAÐAMANNAFUNDINUM Þing-
menn Samfylkingarinnar kynntu til-
lögurnar á laugardag.
HEILBRIGÐISMÁL Fjöldi ákveðinna
speglana á Landspítalanum dróst
saman um 33 prósent árið eftir að
stjórn spítalans ákvað að hætta
að greiða læknum í samræmi við
unnin verk á göngudeildum og
greiða eingöngu föst laun. Spegl-
unum á einkastofum fjölgaði hins
vegar um 167 prósent.
Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn hagfræðinganna Unu Jóns-
dóttur og Tinnu Laufeyjar
Ásgeirsdóttur þar sem fjöldi melt-
ingarvegs- og berkjuspeglana á
árunum 2000 til 2005 var skoð-
aður. Þar er litið á desembermán-
uð 2002 sem vendipunkt því þá
ákvað stjórn Landspítalans að fara
í breytingar á launagreiðslum til
lækna og afnema svokallaða ferli-
verkasamninga.
„Þá færðust þessi læknisverk
í auknum mæli inn á einkastofur
þar sem læknar fengu greitt í sam-
ræmi við unnin verk,“ segir Una
Jónsdóttir og heldur áfram:
„Ef þú ert að fá greitt fyrir hvert
læknisverk þá gætirðu haft hvata
til að toga í fleiri læknisheimsókn-
ir eða sinna fleiri sjúklingum en
þörf er á. Ef þú ert á föstum laun-
um, óháð því hversu mörgum sjúk-
lingum þú sinnir, þá getur maður
ímyndað sér að launin hafi þau
áhrif að læknir taki á móti færri
sjúklingum. Við erum ekki að segja
að eitthvað eitt kerfi sé betra en
annað en erum einungis að sýna að
greiðslur til lækna geta verið mikil-
vægur áhrifaþáttur í meðferð sjúk-
lings,“ segir Una.
Hún og Tinna Laufey benda
einnig á að aðstaða til speglana á
spítalanum hafi hugsanlega verið
vannýtt eftir að ferliverkasamning-
unum lauk.
„Við sáum að spítalinn hafði bol-
magn til að framkvæma allt að
7.475 speglanir árið 2001 en fram-
kvæmdi einungis 4.377 árið 2005.
Þannig má hugsa sér að sóun hafi
falist í því að koma upp aðstöðu á
einkastofum þegar hún var hugsan-
lega tiltæk á Landspítalanum.“
Una undirstrikar að rannsóknin
hafi einnig leitt í ljós að heildar-
fjöldi speglana hafi aukist á þess-
um tíma, en það sé ekki víst að sú
aukning hafi verið vegna breytts
greiðslufyrirkomulags þar sem
speglunum á Sjúkrahúsinu á Akur-
eyri fjölgaði einnig á umræddu
tímabili þrátt fyrir að ferliverka-
samningarnir séu þar enn í gildi.
„Heildaraukning speglana gæti
því verið af öðrum orsökum sem
ekki voru til athugunar í rannsókn-
inni. Eftir stendur þó þessi mikla
tilfærsla verka á milli þjónustuein-
inga sem verður tæplega skýrð með
öðrum hætti en vegna breytinga á
greiðslufyrirkomulagi.“
haraldur@frettabladid.is
Speglanir drógust
saman um þriðjung
Tíðni meltingarvegs- og berkjuspeglana á Landspítalanum dróst saman um 33 pró-
sent árið 2003 miðað við árið á undan. Speglunum á einkastofum fjölgaði á sama
tíma um 167 prósent. Aðstaða til speglana á spítalanum var hugsanlega vannýtt.
LSH Landspítalinn framkvæmdi yfir sjö þúsund speglanir árið 2001 en einungis
4.377 árið 2005. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MÓTMÆLI Samstöðufundur til að
mótmæla niðurskurði í Ríkisút-
varpinu var haldinn á Austurvelli
í gær undir yfirskriftinni Hlust-
endavaka. Um 100 manns mættu
á mótmælin samkvæmt frétt á
fréttavef Rúv.
Til máls tóku meðal annarra
tólf ára gamall hlustandi Leyni-
vinafélagsins sem talaði um mik-
ilvægi útvarpsefnis fyrir börn.
Þá fluttu aðrir góðvinir Rúv
erindi eða fluttu ljóð.
- ue
Niðurskurði á Rúv mótmælt:
Um 100 mættu
á Austurvöll
ÚKRAÍNA, AP Eftir um fjögurra
vikna dagleg mótmæli í höfuð-
borg Úkraínu söfnuðust 200 þús-
und mótmælendur saman í gær
til að mótmæla ákvörðun stjórn-
valda um að hætta við að tengj-
ast Evrópusambandinu nánari
böndum.
Leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar töluðu á fundinum, sem
fór fram á Sjálfstæðistorginu í
Kænugarði.
Í um eins kílómetra fjarlægð
frá mótmælunum sýndi um
15.000 manna hópur stuðning
sinn við ríkisstjórnina og áform
hennar um að efla samvinnu
Úkraínu við Rússland. - ue
Um 200 þúsund mótmæltu:
Um 15 þúsund
sýndu stuðning
HLYNNT ESB Um 200 þúsund mót-
mæltu ákvörðun stjórnvalda um að
semja ekki við ESB. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKAGAFJÖRÐUR
Trúnaður um gagnaveitu
„Það skýtur óneitanlega skökku við að
innihald samnings þar sem undirritun
var ljósmynduð í bak og fyrir, skuli vera
bundin sérstökum trúnaði,“ segir í
bókun sveitarstjórnarfulltrúa Frjáls-
lyndra og óháðra í Skagafirði vegna
viljayfirlýsingar um sölu á Gagnaveitu
Skagafjarðar til Mílu.
NÁTTÚRUVERND Stjórn Náttúru-
verndarsamtaka Suðvesturlands
lýsir furðu á leyfisveitingu Orku-
stofnunar fyrir lagningu Suður-
nesjalínu 2 og beiðni Landsnets um
eignarnám á jörðum á Vatnsleysu-
strönd á áætlaðri línuleið.
„Ekki verður séð á gögnum að
Orkustofnun hafi sinnt eftirlits-
hlutverki sínu sem skyldi heldur
látið Landsnet mata sig á upp-
lýsingum sem henta markmiðum
fyrirtækisins,“ segir í yfirlýsingu
frá samtökunum. Þar segir einnig
að Orkustofnun skuli gæta þess að
ekki séu reist flutningsmannvirki
sem ekki sé þörf á. Til að gegna
því hlutverki þurfi Orkustofnun að
leggja sjálfstætt mat á þörf fyrir
mannvirki. Það hafi hún ekki gert
við afgreiðslu leyfisveitingar til
Landsnets. - eb
Leyfi fyrir Suðurnesjalínu 2:
Lýsa furðu á
leyfisveitingu
VIÐSKIPTI Kristján Freyr Krist-
jánsson hefur að eigin ósk sagt
starfi sínu sem framkvæmda-
stjóra félags-
ins lausu. Hann
hefur starfað hjá
félaginu í fimm
ár, þar af í þrjú
ár sem fram-
kvæmdastjóri,
að því er fram
kemur í tilkynn-
ingu. Þar segir
að starfið verði
auglýst á næstunni.
Klak Innovit hefur síðustu ár
stýrt ýmsum verkefnum sem
styðja við frumkvöðla og sprota-
fyrirtæki hér á landi og erlendis.
Má þar nefna verkefni á borð við
Gulleggið, StartupReykjavík og
Seed Forum. - hg
Starfið auglýst á næstunni:
Hættur hjá
Klak Innovit
KRISTJÁN FREYR
KRISTJÁNSSON