Fréttablaðið - 16.12.2013, Page 6
16. desember 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
PI
PA
PI
PA
RR
\\
TB
W
A
W
TB
S
ÍA
1
33
62
5
Upplýsingasími 530 3000
Vertu klár þegar við opnum Bláfjöll og Skálafell.
Glæsileg jólagjöf á frábæru verði.
Vetrarkort fyrir fullorðna á tilboðsverði til áramóta, 24.000 kr.
Þú færð vetrarkort í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5.
Opið alla virka daga kl. 9–13 og 13:30–17.
Gjafakort fást í Mohawks, Kringlunni til áramóta.
Vetrarkort á skíðasvæðin
ATVINNULÍF Þar sem mesta vinnu-
törn starfsfólks verslana er hafin
hefur VR hafið hvatningu sína til
atvinnurekenda og launþega um
að virða réttindi starfsmanna.
VR minnir starfsmenn á að skrá
vinnutíma og minnir yfirmenn á
frídaga, laun á frídögum, frítöku-
rétt, hvíldartíma og kaffitíma.
„Þessi mál koma yfirleitt upp
eftir jól þegar fólk fer að skoða
jólin í baksýnisspeglinum. Það
nær ekki að hugsa um þetta í
jólaösinni þegar allt er á fullu,“
segir Elías Magnússon, forstöðu-
maður kjaramálasviðs VR.
„Aukinn áróður og upplýs-
ingagjöf frá okkur hefur reynd-
ar skilað sér í færri málum og
kvörtunum. Einnig hefur vinnu-
markaðurinn breyst. Nú er meira
vaktafyrirkomulag í verslunum
þannig að sama fólkið er ekki að
vinna frá níu á morgnana til tíu á
kvöldin. Það eru helst vinnuveit-
endur sem ruglast með greiðslu-
þáttinn, álag og desember-
uppbót.“ - ebg
VR minnir verslunarfólk á nauðsynlega hvíld og skráningu á vinnutímum:
Réttindi gleymast í vinnutörnum
HEILSUFAR Haraldur Magnússon
osteópati er ósammála því sem
kemur fram í nýlegri tilkynningu
þess efnis að sætuefnið aspartam
sé skaðlaust.
Matvælastofnun sendi tilkynn-
inguna út fyrr í vikunni, eftir að
hafa fengið upplýsingarnar frá
Matvælaöryggisstofnun Evrópu.
Aðspurður segir Haraldur til-
kynninguna ekki hafa komið sér
á óvart. „Opinberar stofnanir hafa
alltaf kappkostað við að reyna að
réttlæta þetta efni. Það virðist ekki
skipta neinu máli hversu margar
neikvæðar rannsóknir koma fram.
Það endar ávallt á því að vera í lagi
með þetta.“
Hann segir ástæðuna
fyrir þessu vera af póli-
tískum toga. „Pólitíkin er
í eðli sínu þannig að það
er ekki hægt að bakka á
þessum tímapunkti. Ef það
kæmu allt í einu fram núna
óhyggjandi niðurstöður um
að þetta sé hættulegt yrði
það of mikill skaði fyrir
orðspor þessara stofnana.“
Haraldur hefur skrifað margar
greinar, meðal annars á Fitness.
is, um skaðsemi aspartam. Reynd-
ar hefur hann ekkert skrifað um
málefnið í tvö ár vegna þess að
honum fannst skrif sín ekki skila
neinum árangri. „Síðan ég dró
mig frá þessu kom ítalska
Ramazzini-stofnunin með
eina rannsókn sem sýndi
fram á krabbameinsáhrif.
Hún endurtók rannsóknina
og fékk sömu niðurstöðu,“
segir hann og bætir við að
þær rannsóknir sem Mat-
vælaöryggisstofnun Evr-
ópu vísi til séu að mestu
leyti kostaðar af hags-
munaaðilum. Þess vegna sýni þær
aldrei fram á aukaverkanir.
„Ef það er í lagi með þetta efni,
af hverju er sífellt verið að endur-
meta það rúmlega þrjátíu árum
eftir að það var leyft?“ spyr hann.
- fb
Osteópati gefur lítið fyrir nýlega tilkynningu um skaðleysi sætuefnis:
Segir aspartam víst hættulegt
HARALDUR
MAGNÚSSON
RÉTTINDI Verslunarfólk verður að huga
að réttindum sínum í jólaönnunum í
desember. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Á SUÐURPÓLNUM Í Walking with the wounded-ferðinni voru 32 í hópnum með Íslendingunum fjórum, kvikmyndagerðarmönn-
um og læknum. Emil Grímsson leiðangursstjóri segir hópinn hafa verið ánægðan með ferðina. MYND/ARTICTRUCKS
FÓLK „Það hefur verið ótrúlega
mikið um að vera hjá okkur þetta
tímabilið. Það sem Arctic Trucks
(AT) gerir þarna suður frá er að
styðja við ýmis verkefni og að
þessu sinni snúast öll verkefnin
um fólk sem er að fara á suður-
pólinn. Við erum t.d. með Walk-
ing with the wounded-verkefnið
sem var að klárast í fyrradag og
gekk ótrúlega vel,“ segir Guð-
mundur Guðjónsson, verkefn-
isstjóri suðurpólsverkefna hjá
Arctic Trucks.
Annað verkefni fyrirtækisins
sem kláraðist nýverið snýr að
mönnum frá Bandaríkjunum sem
settu sér það markmið að keyra
Toyota-bílum í öllum heimsálf-
unum sjö. Arctic Trucks hjálpaði
þeim að skipuleggja ferðina og
eftir að þeir komu í æfingaferð
til Íslands keyptu þeir einn bíl
og fyrirtækið lánaði þeim annan,
auk bílstjóra og viðgerðarmanns.
Þeir keyrðu um 6.000 kílómetra
á 13 dögum, þvert yfir Suður-
skautslandið og til baka. Þegar
best gekk náðu þeir að fara 800
km á einum sólarhring og not-
aði hvor bíll um sig 2.800 lítra
af olíu. Nokkur heimsmet féllu í
þessum leiðangri. „Það er alveg
sama hvað maður skoðar í þess-
um leiðangri, það er allt heims-
met. Það hefur aldrei verið farið
á svona skömmum tíma fram og
til baka yfir skautið og eins eiga
þeir stysta tímann frá ströndu á
pólinn. Þeir fóru á pólinn á undir
30 tímum frá Ross-íshellunni.“
Tveir leiðangrar eru enn í
gangi, annar snýr að manni
sem mun reyna að setja hraða-
met í að ferðast á suðurpólinn á
gönguskíðum og þá á innan við
22 dögum. Svo munu tveir bílar
frá AT fylgja ungri konu á Ross-
íshelluna á næstu dögum. Hún
ætlar sér að setja heimsmet og
hjóla frá ströndinni á pólinn.
Sex bílar frá AT eru staðsett-
ir á suðurskautinu allt árið um
kring og eru látnir standa úti
yfir veturinn. „Við reynum að
staðsetja á stöðum þar sem blæs
af þeim og þar eru þeir bundn-
ir niður svo þeir fjúki ekki. Við
lokum svo fyrir öll göt þar sem
snjór gæti hugsanlega smog-
ið inn. Það er alveg ótrúlegt að
stundum erum við ekki nema
um klukkutíma að ná bílunum í
gang.“
Fyrir þetta ár var samanlögð
reynsla Arctic Trucks á suður-
skautinu 47 mánuðir. „Tveir af
strákunum fóru núna í fimmta
skipti, en það eru mjög fáir sem
hafa komið svo oft þangað. Þeir
hafa ferðast þvers og kruss um
og við erum komnir með ótrúlega
mikla reynslu.“ samuel@frettabladid.is
Mikil reynsla af ferð-
um á suðurskautið
Fyrirtækið Arctic Trucks hefur sinnt verkefnum á suðurskautinu í fimm ár og nú
eru níu bílar og sjö starfsmenn á vegum fyrirtækisins þar að sinna ýmsum verk-
efnum. Þau hafa komið upp á móti mikilli fækkun jeppabreytinga hér á landi.
STJÓRNSÝSLA Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra skrifaði nýverið
undir tilkynningu frá ráðuneytinu
til Alþingis með rafrænum skil-
ríkjum með síma sínum.
Í tilkynningu
segir að með
þessu hafi verið
stigið mikilvægt
skref í rafrænni
stjórnsýslu. Hefð
hefur verið fyrir
því að slíkar til-
kynningar séu
undirritaðar með
bleki á pappír.
„Með þessu höfum við tekið
stefnu í átt að auknum rafræn-
um samskiptum í stjórnsýslunni,
sem hefur í för með sér minni til-
kostnað og þar með betri nýtingu
á almannafé og sömuleiðis bætta
umgengni við umhverfið,“ er haft
eftir Bjarna í tilkynningunni. - fbj
Prófaði rafræn skilríki:
Skrifaði undir
með símanum
BJARNI
BENEDIKTSSON
MENNING Írski leikarinn Peter
O‘Toole lést á sjúkrahúsi í Lund-
únum í fyrradag eftir langvinn
veikindi. O‘Toole, sem varð áttatíu
og eins árs, skaust upp á stjörnu-
himininn þegar
hann lék í kvik-
myndinni Law-
rence of Arabia
árið 1962. Á ferl-
inum var hann
átta sinnum til-
nefndur til Ósk-
arverðlaunanna,
en hreppti þau
aldrei. Hann til-
kynnti á síðasta ári að leikferli
hans væri lokið.
Forseti Írlands, Michael Higg-
ins, var með þeim fyrstu til að
minnast O‘Toole: „Írland, og
heimurinn, hefur nú misst eina
af helstu stjörnum kvikmynda og
leikhúss.“ - eb
Lést eftir langvinn veikindi:
Leikarinn Peter
O‘Toole látinn
PETER O‘TOOLE
VEISTU SVARIÐ?
Það er alveg sama
hvað maður skoðar í
þessum leiðangri, það er
allt heimsmet.
Guðmundur Guðjónsson, verkefnisstjóri
suðurpólsverkefna hjá Arctic Trucks
STJÓRNMÁL Píratar í Reykjavík,
svæðisbundið aðildarfélag Pírata
sem stofnað var formlega á laug-
ardag, munu bjóða fram lista í
nafni Pírata í borgarstjórnar-
kosningunum 2014.
Kosið verður um listann í net-
kosningu. Halldór Auðar Svans-
son, nýkjörinn formaður Pírata
í Reykjavík, segir að prófkjör
muni væntanlega fara fram
skömmu eftir áramót. Hann segir
ekki óraunhæft að ná tveimur eða
þremur borgarfulltrúum. - hva
Halda prófkjör eftir áramót:
Píratar bjóða
fram í borginni
1. Hvað heitir forsætisráðherra Taí-
lands?
2. Hver varð fyrst íslenskra sund-
kvenna til að keppa í úrslitum á Evr-
ópumeistaramóti í 25 metra laug?
3. Hvað heitir jólaplata Sigríðar
Thorlacius?
SVÖR
1. Yingluck Shinawatra 2. Eygló Ósk Gúst-
afsdóttir 3. Jólakveðja